Tíu bestu útilegulögin

Hver eru bestu íslensku úti­leg­u­l­ögin? Hér er það útkljáð á lista yfir topp 10 íslensk úti­leg­u­lög.

Júlí er sum­ar­leyf­is­mán­uð­ur­inn á Íslandi og fólk á öllum aldri skellir sér í úti­legu til að njóta vin­skapar og nátt­úr­unnar.

Ekkert getur ráðið örlögum góðs úti­leg­upartís eins og gít­ar­spil og sam­söngur. Það skiptir engu hvort gít­ar­inn sé falskur, ef allir eru gíraðir og kunna réttu lögin getur partíið orðið frá­bært. Það getur líka farið illa ef ekki er búið að und­ir­búa fjörið nógu vel.

[adspot]

Hér eru tíu bestu úti­leg­uslag­ar­arnir. Gott er að kunna þessi lög vel áður en ein­hverju sterku er skvett í heitt kakó og radd­böndin þeytt.

10. Rómeo og Júlía – Bubbi

Grip á GuitarParty.com

Bubbi hefur fram­leitt tón­list í ára­tugi og er fyrir löngu búinn að tryggja sér einn eða fleiri kafla í tón­list­ar­sögu Íslend­inga. Lögin hans eru mörg hver frá­bær úti­leg­u­lög sem auð­velt er að spila á gítar. Og ekki skemmir að lang flestir kunna text­ana eða geta í það minnsta raulað með. Rómeó og Júlía er hugs­an­lega það lag sem hefur ratað í flestar söng­bækur land­ans í seinni tíð.

9. Álfheiður Björk

Grip á GuitarParty.com

Frábært stemmn­ings­lag. Allir kunna við­lagið og þeir athygl­is­sjúk­ustu fá tæki­færi til að sýna sig. Mælt er með að þetta lag sé sungið þegar síga fer á seinni hluta partís­ins, fólki orðið svo­lítið kalt og tími til að hrista upp í lið­inu.

8. Pípan

Grip á GuitarParty.com

Þetta er óhefð­bundið ást­ar­ljóð en eflaust það sann­asta á þessum lista. Það þarf ekk­ert að hafa fleiri orð um það.

7. Dagný

Grip á GuitarParty.com

Stutt og gott lag. Frábært hópsöngslag, eða ein­söngslag fyrir söngv­ar­ana í hópnum sem vilja ekki að partíið stoppi. Vil­hjálmur og Ellý (bæði Vil­hjálms) gerðu frá­bæra útgáfu af þessu lagi sem hlýða má á í spil­ar­anum hér að ofan.

6. Þórsmerkurljóð

Grip á GuitarParty.com

Amma og afi sungu þetta lag í úti­legum í gamla daga. Klass­ískt úti­leg­u­lag sem verður seint þreytt.

5. Ég er kominn heim

Grip á GuitarParty.com

Vonandi hafa Íslend­ingar ekki gleymt því í fót­bolta­gleð­inni síð­asta sumar að þetta lag er upp­haf­lega eitt mesta og besta úti­leg­u­lag Íslands­sög­unnar. Ég er kom­inn heim varð að stuðn­ings­manna­lagi íslenska fót­boltalands­liðs­ins í aðdrag­anda og á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sum­arið 2016. Það kunna það þess vegna allir. Það er gaman að syngja þetta fal­lega með ást­vinum í nátt­úr­unni.

4. Óbyggðirnar kalla

Grip á GuitarParty.com

Það er kannski ekk­ert lag á þessum lista meira við­eig­andi í úti­legu (nema þú sért í Vagla­skógi) en þetta lag. Þetta lag eftir þá Magnús Eiríks­son og KK er ljúfur óður til íslenskra óbyggða sem hafa svo ægi­legt aðdrátt­ar­afl.

3. Vor í Vaglaskógi

Grip á GuitarParty.com

Hér er lagið sem stimpl­aði Kaleo í huga margra. Villi Vill átti þekkt­ustu útgáfu þessa lags þar til mos­fellska hljóm­sveitin gerði það að sínu. Þetta er við­ráð­an­legt lag fyrir alla söngv­ara, góða og slæma, unga og aldna, radd­lausa og radd­sterka, mjóróma og bassa.

2. Reyndu aftur

Grip á GuitarParty.com

Magnús Eiríks­son má auð­veld­lega skipa í frægð­ar­höll íslenskrar popptón­listar. Sam­ferða­maður hans Pálmi Gunn­ars­son fær eflaust að fylgja þar með. Reyndu aftur er ein flottasta perla Manna­korna og lag sem hægt er að syngja aftur og aftur og aftur í úti­legum.

1. Syneta – Bubbi

Grip á GuitarParty.com

Hér er besta lagið hans Bubba og þess vegna ratar það beint í efsta sætið. Þetta lag geta allir sungið og spáð í text­ann á meðan sungið er. Ljóðið fjallar um skips­brot seint í des­em­ber, heim­þrána og lífið. Ramm­ís­lenskt og gerir íslensku nátt­úr­una ein­hvern veg­inn raun­veru­legri í par­tímókinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár