Æðsti erindreki Evrópusambandsins sagði að hún byggist ekki við að samkomulag næðist um nýjar refsiaðgerðir gegn Rússlandi í dag eftir að Ungverjaland hét því að beita neitunarvaldi gegn þeim nema Úkraína opnaði aftur mikilvæga olíuleiðslu.
Bandalagið, sem telur 27 ríki, hefur þrýst á um að setja nýja lotu efnahagslegra refsiaðgerða á stjórnvöld í Moskvu á fjögurra ára afmæli allsherjarinnrásar Rússa í Úkraínu á morgun.
„Ég held að það verði engar framfarir í þessu í dag, en við munum örugglega halda þessu áfram,“ sagði Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, í upphafi fundar utanríkisráðherra ESB.
Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands – sá leiðtogi ESB sem er hvað vingjarnlegastur í garð stjórnar Vladimirs Pútíns í Rússlandi – sagði í gær að Ungverjar myndu beita neitunarvaldi gegn refsiaðgerðum þar til Druzhba-olíuleiðslan yrði opnuð aftur.
„Á meðan það gerist ekki, verður engin breyting á afstöðu Ungverjalands,“ sagði Peter Szijjarto, utanríkisráðherra Ungverjalands, við …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

















































Hins vegar hefur hann alltaf verið hallur undir Putin, varla nein refsiaðgerð sem Orban hefur ekki lagt stein í götu.