Bjarni og Sigmundur ósammála um muninn á aflandsmálum þeirra

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að það sé eng­inn munur á máli hans og Bjarna Bene­dikts­sonar, ef fólk líti á þetta út frá prinsippum. Þetta kom fram í Íslandi í dag í kvöld.

„Ef að menn eru fyrst og fremst að líta á þetta sem prinsip-mál að þeir sem hafi verið á ein­hvern hátt viðriðnir svona félög, átt ætt­ingja sem hefur það, að þeir eigi þá að gefa póli­tík­inni frið á meðan málið er að lægja, nei, þá er ekki munur,“ sagði Sig­mundur Davíð aðspurður um málið í Íslandi í dag í kvöld. Umræðan hafi snú­ist um að aflands­fé­lög í skatta­skjólum séu ekki boð­leg á Íslandi. Hann sagð­ist samt skilja að Bjarni héldi því fram á póli­tískum for­sendum að það sé munur á málum þeirra.

Bjarni Bene­dikts­son var líka í við­tali í Ísland í dag og hann sagði að það væri grund­vall­ar­munur á málum þeirra tveggja. Ráð­herrar ættu ekki að hafa neitt aflands­fé­lag neitt nálægt sér. „Ég held að það sé óhætt að segja að það sé mik­ill grund­vall­ar­munur á því að vera sem ráð­herra ekki með neitt slíkt félag nálægt sér og það er ekki nein uppi nein spurn­ing um hags­muna­á­rekstra af nokkrum toga. Ég held að það sé hægt að segja, og nú er ég bara að lýsa minni skoðun, þegar ég horfi yfir sviðið og horfi á fréttir reyni að rýna í það hvað menn eru að reyna að draga út úr þessi og kannski ekki síst að utan, glöggt er gests augað og allt það. Þá staldra menn við það að þarna voru kröfur á slita­búin á sama tíma og rík­is­stjórnin var að vinna að lausn þeirra mála. Þetta er auð­vitað auð­vitað mik­ill grund­vall­ar­munur.“

Áhrifafólk vildi fórna Sigmundi og Bjarna

Sig­mundur Davíð sagði líka í við­tal­inu að áhrifa­fólk innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi verið að velta því fyrir sér hvernig nýta mætti aðstæð­urnar sem upp komu á síð­ustu dögum og að það hafi átt að fórna honum og fórna Bjarna Bene­dikts­syni líka. Staða rík­is­stjórn­ar­innar og hans hafi verið orðin mjög þröng.

Sig­mundur Davíð var líka spurður um fund sinn með for­seta Íslands en sagð­ist ætla að skrifa sjálfur um þann fund síðar og hlakk­aði til þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár