Samþykki veitt fyrir sölu á Rio Tinto á Íslandi

Ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra hefur fengið umboð til að veita skrif­legt sam­þykki við fyr­ir­hug­aðri sölu á öllum eign­ar­hlutum í Rio Tinto á Íslandi til Hydro Alu­minium AS og að félagið taki þar með yfir aðal­samn­ing­inn frá 1966.

Rio Tinto
Rio Tinto Mynd: EPA

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi í morgun að veita Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra umboð til að veita skrif­legt sam­þykki við fyr­ir­hug­aðri sölu á öllum eign­ar­hlutum í Rio Tinto á Íslandi hf. frá Alcan Holding Switzerland AG til Hydro Alu­minium AS, vegna álvers­ins í Straums­vík, og að félagið taki þar með yfir aðal­samn­ing­inn frá 1966.

Þórdís er stödd erlendis og mun hún skrifa undir bréfið þegar hún kemur heim á morgun, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Í fram­haldi af því hefst vinna um gerð laga­frum­varps sem miðar að því að fella úr gildi og rifta aðal­samn­ingnum frá 1966, í sam­ræmi við vilja nýs eig­enda og stjórn­valda. Stefnt er að því að leggja slíkt frum­varp fram á Alþingi á kom­andi haust­þingi.

Eins og Kjarninn greindi frá í febr­úar síð­ast­liðnum þá gerði norska fyr­ir­tækið Norsk Hydro ASA skuld­bind­andi til­boð um að kaupa álverið í Straums­vík af núver­andi eig­anda þess, Rio Tinto. Í til­boð­inu felst að kaupa allt hlutafé í íslenska álver­inu, 53 pró­sent hlut í hol­lenskri verk­smiðju Rio Tinto og helm­ings hlut í sænskri verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins. Til­boðið í allan pakk­ann hljóðar upp á 345 millj­ónir dali, eða 34,7 millj­arða króna.

Norsk Hydro er eitt stærsta álfyr­ir­tæki í heimi. Norska ríkið á 43,8 pró­sent hlut í því og norski olíu­sjóð­ur­inn á auk þess 6,5 pró­sent hlut. Hjá fyr­ir­tæk­inu starfa um 13 þús­und manns. Hluta­bréf Norsk Hydro eru skráð í kaup­höll­inni í Osló.

52 ára samningur

Aðal­samn­ingur milli rík­is­stjórnar Íslands og Swiss Alu­minium Limited, sem nú er Rio Tinto á Íslandi hf., um álver í Straums­vík er upp­haf­lega frá 28. mars 1966. Hefur samn­ingnum verið breytt níu sinnum og hefur sam­þykki Alþingis fyrir við­kom­andi við­auka­samn­ingum verið aflað í hvert sinn. Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

Samkvæmt aðal­samn­ingnum er sala á eign­ar­hlutum í félag­inu, og yfir­taka á samn­ingnum, háð sam­þykki íslenskra stjórn­valda. Óskaði Hydro Alu­minium AS eftir slíku sam­þykki.

Afstaða Hydro er sú að aðal­samn­ing­ur­inn frá 1966 sé úreltur og óskaði félagið eftir því að í fram­haldi af því að íslensk stjórn­völd sam­þykki kaup félags­ins á álver­inu þá verði sett af stað vinna sem hafi það að mark­miði að rifta aðal­samn­ingnum. Slík ákvörðun um riftun er háð sam­þykki Alþingis og verði það nið­ur­staðan að fella aðal­samn­ing­inn úr gildi er það ósk Hydro að það verði gert með laga­frum­varpi í haust, segir í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár