Áfram kveðið á um að ríkið öðlist forkaupsrétt að ISNIC þrátt fyrir mótbárur hluthafa

Ríkið mun fá for­kaups­rétt að hlutum í ISNIC, sem gefur út lén með .is end­ingu, ef frum­varp til laga um íslenska lands­höf­uð­lénið verður sam­þykkt á þingi í vetur. Hvergi er í dag kveðið á um lén í íslenskri lög­gjöf, en því á að breyta.

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra hefur á ný lagt fram frumvarp um íslenska landshöfuðslénið .is.
Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórna­ráð­herra hefur á ný lagt fram frum­varp um íslenska lands­höf­uð­slénið .is. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp til laga um íslenskt lands­höf­uð­lén á þingi, í annað sinn. Í frum­varp­inu er áfram kveðið á um að íslenska ríkið hafi for­kaups­rétt að hlutum í skrán­ing­ar­stof­unni Internet á Íslandi (ISNIC), sem gefur út lén með .is end­ingu.[links]

Ekki þótti ástæða til þess að taka slíkt ákvæði út úr frum­varp­inu eða breyta því þrátt fyrir að einn hlut­hafa ISNIC hafi gert kröfu um það er frum­varpið var lagt fram á síð­asta þingi og sagt vafa und­ir­orpið hvort for­kaups­rétt­ar­á­kvæðið stæð­ist stjórn­ar­skrá.

Frum­varpið um íslenskt höf­uðland­s­lén hefur verið í vinnslu hjá sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu allt frá árinu 2005, frá því að skrán­ing og útgáfa léna með .is end­ingu var einka­vædd í upp­hafi ald­ar­innar.

Hjá ráðu­neyt­inu hefur verið til skoð­unar að setja eign­ar­náms­heim­ild inn í frum­varpið, en sú ráð­stöfun þótti ganga of langt og fara gegn með­al­hófi. Hið opin­bera á í dag tæp­lega 24 pró­sent í félag­inu.

For­kaups­rétt­ur­inn sem kveðið er á um í frum­varp­inu heim­ilar rík­is­sjóði að ganga inn í kauptil­boð ef þau verða gerð í félagið, hvort sem að þau koma frá inn­lendum aðilum eða erlendum, en rík­is­sjóði er hins vegar ekki skylt að nýta þennan rétt.

Ákvæðið er sagt „fyrst og fremst til að tryggja að félagið verði ekki selt út úr íslenskri lög­sögu“ en þó er gert ráð fyrir að rík­is­sjóður gæti einnig beitt for­kaups­rétti sínum ef að inn­lent félag kaupir hlut í ISNIC.

Þetta breyt­ist ekki í end­ur­fluttu frum­varpi Sigurðar Inga þrátt fyrir að Samtök atvinnu­lífs­ins og Samtök iðn­að­ar­ins kæmu því að í sam­eig­in­legri umsögn sinni um málið í vor að for­kaups­rétt­inn ætti að tak­marka við kaup erlendra aðila á hlut í félag­inu.

Sjálfseignarstofnanir á Norðurlöndum en arðsamt fyrirtæki á Íslandi

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu að skrán­ing­ar­stofur á borð við ISNIC séu gjarnan reknar sem sjálfs­eign­ar­stofn­anir en ekki í hagn­að­ar­skyni í lönd­unum í kringum okkur og er til dæmis bent á Danmörku, Noregi og Svíþjóð í því sam­hengi.

Hér á Íslandi er þessu öfugt farið. ISNIC hefur skilað eig­endum sínum stöð­ugum arði um ára­bil, en í fyrra var fjallað um það í Morg­un­blað­inu að félagið hefði hagn­ast um 90 millj­ónir árið 2018 og sam­tals um yfir 800 millj­ónir króna frá árinu 2009.

Öryggissjónarmið sögð hafa mikið vægi

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu er farið yfir það af hverju ríkið telji nauð­syn­legt að setja lög um léna­mál hér á landi og segir þar að netið sé hluti mik­il­vægra inn­viða rík­is­ins.

„Eign­ar­hlutir og stjórnir einka­fyr­ir­tækja geta tekið miklum breyt­ingum á skömmum tíma og nauð­syn­legt er að gera ráð­staf­anir sem tryggja að starf­semin sé með lög­heim­ili hér á landi undir íslenskri lög­sögu og að rétt­hafa­skráin sé vistuð hér á landi en ekki úti í heimi, t.d. í svoköll­uðu skýi. Það er óvið­un­andi fyrir hags­muni Íslands að íslensk stjórn­völd geti ekki komið í veg fyrir það að t.d. eign­ar­hald skrán­ing­ar­stofu verði selt erlendum aðilum,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þar segir einnig að mik­il­vægt sé að íslensk yfir­völd „hafi heim­ildir til að bregð­ast við utan­að­kom­andi ógnum, svo sem vegna hættu á hryðju­verkum eða vegna stríðs­á­stands, sem varða íslensk lands­höf­uð­lén“ og bent er á a Atl­ants­hafs­banda­lagið hafi skil­greint net­ör­yggi sem fjórðu vídd sam­eig­in­legra varna banda­lags­ins ásamt vörnum í lofti, á láði og legi.



Einnig segir lands­höf­uð­lén geti haft „tals­verð áhrif á ímynd lands og þjóðar“ og því sé nauð­syn­legt að stjórn­völd hafi „úrræði til að bregð­ast við skrán­ingum léna undir lands­höf­uð­lén­inu sem hafa nei­kvæð áhrif á ímynd lands­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

internetið

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár