Wernessynir þurfa að greiða 5,2 milljarða til þrotabús Milestone

Dómur féll í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Karl Wernersson.
Karl Wernersson. Mynd: Tryggvi Aðalbjörnsson

Karl og Stein­grím­ur Werners­syn­ir og Guðmund­ur Ólason, sem allir hafa verið kenndir við Milestone, voru í dag dæmd­ir í Hér­aðs­dómi Reykja­vík­ur til að greiða þrota­búi Milest­one 5,2 millj­arða vegna milli­færsla sem voru gerðar á reikn­ing Ing­unn­ar Werners­dótt­ur, syst­ur bræðr­anna, en með því létu þeir fé­lagið fjár­magna kaup sín á hluta­fé Ing­unn­ar í Milest­one.

Áður höfðu þre­menn­ing­arn­ir hlotið fang­els­is­dóm vegna við­skipt­anna, en Hæsti­réttur felldi dóm í mál­inu 28. apríl í fyrra.

Karl fékk þriggja og hálfs árs dóm en Stein­grímur tveggja ára dóm. Mála­­rekstur hér­aðs­sak­­sókn­­ara snérist um að greiðslur upp á 4,8 millj­­arða króna sem runnu út úr félag­inu Milesto­ne, sem bræð­urnir áttu og stýrðu, til Ing­unnar Wern­er­s­dótt­­ur, systur þeirra, á árunum 2006 og 2007, hefðu verið umboðs­­svik. Karl, Stein­grímur og Guð­­mundur Óla­­son, fyrrum for­­stjóri Milesto­­ne, voru ákærðir fyrir að hafa tekið sam­eig­in­­lega ákvörðun um að greiða Ing­unni þessa upp­­hæð út úr Milestone til að losa hana undan eign sinni í félag­in­u. Auk þeirra voru þrír end­­ur­­skoð­endur hjá KPMG ákærðir í mál­inu vegna ætl­­aðra bók­halds­­brota.

Guðmund­ur var fram­kvæmda­stjóri Milestone á þess­um tíma sem greiðslurn­ar voru innt­ar af hendi og færðar í bók­hald og var með pró­kúru fyr­ir fé­lagið. Bræðurn­ir voru aft­ur á móti eig­end­ur þess. Seg­ir í dómn­um að þeir hafi því all­ir sam­kvæmt stöðum sín­um hjá fé­lag­inu getað bakað sér bóta­ábyrgð.

Í dómi hér­aðs­dóms segir meðal annrs: „Aðilar máls þessa hafa ekki fært sönn­ur á að at­vik hafi verið önn­ur en hér er lýst. Í þessu ljósi verður að leggja til grund­vall­ar að Milest­one ehf. hafi með fram­an­greind­um ráð­s­töf­un­um verið látið greiða kaup­verð hluta­bréf­anna sam­kvæmt samn­ing­un­um 4. des­em­ber 2005, sem hafi við kaup­in orðið eign stefndu Karls og Stein­gríms, án þess að leit­ast væri við að tryggja þá aug­ljósu hags­muni fé­lags­ins að það fengi fjár­mun­ina greidda til baka eða að öðrum kosti eitt­hvert end­ur­gjald er svar­aði kaup­verð­inu. Breyt­ir engu í því sam­bandi þó að reynt hafi verið að láta Milest­one Import Export Ltd., er laut yf­ir­ráðum stefndu Karls og Stein­gríms, taka á sig skyldu til að greiða Milest­one ehf. þessa fjár­muni til baka, enda gat krafa Milest­one ehf. á hend­ur því fé­lagi í raun ekki verið neins virði. Þess­ar ráð­staf­an­ir voru ber­sýni­lega til þess falln­ar að afla hlut­höf­um Milest­one ehf., stefndu Karli og Stein­grími, ótil­hlýði­legra hags­muna á kostnað fé­lags­ins, auk þess að fela í sér mis­notk­un á aðstöðu inn­an fé­lags­ins í við­skipt­um með hluti í því og öðrum fé­lög­um inn­an sömu sam­stæðu,“ seg­ir í dómi hér­aðs­dóms.

Ekki liggur fyrir hvort dómnum verður áfrýjað til Hæsta­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár