Aldrei fleiri týndir krakkar

53% fleiri leit­ar­beiðnir hafa borist lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu það sem af er ári en að með­al­tali síð­ustu tvö ár.

Lögreglunni bárust 32 beiðnir um leit að týndum börnum eða ungmennum í mars.
Lög­regl­unni bár­ust 32 beiðnir um leit að týndum börnum eða ung­mennum í mars. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur aldrei fengið fleiri beiðnir um leit að týndum ung­mennum síðan verk­efnið hófst hjá lög­regl­unni í nóv­em­ber 2014. Þetta kemur fram í nýbirtri afbrota­töl­fræði lög­regl­unnar fyrir mars 2017.

Alls bár­ust 32 beiðnir um leit að týndum börnum og ung­mennum í mars, sam­an­borið við 19 beiðnir í febr­úar. Sé það borið saman við með­al­tal síð­ustu þriggja mán­aða þá er fjöld­inn þó nokkur, eins og sjá má á með­fylgj­andi mynd.

„Það sem af er ári hafa borist 53 pró­sent fleiri leit­ar­beiðnir en bár­ust að með­al­tali síð­ustu tvö árin á undan,“ segir í skýrsl­unni sem lög­reglan birti á vefnum í dag.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru engar aug­ljósar skýr­ingar á því hvers vegna svo mörg leit­ar­verk­efni lentu á borði lög­regl­unnar í mars. Mars­mán­uður sé vana­lega nokkuð þungur mán­uður hvað þetta varðar.

„Nei, ég hef ekki neinar skýr­ingar á þessu,“ skrifar Guð­mundur Fylk­is­son aðal­varð­stjóri í svari til Kjarnans um það hvernig standi á því að svo margra barna og ung­menna hafi verið leitað.

705 til­kynn­ingar bár­ust um hegn­ing­ar­laga­brot í mars og eru það nokkru fleiri til­kynn­ingar en bár­ust í febr­úar. Heim­il­is­af­brota­málum fjölg­aði nokkuð á milli mán­aða og skýrir það aukn­ingu í fjölda ofbeld­is­brota sem komu inn á borð lög­regl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár