Persónuvernd verði ekki skylt að rannsaka allar kvartanir sem berast

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur lagt fram frum­varps­drög sem miða meðal ann­ars að því að draga úr álagi á Per­sónu­vernd. Stofn­un­inni er í dag gert að kveða upp úrskurð um hverja ein­ustu kvörtun sem til hennar berst.

Helga Þórisdóttir er forstjóri Persónuverndar. Fjöldi verkefna á borði stofnunarinnar hefur aukist mikið á undanförnum árum.
Helga Þór­is­dóttir er for­stjóri Per­sónu­verndar. Fjöldi verk­efna á borði stofn­un­ar­innar hefur auk­ist mikið á und­an­förnum árum. Mynd: Skjáskot/RÚV

Áform eru uppi um að breyta lög­gjöf um per­sónu­vernd á þann veg að Per­sónu­vernd verði ekki lengur skylt að kveða upp úrskurð í öllum þeim kvört­un­ar­málum sem ber­ast til stofn­un­ar­innar, en þessi áform eru til þess ætluð að minnka álag á Per­sónu­vernd, sem hefur auk­ist á und­an­förnum árum. Frum­varps­drög frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu um þessar breyt­ingar á lögum sem varða per­sónu­vernd, og nokkrar til við­bótar, hafa verið lögð fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Í drög­unum kemur fram að íslensk lög um per­sónu­vernd gangi lengra en kveðið er á um í Evr­ópu­reglu­gerð hvað varðar skyldu Per­sónu­verndar til þess að kveða upp úrskurði um þær kvart­anir sem ber­ast.

„Með því að fella brott þá skyldu Per­sónu­verndar að rann­saka allar kvart­anir og úrskurða um þær ætti að vera mögu­legt að stytta máls­með­ferð­ar­tíma þeirra kvart­ana sem til­efni þykir að rann­saka en vegna mik­ils fjölda kvart­ana til stofn­un­ar­innar hefur máls­með­ferð­ar­tími þeirra mála um nokk­urt skeið verið langt umfram það sem getur talist ásætt­an­legt og hafa sum hver verið til með­ferðar í hátt á þriðja ár,“ segir í frum­varps­drög­unum.

[adspot]

Í stað­inn fyrir að Per­sónu­vernd rann­saki hverja ein­ustu kvörtun og kveði upp úrskurð vegna þeirra er lagt til að stofn­un­inni verði gefið rýmið til þess að ákveða sjálf hvort ráð­ist verði í rann­sókn á málum. Á móti yrði Per­sónu­vernd falið að upp­lýsa kvart­anda um fram­vindu og nið­ur­stöður máls innan hæfi­legs tíma, sem og um mögu­leik­ann á að bera ákvarð­anir og máls­með­ferð stofn­un­ar­innar undir dóm­stóla, þar með talið ákvarð­anir Per­sónu­verndar um að taka kvörtun ekki til rann­sóknar.

Fjöldi mála sem ber­ast inn til Per­sónu­verndar hefur verið í nær stöð­ugum vexti und­an­farin ár og er gert ráð fyrir því að á þessu ári ber­ist stofn­un­inni fleiri en 2.500 mál, þar af mörg kvört­un­ar­mál sem öllum þarf að ljúka með úrskurði sam­kvæmt gild­andi lögum.

Stjórn þurfi ekki að koma saman til að leggja á dagsektir

Þetta er ekki eina ákvæði per­sónu­vernd­ar­laga sem til stendur að breyta. Einnig á að breyta því hvernig Per­sónu­vernd getur lagt á dag­sektir, en sam­kvæmt lögum hefur Per­sónu­vernd heim­ild til að gera það þegar ekki er farið eftir fyr­ir­mælum sem stofn­unin gefur.

Hins vegar er í lög­unum kveðið á um að stjórn Per­sónu­verndar taki slíkar ákvarð­anir, en mat stofn­un­ar­innar og stjórnar er að „ekki sé raun­veru­leg þörf á aðkomu stjórnar við ákvarð­ana­töku um álagn­ingu dag­sekta í öllum til­vikum“ auk þess sem það geti verið „mjög þungt í vöfum“ að kalla saman stjórn­ina til að taka ákvörðun um beit­ingu dag­sekta.

Til við­bótar er svo lagt til að heim­ildir Per­sónu­verndar til að leggja dag­sektir á aðila verði rýmkaðar, og nái yfir þau til­felli þegar ekki er orðið við beiðnum stofn­un­ar­innar um upp­lýs­ingar eða aðgang að gögnum eða hús­næði.

„Eins og lögin eru nú væri þá eina úrræðið að leggja á stjórn­valds­sekt, sem telst mun meira íþyngj­andi úrræði en dag­sektir. Reynsla Per­sónu­verndar hefur sýnt að oft nægir að taka fram að stofn­unin hafi heim­ildir til að leggja á dag­sektir til að knýja hlítn­ingu við lögin eða fyr­ir­mæli stofn­un­ar­innar. Brýnt er að Per­sónu­vernd hafi þau tæki sem til þarf til að stofn­unin geti rækt hlut­verk sitt við eft­ir­lit með fram­kvæmd lag­anna. Er því lagt til að heim­ild til álagn­ingar dag­sekta í þessum til­vikum verði lög­fest,“ segir í frum­varps­drög­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár