Umfangsmiklar skimanir í tengslum við smit síðustu daga

Kór­ónu­veirusmitin fjögur sem greindust í gær tengj­ast þeim sem greindust í fyrra­dag að sögn sótt­varna­læknis. Land­læknir og sótt­varna­læknir í sam­starfi við lyfja­stofnun ætla að kanna orsaka­tengsl milli bólu­setn­inga og alvar­legra veik­inda og dauðs­falla.

Fjögur kór­ónu­veirusmit greindust inn­an­lands í gær, þar af var eitt utan sótt­kvíar. Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að ein­stak­ling­arnir þrír sem greindust í gær og voru í sótt­kví voru hafi verið nýkomnir í sótt­kví. Smit gær­dags­ins tengj­ast þeim smitum sem greindust í fyrra­dag en þá greindust tveir ein­stak­lingar utan sótt­kvíar.

Þórólfur sagði á fund­inum að nokkrir tugir hafi þurft að fara í sótt­kví í kjöl­far smit­ana tveggja sem greindust í fyrra­dag. Hann sagði að umfangs­miklar skimanir stæðu nú yfir vegna smit­ana og að búast mætti við því að fleiri muni grein­ast á næstu dögum af þeim sem hafa þurft að fara í sótt­kví. Síð­ast­liðna viku hafa 17 greinst með COVID-19, þar af 14 í sótt­kví, og sagði Þórólfur því ljóst að veiran væri hér enn í sam­fé­lag­inu.

Íslensk erfðagreining skimar á landamærum

Heil­brigð­is­ráðu­neytið hefur farið þess form­lega á leit við Íslenska erfða­grein­ingu að fyr­ir­tækið taki að sér grein­ingu á sýnum á landa­mær­unum út júní­mánuð. Að sögn Þórólfs mun það létta veru­lega á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala en von er á auknum fjölda ferða­manna hingað til lands. Auknum fjölda fylgi auknar áskor­anir og því not­aði Þórólfur tæki­færið og hrós­aði starfs­fólki sem sér um sýna­tökur á landa­mær­unum fyrir vel unnin störf.

Líkt og áður er stefnan sett á að veru­lega verði hægt að létta á tak­mörk­unum, bæði inn­an­lands og á landa­mærum, um eða eftir miðjan júní. Þórólfur sagði að lík­legt megi telj­ast að búið verði að bólu­setja á milli 60 og 70 pró­sent þjóð­ar­innar þegar þar að kemur og þá verði hægt að ráð­ast í til­slak­anir. „Við erum núna á við­kvæmum tíma þar sem sam­fé­lags­legt ónæmi er ekki nægi­legt til að koma í veg fyrir alvar­legar hóp­sýk­ingar þannig að það er mik­il­vægt að við gætum okkar vel og höldum áfram að huga að ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum.“

Kanna orsakatengsl milli bólusetninga og alvarlegra veikinda og dauðsfalla

Þórólfur greindi frá því að land­læknir og sótt­varna­læknir í sam­vinnu við lyfja­stofnun væru að hefja vinnu við mat á alvar­legum atburðum sem orðið hefðu í kjöl­far bólu­setn­inga og yrðu sú vinna unnin af óháðum sér­fræð­ingum. Hann sagði að um 20 til­kynn­ingar um dauðs­föll í kjöl­far bólu­setn­inga vegna COVID-19 hefðu borist Lyfja­stofnun og um 20 til­kynn­ingar vegna blóð­sega­vanda­mála.

Hann sagði það enn óljóst hvort til­kynnt dauðs­föll og veik­indi tengd­ust bólu­setn­ingum. „Ef við skoðum grunn­tíðni viku­legra dauðs­falla og blóð­sega­vanda­mála að und­an­förnum árum þá er ekki hægt að greina neina aukn­ingu núna á und­an­förnum vikum meðan bólu­setn­ing hefur staðið yfir. Það er alla­vega ánægju­legt í sjálfu sér að Við erum ekki að sjá neina aukn­ingu sem að gæti skýrst af bólu­setn­ing­unum en auð­vitað er ekki hægt að úti­loka orsaka­sam­hengi hjá ein­staka ein­stak­lingum og þetta viljum við skoða betur,“ sagði Þórólfur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár