Þórólfur telur „varhugavert að slaka meira á“

Sótt­varna­stofnun Evrópu og Alþjóða heil­brigð­is­stofn­unin spá auk­inni útbreiðslu kór­ónu­veirunnar nú í byrjun vetrar „og hafa hvatt þjóðir til að við­hafa áfram nauð­syn­legar sótt­varnir,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Í ljósi þró­unar far­ald­urs­ins erlendis og reynsl­unnar hér­lendis af fullri aflétt­ingu tak­mark­ana „þá tel ég var­huga­vert að slaka meira á þeim sótt­varna­að­gerðum inn­an­lands en þeim sem nú eru í gildi,“ skrifar Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í nýjasta minn­is­blaði sínu til heil­brigð­is­ráð­herra. Í því leggur hann til að núver­andi tak­mark­anir inn­an­lands gildi óbreyttar í að minnsta kosti einn mánuð til við­bótar.

Heil­brigð­is­ráð­herra tók undir þá til­lögu Þórólfs að fram­lengja inn­an­lands­að­gerðir en að þær muni gilda óbreyttar til 20. októ­ber og verði þá end­ur­skoð­aðar. Áfram verða því fjölda­tak­mark­anir í gildi sem og eins metra nánd­ar­regla auk tak­mark­ana á opn­un­ar­tíma veit­inga­húsa svo dæmi séu tekin. Síðustu daga hefur smitum fjölgað nokkuð, aðal­lega vegna hóp­sýk­ingar á Akureyri.

[adspot]

Í minn­is­blaði Þórólfs til heil­brigð­is­ráð­herra er þróun far­ald­urs­ins rakin frá því að öllum opin­berum sótt­varna­að­gerðum hér á landi var aflétt 26. júní og slakað á sýna­tökum hjá far­þegum á landa­mær­unum. Þórólfur bendir á að þessar til­slak­anir hafi verið gerðar í ljósi þess að smit voru fátíð og um 70 pró­sent þjóð­ar­innar full­bólu­sett og rétt þótti að láta reyna á hvort bólu­setn­ingin væri nægi­lega áhrifa­rík til að koma í veg fyrir útbreiðslu jafn­vel þótt ljóst væri að smit myndu koma til lands­ins með ferða­mönnum. Tveimur til þremur vikum eftir aflétt­ingu sótt­varna­að­gerða tók hins vegar smitum að fjölga, fjölgun varð sömu­leiðis á inn­lögnum á Land­spít­ala og alvar­leg veik­indi juk­ust.

Bólusettir um helmingur innlagðra

Í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins eða frá 1. júlí hafa um 5.200 ein­stak­lingar greinst smit­aðir hér á landi, 117 þurft á spít­ala­inn­lögn að halda, tutt­ugu hafa lagst inn á gjör­gæslu­deild og þrír lát­ist. „Um helm­ingur þeirra sem greindust smit­aðir og þurftu að leggj­ast inn á spít­ala var full­bólu­settur og því ljóst að smit og alvar­leg veik­indi geta sést einnig hjá bólu­settum ein­stak­lingum þó í minna mæli sé,“ skrifar Þórólfur.

Í þess­ari bylgju, heldur Þórólfur áfram, er sömu­leiðis smit og alvar­leg veik­indi algeng­ari hjá óbólu­settum börnum en sést hefur í fyrri bylgjum og hafa til þessa tvö alvar­lega veik börn lagst inn á sjúkra­hús. „Ástæður þess­arar hröðu útbreiðslu kór­ónu­veirunnar eru ekki þekktar en lík­leg­ast má rekja skýr­ing­una að stórum hluta til hins nýja delta-afbrigðis veirunnar sem er tölu­vert meira smit­andi en önnur afbrigði, veldur skæð­ari sjúk­dómi og sleppur meira undan vernd­andi áhrifum bólu­efn­anna.“

Ýmsar tilslakanir gerðar erlendis

Eftir að aðgerðir inn­an­lands og á landa­mærum voru hertar á ný í lok júlí hefur dag­legum smitum fækkað og eru þau nú um 20-60, breyti­leg eftir dag­legum fjölda tek­inna sýna. Sömu­leiðis hefur inn­lögnum á sjúkra­hús fækkað. Nú eru átta ein­stak­lingar inniliggj­andi á Land­spít­ala, þar af einn á gjör­gæslu í önd­un­ar­vél. Þórólfur fjallar svo í minn­is­blað­inu um hvað verið er að gera út í heimi í aðgerðum gegn far­aldr­inum. Hann segir að marg­vís­legar til­slak­anir hafi und­an­farið verið gerðar í ýmsum löndum, sér­stak­lega þar sem vel hefur gengið að bólu­setja. Hins vegar er mis­mun­andi hvort til­slak­an­irnar hafi leitt til auk­innar útbreiðslu en bæði Sótt­varna­stofnun Evr­ópu­sam­bands­ins (ECDC) og Alþjóða heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) spá auk­inni útbreiðslu nú í byrjun vetrar „og hafa hvatt þjóðir til að við­hafa áfram nauð­syn­legar sótt­varnir þ.á.m. fjölda­tak­mark­anir, nánd­ar­reglu og notk­unar and­lits­grímu við skil­greinda atburði,“ skrifar Þórólfur.

Í ljósi alls þessa mælir hann svo með að núver­andi aðgerðir gildi í mán­uði til við­bótar í það minnsta. Sem fyrr segir hefur ráð­herra fall­ist á fram­leng­ingu en til 20. októ­ber í stað mán­aðar líkt og sótt­varna­læknir lagði til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár