Fjandans farsíminn

Á síðustu tíu árum hefur sala á mynda­vélum hrunið um 87%, úr 121,5 milljónum eintökum seldum árið 2010 í 15,2 milljónir á síðasta ári. Allt fjandans farsímanum að kenna.

Parísarborg, Frakklandi
Par­ís­ar­borg, Frakk­landi Birtan í mynd­inni sem sím­inn gefur er í engu sam­ræmi við það sem var, í skugga hins 324 metra háa Eiffel-turns. Mynd: Páll Stefánsson

Þessi bylting hófst í Helsinki fyrir 15 árum, þegar Nokia kynnti N90 símann sinn með 2MP myndavél, flassi og linsu frá Carl Zeiss. Það er sama stærð af flögu og iPhone hafði þegar hann var kynntur tveimur árum seinna, en þá var Nokia komið með 5MP myndavél í N95 símann. Stýri­kerfið varð Nokia að falli og nú eru þeir bara peð saman­borið við Apple, Samsung, Huawei og Sony – en allir þessir fram­leiðendur eru með frábærar mynda­vélar í sínum nýjustu tækjum. Myndirnar úr þeim eru mjög góðar og duga flestum til að skrásetja það sem fyrir augu ber, eða sjálfan sig, og koma myndunum strax áfram á samfélags­miðla eða með skila­boðum til vina og vanda­manna.

Kænu­garður, ÚkraníuAllt í einu birt­ist hún uppá stytt­unni, mynda­véla­laus í Khreshchaty garð­inum í mið­borg­inni, og tók eins og eina sjálfu á sím­ann sinn.
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár