Norður-Kórea spýta í lófana vegna þvingana öryggisráðsins

Brugðist hefur verið við auknum við­skipta­þving­unum á Norður-Kóreu með hefð­bundnum yfir­lýs­ingum.

Norður-Kórea hefur hraðað þróun vopnabúrs síns á undanförnum árum.
Norður-Kórea hefur hraðað þróun vopna­búrs síns á und­an­förnum árum. Mynd: EPA

Norður-Kórea hefur brugð­ist við við­skipta­þving­un­unum sem sam­þykktar voru í örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna á mánu­dag­inn, með hefð­bundnum yfir­lýs­ingum um að nú myndu stjórn­völd spýta í lóf­ana og efla þróun kjarna­vopna norð­urs­ins.

Örygg­is­ráðið sam­þykkti sam­hljóða að herða við­skipta­þving­anir á hið ein­angr­aða ríki á norð­ur­hluta Kóreu­skag­ans vegna sjöttu og lang stærstu kjarn­orku­til­raun þeirra. Sam­an­burður gervi­tungla­mynda af yfir­borði fjalls­ins sem notað var sem til­rauna­stöð fyrir vetn­is­sprengj­una sem sprengd var 3. sept­em­ber síð­ast­liðin, sýnir að kraftur sprengj­unnar hefur hnikað til landi og sent af stað jarð­skriður.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna hefur sagt þessar ákvarð­anir örygg­is­ráðs­ins um að herða þving­anir of smá skref í þeirri veg­ferð að þvinga Norður-Kóreu til þess að hætta kjarn­orku­vopna­brölti.

Upp­haf­leg til­laga Banda­ríkj­anna var mun harð­orð­ari og skil­yrt­ari en sú til­laga sem örygg­is­ráðið sam­þykkti að lokum. Tillagan var linuð til þess að afla mætti stuðn­ings Kína og Rúss­lands, helstu við­skipta­ríkja Norður-Kóreu. Upp­haf­leg til­laga gerði ráð fyrir að olíu­út­flutn­ingur til Norður-Kóreu yrði bann­aður, en Kína selur lang mest af þeirri olíu sem brennd er í Norður-Kóreu.

Örygg­is­ráðið ákvað á mánu­dag að banna útflutn­ing textíl­vara frá Norður-Kóreu og setja hámark á magn elds­neytis sem hægt væri að selja til norð­urs­ins. Þá er orðið ólög­legt fyrir erlend fyr­ir­tæki að eiga í við­skipta­sam­starfi með norð­ur­kóreskum stofn­unum.

Utan­rík­is­ráðu­neyti Norður-Kóreu hefur sagt við­skipta­þving­an­irnar vera í and­stöðu við alþjóð­leg rétt­indi ríkja til þess að vernda sjálft sig. Þving­an­irnar væru þess vegna til þess að „kæfa ríkið og þjóð­ina algjör­lega með algerum efn­hags­legum hindr­unum“.

„Alþýðu­lýð­veldið Kórea mun tví­efla kraft­inn sem fer í að standa vörð um full­veldi lands­ins og til­vistar­rétt og við­halda friði og öryggi heims­hlut­ans,“ sagði í yfir­lýs­ingu norð­ur­kóreskra stjórn­valda.

Han Tae Song, sendi­full­trúi Norður-Kóreu gagn­vart Sam­ein­uðu þjóð­unum í Genf í Sviss, sagði stjórn­völd í Norður-Kóreu vera til­búin að nota hvaða ráð sem er. „Þær aðgerðir sem gripið verður til munu valda Banda­ríkj­unum mesta sárs­auka sem landið hefur nokkru sinni fundið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár