Glencore Aluminum og Trimet Aluminum hafa lýst yfir áhuga á að kaupa eignir Rio Tinto á Íslandi, Svíþjóð og Hollandi, samkvæmt heimildum The New York Times. Eignirnar eru metnar á allt að 350 milljónir Bandaríkjadala.
Rio Tinto á Íslandi gáfu engin svör við fyrirspurn Kjarnans um málið. Enn fremur segir í frétt The New York Times að Rio Tinto í Bandaríkjunum hafi engin svör gefið við fyrirspurn þeirra.
[adspot]Í fréttinni segir jafnframt að Glencore hyggist kaupa ál frá álfyrirtækjum um allan heim upp að þremur milljónum tonna. Trimet Aluminum, sem er þýskt álfyrirtæki, vill auka framleiðslu sína til þess að auka framboð til framleiðslu bíla, sérstaklega rafmagnsbíla, samkvæmt fréttaflutningi the New York Times.
[links]Í maí 2018 var Rio Tinto í söluferli þegar ríkisstjórnin veitti Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra umboð til að veita skriflegt samþykki við fyrirhugaðri sölu á öllum eignarhlutum í Rio Tinto á Íslandi hf. frá Alcan Holding Switzerland AG til Hydro Aluminium AS, vegna álversins í Straumsvík.
Fallið var frá þeirri sölu í september á síðasta ári, samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins. Langur tími var áætlaður að fá samþykki frá evrópskum samkeppnisyfirvöldum. Enn fremur var tap Rio Tinto á síðasta ári 5,5 milljarðar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir