Alþingi verður slitið á miðvikudag

Búið er að semja um þing­lok milli allra flokka á Alþingi. Stefnt er á að þingi verði slitið á mið­viku­dag. Jafn­launa­vottun á meðal þess sem fer í gegnum þingið.

Búið er að ganga frá sam­komu­lagi um þing­lok á milli þing­flokk­anna sjö sem eiga sæti á Alþingi. Þetta var gert um helg­ina. Meðal þess sem mun fara í gegnum þingið er frum­varp um jafn­launa­vottun. Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, segir jafn­launa­vottun vera mál sem sé í raun og veru ekki til­búið, en engu að síður fari það í gegn.

Lög­fest­ing samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks og lög­fest­ing á not­enda­stýrðri per­sónu­að­stoð, NPA, eru hins vegar á meðal þeirra mála sem ekki verða kláruð á þessu þingi.

Í við­tali við Frétta­blaðið í morgun sagði Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, að afstaða stjórn­ar­and­stöð­unnar til mál­anna hafi komið algjör­lega á óvart. Hann sagð­ist ekki trúa því að stjórn­ar­and­staðan ætl­aði að bregða fæti fyrir svo mik­il­vægt mál og það ætti að vera hægur leikur fyrir vel­ferð­ar­nefnd að afgreiða málið fyrir þing­lok.

Við upp­haf þing­fundar í morgun kom Þor­steinn í ræðu­stól Alþingis og útskýrði orð sín nánar. Hann sagði þá að við sam­komu­lag um þing­lok hefði verið ákveðið að geyma málin til hausts­ins, en sam­komu­lag hefði náðst um að málin myndu bæði hljóta for­gangs­með­ferð þings­ins. „Það er ekk­ert laun­ung­ar­mál að nið­ur­staðan olli mér tals­verðum von­brigðum,“ sagði ráð­herr­ann, en að hann treysti því að það muni mynd­ast góð sam­staða í haust um það að klára málið.

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar voru óánægðir með ummæli Þor­steins í fjöl­miðlum. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, sagði ekki um nið­ur­stöðu samn­inga að ræða heldur hafi það verið sam­eig­in­legur skiln­ingur allra for­manna stjórn­mála­flokka, sem fund­uðu um þing­lok um helg­ina, að málin væru ein­fald­lega ekki til­búin. Þingið þyrfti að horfast í augu við raun­veru­leik­ann, sem væri sá að Alþingi þyrfti að vanda sig. Allir for­menn allra flokka hafi lýst því yfir að þeir væru reiðu­búnir að veita mál­unum braut­ar­gengi í haust.

„Það er eng­inn á móti því að ljúka þessum verk­efnum en það vilja allir gera það vel,“ sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hann sagð­ist helst hafa viljað fá afsök­un­ar­beiðni frá ráð­herra vegna ummæl­anna. Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, tók undir, og sagði Þorstein hafa sett stjórn­ar­and­stöð­una í þá stöðu að þurfa að verja sig. Enginn sé á móti þessum málum, þau séu ein­fald­lega ekki til­búin.

Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, sagði Þorstein þurfa að biðj­ast afsök­unar ef ekki ætti að ógna því sam­komu­lagi sem nú væri búið að ná um þing­lok.

Eld­hús­dags­um­ræður fara fram á þingi í kvöld. Þing­fundir verða svo fram á mið­viku­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár