Stjórnarráðsstarfsmönnum fækkað um tæplega 100 frá hruni

Starfs­mönnum í Stjórn­ar­ráð­inu hefur fækkað tals­vert frá hruni. Skrif­stofu­stjórum hefur fækkað um 30 og ráðu­neyt­is­stjórum um fimm.

Stöðu­gildum í Stjórn­ar­ráð­inu fækk­aði um 85 frá árinu 2007 og til árs­ins 2015. Skrif­stofu­stjórum í Stjórn­ar­ráð­inu hefur einnig fækkað mikið, og ráðu­neyt­is­stjórum sömu­leiðis. Þetta kemur fram í svari Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við skrif­legri fyr­ir­spurn Óla Björns Kára­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Stöðu­gildi innan Stjórn­ar­ráðs­ins urðu mest 570 árið 2007, en þeim hafði fjölgað jafnt og þétt árin þar á undan. Árið 2008 fór fjöldi stöðu­gilda niður í 504, en þeim fjölg­aði upp í 532 árið 2012. Síðan þá hefur fækkað á nýjan leik, í 484 stöðu­gildi árið 2015. Ekki eru birtar tölur yfir fjölda stöðu­gilda á síð­asta ári.

Þrettán ráðu­neyt­is­stjórar voru lengst af í Stjórn­ar­ráð­inu, en þeim fækk­aði sam­hliða fækkun ráðu­neyta eftir hrun í átta ráðu­neyt­is­stjóra. Þó ráð­herrum hafi síðan fjölgað hefur fjöldi ráðu­neyta og þar með ráðu­neyt­is­stjóra hald­ist í átta.

Skrif­stofu­stjórum í Stjórn­ar­ráð­inu fækk­aði um þrjá­tíu milli áranna 2010 og 2015, fóru úr 77 tals­ins í 47.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár