Öðruvísi húðflúrstofa ætlar að flúra fólk með sjálfsofnæmi án endurgjalds

Emilia Dungal vinnur að hóp­fjár­mögnun í gegnum Karolina Fund til að opna húð­flúr­stofu. Hún ætlar að flúra fólk með sjálfsof­næm­is­sjúk­dóma án end­ur­gjalds og gefa þeim sem vilja hylja erfið gömul húð­flúr góðan afslátt.

Húð­flúr­lista­mað­ur­inn Emilia Dungal hefur ástríðu fyrir að hjálpa öðrum. Verkefni hennar snýst um að með réttum húð­flúrum sé hægt að breyta lífi fólks. Hún hylur húð­flúr sem vísa í kyn­þátta­hatur og glæp­sam­lega for­tíð og eins ef fólk hefur sjálf­næm­is­sjúk­dóma líkt og skjall­bletti (e. Vitiligo) þá getur hún fyllt upp í með lit þar sem hann vantar. Þetta vill hún gera án end­ur­gjalds.

Þegar um er að ræða erfið gömul húð­flúr og ör sem hægt er að flúra yfir, vill hún gefa fólki góðan afslátt.

Hver er bak­grunnur þinn?

„Ég fædd­ist á Íslandi og var alin upp á Spáni, yngst fimm systk­ina. Ég byrj­aði að húð­flúra á unga aldri. Það var árið 2009 og þá var ég 17 ára. Það var ekki auð­velt að taka ákvörðun um að húð­flúrun væri mín fram­tíð, þar sem ég vissi ekki mikið um list­ina og var því mjög óákveðin. Eftir að hafa unnið á vinnu­stofum og heima, lærði ég smám saman aðferð­ina við húð­flúrun. Eins skipti miklu máli hand­leiðsla sam­starfs­manna minna. Í gegnum tíð­ina hafa aðferðir mínar við húð­flúrun og teikn­ing­arnar breyst og þró­ast. Ég hef ekki ein­angrað mig við ein­hvern einn stíl, heldur finnst mér gaman að vinna allt frá raun­sæi yfir í gamla skól­ann.“

Hvaðan kom áhugi þinn á húð­flúrun?

„Ég hann­aði mitt fyrsta húð­flúr þegar ég var 16 ára og mán­uði seinna byrj­aði vin­kona mín að flúra. Ég fann strax fyrir ákveð­inni hrifn­ingu af því hvernig vin­kona mín gerði sín eigin flúr og eftir smá umhugsun þá ákvað ég að gefa mér minn fyrsta húð­flúr­un­ar­búnað í 17 ára afmæl­is­gjöf og hefja mitt eigið húð­flúr­un­ar­ferða­lag. Ári síðar kláraði ég diplómu í húð­flúrun og hef verið að vinna í geir­anum síðan á nokkrum mis­mun­andi húð­flúr­un­ar­stofum, bæði á Spáni og á Íslandi. Núna bý ég á Íslandi og er að vinna að hóp­fjár­mögn­un­ar­verk­efni í gegnum Karolina Fund til að opna öðru­vísi húð­flúr­stofu í Reykja­vík. Verk­efnið verður opið fyrir áheitum til 5. júlí.“

[adspot]

Á hvaða hátt eru húð­flúrin þín öðru­vísi?

„Ég mun nota 30% af tekjum af hefð­bundnum húð­flúrum til að greiða kostnað við að flúra fólk með skjall­bletti og bjóða 30% afslátt til fólks sem vill hylja ör eða slæm húð­flúr til dæmis. Ég vil gera þetta til að aðstoða fólk í neyð og hjálpa því að breyta lífi sínu.“

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár