Aðstreymi verkafólks erlendis frá stór ástæða hærri skatttekna

Stað­greiðslu­skyldar greiðslur voru 1.525 millj­örðum króna árið 2017 og hafa aldrei verið hærri. Ýmislegt bendir til þess að stór hluti tekju­aukn­ing­ar­innar sé vegna aðstreymis verka­fólks erlendis frá til lands­ins.

Erlendum ríkisborgurum á Íslandi hefur fjölgað mikið á örfáum árum.
Erlendum rík­is­borg­urum á Íslandi hefur fjölgað mikið á örfáum árum. Mynd: Pexels

Stað­greiðslu­skyldar greiðslur í rík­is­sjóð, sá grunnur sem stað­greiðsla er reiknuð af, hafa aldrei verið jafn háar og þær voru árið 2017. Þær juk­ust um 125 millj­arða króna á milli ára. Alls voru stað­greiðslu­skyldar greiðslur 1.525 millj­örðum króna á árinu 2017. Þetta kemur fram í grein eftir Pál Kolbeins rekstr­ar­hag­fræð­ing í nýjasta tölu­blaði Tíundar, frétta­blaði rík­is­skatt­stjóra.

Þar segir einnig að tekju­aukn­ingin sé að miklu leyti til­komin vegna fólks sem greiddi stað­greiðslur í fyrsta skipti árið 2017 „og því bendir ýmis­legt til þess að stór hluti tekju­aukn­ing­ar­innar hafi verið vegna aðstreymis verka­fólks til lands­ins.“

Í grein­inni segir að um 77,4 pró­sent aukn­ing­ar­innar hafi orðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, mest í Reykja­vík, eða á Reykja­nesi, en þar hefur erlendum rík­is­borg­urum fjölgað mun hraðar en ann­ars staðar á land­inu.

25 prósent aukning á fjölda erlendra íbúa

Á árinu 2017 voru aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar sem fluttu til Íslands 7.910 fleiri en brott­flutt­ir. Alls fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum á Íslandi um 25 pró­sent á síð­asta ári. Þeim hefur fjölgað um 81 pró­sent frá byrjun árs 2011 og eru nú 37.950 tals­ins. Þá eru ekki taldir með þeir sem koma hingað á vegum t.d. starfs­manna­leiga.

Öll íbúa­fjölgun í Reykja­vík í fyrra vegna erlendra rík­is­borg­ara sem fluttu til borg­ar­inn­ar. Borg­ar­búum fjölg­aði um 2.800 á árinu 2017 og voru 126.100 um nýliðin ára­mót. Erlendum rík­is­borg­urum sem búa í höf­uð­borg­inni fjölg­aði á saman tíma um 3.140 og erum nú 15.640 tals­ins. Erlendum íbúum höf­uð­borg­ar­innar hefur fjölgað um 70 pró­sent frá byrjun árs 2012.

Um 36 pró­sent allra launa voru greidd í Reykja­vík í fyrra og 39,6 pró­sent aukn­ing­ar­innar sem átti sér stað í launum, alls um 50 millj­arðar króna, átti sér stað innan marka hennar.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu búa 23.200 erlendir rík­is­borg­ara og þeim fjölg­aði um 4.280 á árinu 2017. Það þýðir að erlendum rík­is­borg­urum sem búa í Kópa­vogi, á Sel­tjarn­ar­nesi, í Garða­bæ, Hafn­ar­firði, Mos­fellsbæ og í Kjósa­hreppi fjölg­aði sam­tals um 1.140 á síð­asta ári. Launa­hækk­anir í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur voru heldur minni en í höf­uð­borg­inni í fyrra, en þar juk­ust laun um 36 millj­arða króna í fyrra. Það sam­svarar um 28,5 pró­sent heild­ar­hækk­unar launa.

Reykjanes í sérflokki

Mestur upp­gangur í land­inu á árinu 2017 var á Reykja­nesi. Í sveit­ar­fé­lög­unum Reykja­nesbæ, Grinda­vík, Sand­gerði, Garði og Vatns­leysi­hreppi juk­ust stað­greiðslu­skyldar greiðslur um 12,8 pró­sent milli ára. Alls hækk­uðu launa­greiðslur um 12 millj­arða króna í fyrra, mest í Reykja­nesbæ þar sem þær juk­ust um 15,2 pró­sent.

Um síð­ustu ára­mót bjuggu 3.650 erlendir rík­is­borg­arar í Reykja­nes­bæ. Þeim fjölg­aði um 1.070 á síð­asta ári, eða um 41 pró­sent. Alls búa 16.350 í Reykja­nes­bæ, sem þýðir að 22,3 pró­sent íbúa sveit­ar­fé­lags­ins eru erlendir rík­is­borg­ar­ar. Íbúum þess fjölg­aði sam­tals um 1.117 á árinu 2017. 96 pró­sent þeirrar fjölg­unar er vegna erlendra rík­is­borg­ara sem fluttu í sveit­ar­fé­lag­ið.

Ástæðan er fyrst og síð­­­ast sú mikla aukn­ing í umsvifum sem orðið hefur á Kefla­vík­­­ur­flug­velli sem stað­­settur er á Reykja­nesi. Ferða­­mönnum sem heim­­sækja Íslands hefur enda fjölgað úr um 500 þús­und árið 2010 og í um 2,3 millj­­ónir í fyrra, sam­­kvæmt spám.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár