Aldrei hafa fleiri erlendir ríkisborgarar flutt til Íslands á einum ársfjórðungi

Alls flutt­ust um 5.050 manns til Íslands á öðrum árs­fjórð­ungi. Þar af voru erlendir rík­is­borg­arar rúm­lega 4.500 tals­ins, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar. Um 980 Úkra­ínu­menn voru í þeim hópi.

Um 7.370 erlendir rík­is­borg­arar flutt­ust til Íslands á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, þar af rúm­lega 4.500 á öðrum árs­fjórð­ungi, frá byrjun apríl til loka júní. Aldrei hafa fleiri erlendir rík­is­borg­arar flutt til Íslands á einum árs­fjórð­ungi.

Þá hafa ein­ungis einu sinni áður fleiri erlendir rík­is­borg­arar flust til lands­ins á sex mán­aða tíma­bili, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar. Það var á öðrum og þriðja árs­fjórð­ungi árið 2017, en þá flutt­ust sam­tals 7.390 erlendir rík­is­borg­arar til lands­ins.

Árið 2017 var mik­ill upp­gangur í efna­hags­líf­inu, ekki síst í ferða­þjón­ustu. Hið sama á við nú, en eftir mögur ár far­ald­urs­ins er mikil eft­ir­spurn eftir vinnu­afli í ferða­þjón­ustu og raunar fleiri atvinnu­greinum og margir koma erlendis frá til starfa hér á landi.

[adspot]

Í ár bæt­ist svo við straumur flótta­fólks frá Úkraínu, en á öðrum árs­fjórð­ungi flutt­ust alls 980 manns frá Úkraínu búferla­flutn­ingum til Íslands, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar.

Erlendir ríkisborgarar 15,6 prósent landsmanna

Við lok ann­ars árs­fjórð­ungs voru alls 59.490 erlendir rík­is­borg­arar búsettir á Íslandi, sem sam­svarar 15,6 pró­sentum af heild­ar­mann­fjöld­anum, sem kom­inn var upp í 381.370 manns í lok júní.

Hlutfall erlendra rík­is­borg­ara af íbúum lands­ins fer því áfram ört vax­andi, en í upp­hafi árs 2021 voru erlendir rík­is­borg­arar 13,9 pró­sent af mann­fjöld­anum á Íslandi. Árið 2017 fór hlut­fallið í fyrsta sinn yfir 10 pró­sent og árið 2006 fór sama hlut­fall í fyrsta sinn yfir 5 pró­sent. Bak­grunnur lands­manna er því sífellt að verða fjöl­breyti­legri.

Heilt yfir fjölg­aði íbúum á Íslandi um 3.600 á öðrum árs­fjórð­ungi, en á móti þeim fjöl­mörgu erlendu og íslensku rík­is­borg­urum sem fluttu til lands­ins (alls um 5.050 manns í heild­ina) fluttu um 1.450 manns í burtu frá land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár