Þúsundir skrifa undir, mótmæla og styrkja Reykjavik Media

Yfir 20.000 manns hafa skrifað undir áskorun til for­sæt­is­ráð­herra um að segja af sér. Reykja­vik Media hefur safnað um 70 pró­sent af tak­marki sínu á Karolina Fund eftir gær­kvöldið. Yfir 7.000 manns ætla að móta­mæla á Aust­ur­velli í dag.

Alþingi kemur saman klukkan 15 í dag og fram að því funda þingflokkar og stjórnarandstaðan um stöðu mála. Búist er við fjölmennum mótmælum á Austurvelli klukkan 17 þar sem afsögn forsætisráðherra er krafist.
Alþingi kemur saman klukkan 15 í dag og fram að því funda þing­flokkar og stjórn­ar­and­staðan um stöðu mála. Búist er við fjöl­mennum mót­mælum á Aust­ur­velli klukkan 17 þar sem afsögn for­sæt­is­ráð­herra er kraf­ist. Mynd: Hjalti Axel Yngvason

Söfnunin tók stökk í gærkvöldi

Rúmlega 22.200 manns hafa skrifað undir áskorun til Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um að segja af sér. Söfnunin, sem er titluð „Sig­mundur Davíð, þér er hér með sagt upp störfum!“ 

Vefsíðan fór í loftið 26. mars og fór nokkuð hratt af stað. Þó hægð­ist á fjölda und­ir­skrifta næstu daga, en eftir þátt Kast­ljóss­ins í gær settu rúm­lega 5.200 manns nafn sitt á list­ann. Í dag hafa safn­ast tæp­lega 2.000 und­ir­skriftir.

24 studdu Sigmund í gær

Önnur und­ir­skrift­ar­söfnun, „Við styðjum Sigmund Davíð”, var sett á lagg­irnar á sama tíma. Rúmlega þús­und manns hafa skrifað undir hana. Fjöldi und­ir­skrifta var mestur fyrstu þrjá dag­ana, en und­an­farna daga hefur hægt á henni. 24 skrif­uðu undir í gær eftir Kastljós og átta hafa skrifað undir í dag.

Fjölmenn mótmæli í dag

Boðað hefur verið til mót­mæla á Aust­ur­velli klukkan 17 í dag. Fyrir Kast­ljós­þátt gær­kvölds­ins höfðu um það bil tvö þús­und manns boðað komu sína. Nú, um 15 klukku­stundum síðar, hafa 7.700 sagst ætla að koma á mót­mælin á Facebook og um 6.300 sýna við­burð­inum áhuga. Mótmælin bera yfir­skrift­ina Kosn­ingar strax.

Fjáröflun Reykjavik Media gengur vel

Kast­ljós­þáttur gær­kvölds­ins var unn­inn í sam­starfi við Reykja­vik Media og ICIJ, alþjóð­leg sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna, upp úr mesta gagna­leka sem um getur í sög­unni. Reykja­vik Media, undir for­ystu Jóhann­esar Kr. Krist­jáns­sonar blaða­manns hóf söfnun á Karolina Fund í gær­kvöld eftir þátt­inn og ekki sól­ar­hring síðar hafa safn­ast meira en 77 pró­sent af tak­mark­inu, rúm­lega 30.000 evrur, eða rúm­lega 4,2 millj­ónir íslenskra króna.

Erlendir fjöl­miðlar eru und­ir­lagðir af fréttum um gagna­lek­ann, sem hefur verið kall­aður Pana­mapa­pers. Gögnin koma úr lög­fræði­stofu á Panama, Mossack Fonseca. Erlendar fréttir af íslenska for­sæt­is­ráð­herr­anum eru yfir­leitt þar efst á baugi, ásamt Pútín Rúss­lands­for­seta. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár