Zúistum synjað um lóð í Reykjavík

Trú­fé­lagið Zuism lagði fram lóð­ar­um­sókn til Reykja­vík­ur­borgar í maí síð­ast­liðnum en sam­kvæmt borg­inni var ekki hægt að verða við þeirri umsókn.

Mynd af hofi Zúista af vefsíðu trúfélagsins.
Mynd af hofi Zúista af vef­síðu trú­fé­lags­ins. Mynd: www.zuism.is

Zuism trú­fé­lag óskaði eftir að fá lóð frá Reykja­vík­ur­borg en þeirri umsókn hefur verið hafnað. Þetta kemur fram í svari Reykja­vík­ur­borgar við fyr­ir­spurn Kjarnans. Á vef­síðu trú­fé­lags­ins kemur einnig fram að það hafi lagt fram lóð­ar­um­sókn til Reykja­vík­ur­borgar. Með umsókn­inni hafi fylgt teikn­ingar af fyr­ir­hug­uðu must­eri sem Zúistar vilja byggja í nálægð við mið­borg Reykja­víkur.

Samkvæmt Reykja­vík­ur­borg var skrif­stofu eigna og atvinnu­þró­unar falið af borg­ar­ráði að svara umsókn­inni og var það gert með bréfi þann 12. júní síð­ast­lið­inn.

„Ekki þótti hægt að verða við umsókn félags­ins á grund­velli 5. gr. laga um Kristni­sjóð og var á það bent að þau trú­fé­lög sem hafa fengið nið­ur­fell­ingu gatna­gerð­ar­gjalda af hálfu Reykja­vík­ur­borgar á síð­ustu árum hafi fengið þá nið­ur­fell­ingu sam­þykkta á grund­velli 2. mgr. 6. gr. laga nr. 153/2006 um gatna­gerð­ar­gjald,“ segir í svari Reykja­vík­ur­borgar.

Skortur á aðstöðu

Segir á vef­síðu trú­fé­lags­ins að það hafi vaxið mikið á síð­ustu 2 til 3 árum og þörfin fyrir hús­næði undir bæði starf­semi og athafnir orðin aðkallandi. „Mik­il­vægt er að félagið hafi gott heim­ili til að geta haldið áfram að vaxa og dafna sem og sinnt þeim mikla fjölda með­lima sem er nú þegar í félag­inu. Eins og staðan er í dag á félagið ekk­ert safn­að­ar­heim­ili og ekk­ert um fáan­legar eignir sem henta félag­inu. Talsvert er spurt um að koma á athöfnum og við­burðum og kom­ast mun færri að vegna skorts á aðstöðu.“

[links]Á vef Zúista segir að einn helsti guð sé Enlil og sé hann guð lofts og jarðar. Zigguratið muni heita í höfuð á hans helsta must­eri sem hét Ekur. Þýðing á nafn­inu þýði fjalla­hof og sé eitt af helg­ustu hofum Súmera þar sem Ekur tákni miðja jarðar þar sem helgi­staður guð­anna og jörð mæt­ist. Samkvæmt teikn­ingum muni bygg­ingin vera á tveimur hæðum ásamt hofi ofan á annarri hæð. Stór stigi muni vera alla leið­ina frá jörðu upp að hof­inu. Hofið sé helgasti staður Zúista og þar geti farið fram athafnir svo sem gift­ingar, skírnir og til­biðj­anir. Einnig sé einn vin­sæl­asti við­burður Zúista bjór og bæn þar sem gyðjan Ninkasi er heiðruð með lestri á ljóði sem sé einnig elsta bjór­upp­skrift í heimi.

Vinna að kostnaðaráætlun

Stjórn Zuism vinnur nú með verk­fræð­ingum, bygg­ing­ar­verk­tökum og hönn­uðum til að fá sem nákvæm­asta kostn­að­ar­á­ætlun og hönnun að bygg­ing­unni. „Við trúum á að nákvæmni og góður und­ir­bún­ingur muni koma í veg fyrir tafir og hindr­anir. Allar áætl­anir og teikn­ingar eru unnar að fag­að­ilum. End­an­legur kostn­aður verks­ins ræðst þó að nokkru leyti af stað­setn­ingu Zigguratsins.

Eftir mik­inn vöxt á félag­inu árið 2015 ákvað stjórnin að stofna sér­stakan Zigguratsjóð sem heldur utan um fjár­mál tengd upp­bygg­ingu og við­haldi bygg­ing­ar­innar. Frá og með 2018 mun með­limum vera boðið að sókn­ar­gjöldin renni til Zigguratsjóðsins og einnig styrkja hann og efla ennþá meira,“ segir á vef­síðu þeirra.

Meðlimum fækkar milli ára

Samkvæmt Hag­stof­unni eru nú skráðir 1.923 ein­stak­lingar í Zuism trú­fé­lag en sam­kvæmt tölum frá því í nóv­em­ber í fyrra voru 2.845 með­limir skráðir í félag­ið.

Til stendur að end­ur­greiða sókn­ar­gjöld til með­lima þeirra í ár og mun sér­stakt umsókn­ar­form vera á vef­síðu félags­ins, sam­kvæmt trú­fé­lag­inu. Í svari þeirra við fyr­ir­spurn Kjarnans stefnir það á að opna fyrir umsóknir þann 1. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár