Mál gegn Hannesi Smárasyni fellt niður vegna klúðurs

Hæsti­réttur felldi í dag niður mál sér­staks sak­sókn­ara gegn Hannesi Smára­syni í hinu svo­kall­aða Sterling-máli. Ástæðan er seina­gangur hjá rík­is­sak­sókn­ara, sem skil­aði ekki grein­ar­gerð í mál­inu fyrr en eftir að frestur til þess var lið­inn. Samt hafði verið veittur auka­frestur til þess að skila grein­ar­gerð. Hannes hafði verið sýkn­aður í mál­inu í hér­aðs­dómi.

Þegar máls­gögnin bár­ust Hæsta­rétti voru meira en ell­efu ár liðin frá ætl­uðu broti, nærri átta ár frá upp­hafi rann­sóknar og rúmir sautján mán­uðir frá því að rík­is­sak­sókn­ari gaf út áfrýj­un­ar­stefnu til að fá hnekkt hér­aðs­dómi um sýknu. „Ákæru­valdið hefur ekki veitt hald­bærar skýr­ingar á því hvers vegna það tók svo langan tíma að útbúa máls­gögn og skila þeim til Hæsta­réttar. Þegar máls­gögnin loks bár­ust rétt­inum voru liðin meira en ell­efu ár frá ætl­uðu broti, nærri átta ár frá upp­hafi rann­sóknar og rúmir sautján mán­uðir frá því að rík­is­sak­sókn­ari gaf út áfrýj­un­ar­stefnu til að fá hnekkt hér­aðs­dómi um sýknu ákærða. Þessar gíf­ur­legu og óút­skýrðu tafir á mál­inu gáfu enn rík­ari ástæðu en endranær til þess að rekstur máls­ins færi ekki frekar úr skorðum hvað máls­hraða varðar,“ segir í dómi Hæsta­réttar.

Hannes var í lok októ­ber 2013 ákærður fyrir fjár­drátt fyrir að láta milli­færa tæp­lega þrjá millj­arða króna af banka­reikn­ingi FL Group í úti­búi Danske Bank í New York og inn á nýjan banka­reikn­ing FL Group hjá Kaup­þingi í Lúx­em­borg sem Hannes hafði látið stofna fimm dögum áður. Sam­kvæmt sér­stöku umboði hafði Hannes fullt og ótak­markað umboð til ráð­staf­ana á fjár­munum félags­ins á þeim banka­reikn­ing.

Fjár­mun­irnir voru sama dag færðir frá nýja banka­reikn­ingnum yfir á banka­reikn­ing Fons eign­ar­halds­fé­lags, í eigu Pálma Har­alds­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­son­ar. Þar var fjár­hæð­inni skipt í danskar krónur og í kjöl­farið lagðar inn á félagið Fred. Olsen & Co., þáver­andi eig­anda flug­fé­lags­ins Sterl­ing Air­lines. Millj­arð­arnir þrír mynd­uðu því stóran hluta af þeim fjórum millj­örðum króna sem Fons greiddi fyrir kaup á Sterl­ing á þessum tíma.

Á þessum tíma var FL Group almenn­ings­hluta­fé­lag í eigu rúm­lega fjögur þús­und aðila.

Á meðal þeirra gagna sem lágu til grund­vallar ákærunni eru gögn frá Lúx­em­borg sem sýndu að fé FL Group hafi ratað inn á reikn­ing Fons. Það fé var síðan notað til að kaupa Sterl­ing. Þess­ara gagna var aflað með rétt­ar­beiðni frá Lúx­em­borg og vegna þeirra var Hannes aðal­lega ákærður fyrir fjár­drátt, en til vara fyrir umboðs­svik.

Mál­inu var vísað frá hér­aðs­dómi í mars 2014 með þeim rökum að hátt­semin sem Hann­esi var gefin að sök í ákærunni hafi ekki verið lýst með full­nægj­andi hætti. Sér­stakur sak­sókn­ari áfrýj­aði nið­ur­stöð­unni til Hæsta­réttar felldi úrskurð hér­aðs­dóms og lagði fyrir hér­aðs­dóm að taka málið til efn­is­með­ferð­ar. Hann var svo sýkn­aður í hér­aðs­dómi sem fyrr segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár