Þrjár 19 ára stelpur stofnuðu eitt efnilegasta fótboltalið landsins

„Við höfðum ekki eftir neinu að bíða,“ segir knatt­spyrnu­konan og lög­fræð­ing­ur­inn Jórunn María Bachmann Þor­steins­dóttir, ein þeirra ungu kvenna sem krafð­ist þess að stofn­aður yrði meist­ara­flokkur kvenna í fót­bolta hjá Gróttu. Liðið keppti nýverið í úrslita­leik um sæti í Bestu deild kvenna, aðeins átta árum eftir stofnun.

Fyrsta æfingin
Fyrsta æfingin Hópur þeirra stelpna sem mættu á fyrstu æfingu meist­ara­flokks fyrir átta árum síðan. Mynd: Aðsend

Þrjár 19 ára stelpur, upp­aldar á Sel­tjarn­ar­nesi, tóku höndum saman vet­ur­inn 2015 og ósk­uðu eftir fundi með stjórn knatt­spyrnu­deildar Gróttu þar sem þær lögðu til að stofn­aður yrði meist­ara­flokkur kvenna í knatt­spyrnu. Í dag, átta árum síðar, er liðið eitt það efni­leg­asta á Íslandi.

Jórunn María Bachmann Þor­steins­dóttirSamhliða því að æfa með meist­ara­flokki þjálf­aði Jórunn María yngri flokka Gróttu í 12 ár.

Stelp­urnar þrjár, í dag ungar konur, eru Jórunn María Bachmann Þor­steins­dóttir, Karen Sif Magn­ús­dóttir og Tinna Bjarkar Jóns­dóttir. 

„Við kláruðum annan flokk haustið 2015. Þá var ekki til neinn meist­ara­flokkur en okkur lang­aði ekki að hætta að æfa fót­bolta,“ segir Jórunn María. Vin­kon­urnar eru allar með stórt Gróttu­hjarta og tóku ekki annað í mál en að spila fyrir upp­eld­is­fé­lagið. 

Mættu mótlæti

Jórunn María, Karen Sif og Tinna skrif­uðu niður nöfn á fyrr­ver­andi fót­bolta­stelpum sem þeim datt í hug að gætu haft áhuga á að æfa með meist­ara­flokki, ef hann yrði stofn­aður. „Við fórum með þennan lista og reyndum að sann­færa stjórn­ina um að það væri kom­inn tími á að stofna meist­ara­flokk kvenna, og við værum með nægi­lega stóran hóp til að gera það.“

Formaður stjórnar knatt­pyrnu­deildar Gróttu, Hilmar Sig­urðs­son, átti dóttur í öðrum flokki og sitj­andi gjald­keri var faðir Karenar, Magnús Gunn­ars­son. „Það hjálp­aði til að þeir höfðu hags­muna að gæta,“ segir Jórunn María og rifjar upp hvernig þeir hjálp­uðu stelp­unum að sækja um fjár­magns­styrki svo hægt væri að fara af stað með æfingar.

Þrátt fyrir stuðn­ing­inn frá þeim innan stjórnar Gróttu fundu stelp­urnar fyrir mót­læti. „Sumum fannst ekki tíma­bært að stofna meist­ara­flokk kvenna, það voru ein­hverjir sem vildu bíða í nokkur ár eftir að það kæmu fleiri stelpur upp. En við höfðum ekki eftir neinu að bíða,“ segir Jórunn María.

Meist­ara­flokkur Gróttu árið 2016Liðið sitt fyrsta keppn­is­sumar ásamt þjálf­urum og stjórn­ar­með­limum.

Heppin með pabba

Þóra Kristín Jóns­dóttir er fædd 1994 og situr nú í meist­ara­flokks­ráði kvenna hjá Gróttu en hún spil­aði sjálf með lið­inu í þónokkur ár.

Þóra Kristín Jóns­dóttirSpilaði með meist­ara­flokki Gróttu og situr í dag í meist­ara­flokks­ráði.

Þóra Kristín man vel eftir því þegar eng­inn fót­bolti var í boði fyrir stelpur á Sel­tjarn­ar­nesi en áhugi hennar á íþrótt­inni vakn­aði snemma. Hún seg­ist hafa verið heppin að eiga föður sem sat í stjórn Gróttu og gat hjálpað dóttur sinni að kom­ast inn í fót­bolt­ann með því að leggja til að stofn­aður yrði kvenna­fót­bolti hjá félag­inu. 

„Eitt sum­arið var ákveðið að í fyrsta skipti fengju stelpur að æfa. Þá voru liðs­menn úr meist­ara­flokki karla eða meist­ara­flokki kvenna hjá KR fengin til að þjálfa okkur. Þannig að á sumrin spil­uðum við stelp­urnar fót­bolta en á vet­urna var ég oft bara ein með strák­unum,“ útskýrir Þóra Kristín. 

Jórunn María á minn­ingu úr grunn­skóla þegar knatt­spyrnu­starfið var að byrja. „Bróðir vin­konu okkar, Atli Freyr Sveins­son, gekk í bekki þegar við vorum að klára 6. bekk og hvatti okkur til að mæta á æfingar, því að hann lang­aði að litla systir sín myndi byrja að æfa fót­bolta. Hann þjálf­aði okkur það sumar og bless­un­ar­lega skellti ég mér á æfingu. Mig grun­aði ekki þá hvað sú ákvörðun yrði afdrifa­rík.“ 

Faðir Þóru Krist­ínar átti þátt í stofnun kvenna­starfs­ins og þakkar dóttirin fyrir að hafa átt ákveð­inn pabba sem gat komið ferl­inu af stað. „Ég er bara frek og heppin með pabba sem var með ein­hvers konar völd þarna inni og gat sett þetta á lagg­irnar. Við vorum tvær, ég fædd 1994 og önnur fædd 1996, sem vorum báðar með pabba í stjórn. Þeir voru í raun­inni í stjórn út af strák­unum sínum en þeir ákváðu að stofna fót­bolta­flokka fyrir okkur líka.“ 

„Þeir voru í raun­inni í stjórn út af strák­unum sínum en þeir ákváðu að stofna fót­bolta­flokka fyrir okkur líka“
Þóra Kristín Jóns­dóttir

Fyrir komandi kynslóðir

Þegar Þóra Kristín frétti af því að Jórunn María og fleiri stelpur vildu stofna meist­ara­flokk Gróttu árið 2015 var ákvörð­unin um hvort hún ætti að vera með ekki flókin. Hún var að sjálf­sögðu til í slag­inn.

Til að byrja með hitt­ust stelp­urnar einu sinni í viku, fengu bolta lán­aða hjá strák­unum og vesti hjá yngri flokk­unum. Eftir nokkra leit fannst loks­ins þjálf­ari sem hafði trú á lið­inu og vildi leggja sitt af mörkum til að þær næðu árangri.

„Ég var nátt­úr­lega búinn að vera að þjálfa heil­lengi, átti stráka í Gróttu og spil­aði sjálfur þarna í nokkur ár þannig að mér var ekk­ert alveg sama um þetta verk­efni,“ segir Guðjón Krist­ins­son, fyrsti þjálf­ari liðs­ins. „Eftir að það var talað við mig sló ég til. Mig lang­aði að hjálpa stelp­unum af stað og koma á grunni sem hægt væri að byggja á fyrir kom­andi kyn­slóðir.“ 

Guðjón þjálf­aði liðið í þrjú ár. Hann lýsir áskor­un­inni sem þol­in­mæð­is­verk­efni enda var að mörgu að huga til þess að geta búið til gott lið. „Maður þurfti að vera með raun­hæf og skýr mark­mið. Það var ekki að fara að ger­ast yfir nótt að við yrðum snill­ingar í fót­bolta.“ Fyrir Guðjóni skipti máli að koma formi á liðið, búa til menn­ingu í kringum það og útlista hvað þyrfti að ger­ast svo hægt væri að ná árangri. 

Jórunn María rifjar upp eft­ir­minni­legar myndir sem voru teknar af lið­inu fyrstu æfing­una í des­em­ber 2015 og á fyrstu æfing­unni með Guðjóni sem var 15. jan­úar 2016. „Það er ótrú­lega fyndið að horfa til baka á þessa myndir, þetta er svo til­vilj­un­ar­kenndur hópur og það voru alls ekki allar sem héldu áfram.“

Fyrsta æfing liðs­insMeist­ara­flokkur Gróttu á sinni fyrstu æfingu.

Fyrsta keppn­is­sumar liðs­ins reynd­ist erfitt hvað fót­bolt­ann varðar. Stelp­urnar töp­uðu leikjum yfir­leitt með 10 eða 12 mörkum og voru fáar á æfingum. Þóra Kristín segir liðs­heild­ina þrátt fyrir það hafa verið góða, enda stelp­urnar ánægðar með að fá að spila fót­bolta. Jórunn María tekur undir það og segir það skemmti­lega minn­ingu þegar liðið tap­aði 3-2 fyrir Tinda­stóli í bik­ar­leik og fagn­aði þeim úrslitum mjög. 

Grótta - Tinda­stóllStelp­urnar töp­uðu 3-2 á móti Tinda­stóli í bik­ar­leik en voru ánægðar með úrslitin.

Það var ástríðan fyrir fót­bolt­anum og upp­eld­is­fé­lag­inu sem veitti stelp­unum þann drif­kraft sem þurfti til að halda áfram að spila. Jórunn María segir það líka hafa verið ákveðið jafn­rétt­is­sjón­ar­mið að berj­ast fyrir til­urð og árangri meist­ara­flokks­ins. „Af hverju ættu strák­arnir að fá að halda áfram að spila en ekki við?“ 

„Af hverju ættu strák­arnir að fá að halda áfram að spila en ekki við?“
Jórunn María Bachmann Þor­steins­dóttir

Boltinn fer að rúlla

Með hverju árinu sem leið varð alvaran meiri, umgjörðin betri og stuðn­ing­ur­inn við liðið jókst. 

Þóra Kristín rifjar upp hvernig til­finn­ing það var að fara allt í einu að vinna leiki í stað þess að tapa þeim með 10 marka mun. „Þá fór maður að taka þessu af meiri alvöru og mæta á æfingar á laug­ar­dags­morgnum. Við fengum líka meira fjár­magn frá Sel­tjarn­ar­nesbæ og vorum heppnar með að for­maður knatt­spyrnu­deildar Gróttu varð líka í raun­inni for­maður meist­ara­flokks kvenna. Hann og gjald­keri knatt­spyrnu­deild­ar­innar voru báðir með dætur í meist­ara­flokknum þannig að þeir voru tveir pabbar og stjórn­ar­menn sem voru okkur til halds og trausts,“ segir Þóra Kristín og á þar við Hilmar Sig­urðs­son og Magnús Gunn­ars­son. 

Jórunn María man eftir því að tíma­bilið 2018, aðeins tveimur árum eftir að þær byrj­uðu að æfa, var fólk farið að ræða hvort það ætti ekki að setja enn þá meira púður í liðið. Guðjón hafði lokið sínum þremur árum eftir tíma­bilið og við tók Magnús Örn Helgason. „Gaui var búinn að gera frá­bæra hluti með liðið og Maggi tók við verk­efn­inu þarna um haustið 2018. Með Magga komu ýmsar nýj­ungar eins og hlaupa­mælar og hlut­irnir urðu ansi pró. Það voru líka efni­legar stelpur að koma upp úr yngri flokk­unum á sama tíma sem hjálp­uðu lið­inu mikið,“ segir Jórunn María.

SigurGróttu­stelpur ásamt starfs­fólki liðs­ins sum­arið 2019.

Sumarið 2019 komst Grótta upp í Lengju­deild en féll aftur niður tveimur árum seinna. Liðið stóð þá á tíma­mótum því að næsta verk­efni hjá Magnúsi Erni var að taka við þjálfun U16 lands­liðs kvenna. Pétur Rögn­valds­son hafði verið aðal­þjálf­ari ásamt Magnúsi Erni og sá um liðið næstu tvö ár. Hann lýkur störfum eftir tíma­bilið 2023.

Fyrirmyndir og framtíðin

Í dag spilar meist­ara­flokkur kvenna Gróttu í Lengju­deild­inni og er þar í 4. sæti deild­ar­innar. Nú í sumar settu stelp­urnar sér mark­mið um að vera í efri hluta deild­ar­innar. Þann 9. sept­em­ber síð­ast­lið­inn spil­uðu þær svo úrslita­leik við Fylki um sæti í Bestu deild. Leik­ur­inn fór 3-2 fyrir Fylki sem skor­uðu sig­ur­markið á 84. mín­útu.

Jórunn María, sem hefur verið með lið­inu frá upp­hafi, finnur vel fyrir þeirri breyt­ingu sem hefur orðið á lið­inu og umgjörð­inni í kringum það. „Þegar við byrj­uðum voru þetta stelpur sem lang­aði að æfa fót­bolta, hafa gaman, hitta vin­konur og keppa. En núna er þetta orðið alvöru meist­ara­flokkslið. Leikmenn mæta hálf­tíma fyrir æfingar, æfa í eins æfinga­fötum og eru með fót­bolt­ann í fyrsta sæti. Umgjörðin er líka fyrsta flokks.“

Aðspurð út í leik­inn á móti Fylki segir Jórunn María: „Við fórum allar inn í þennan leik með það hug­ar­far að við myndum vinna, kom­ast upp í Bestu deild og skrifa sögu félags­ins.“ Þrátt fyrir tapið tekur hún ýmis­legt jákvætt út úr leiknum. „Arn­fríður Auður Arn­ars­dóttir og Rebekka Sif Brynjars­dóttir, sem skor­uðu okkar mörk, eru 15 ára og 14 ára upp­aldar Gróttu­stelpur. Ég held að liðið hafi svo­lítið sannað fyrir öllum sem komu að horfa hvað við getum. Það var bæði góð liðs­frammi­staða og ein­stak­lings­frammi­staða hjá mörgum.“

Þóra Kristín hefur sjálf fundið fyrir miklum og vax­andi áhuga meðal stelpna á Sel­tjarn­ar­nesi á fót­bolta. „Eins og oft er venjan hjá Gróttu þá hélt ég einu sinni vin­kvenna­æf­ingu þegar ég þjálf­aði 5. flokk kvenna. Þá mega stelpur mæta með vin­konur sínar með sér. Það voru 23 stelpur skráðar í flokk­inn en mættu 40 á æfing­una. Ég vissi bara ekki hvað ég átti að gera við mig,“ segir hún og hlær létti­lega.

Bæði Jórunn María og Þóra Kristín telja meist­ara­flokk kvenna í Gróttu einnig mik­il­vægan svo að yngri stelpur eigi sér fyr­ir­myndir innan félags­ins og geti sett sér mark­mið um að spila með lið­inu einn dag­inn.

LiðiðMeist­ara­flokkur Gróttu sum­arið 2023.

Þóra Kristín segir: „Stelp­urnar í þriðja flokki æfa nú með meist­ara­flokki kvenna, meðal ann­ars til þess að þær sjái að það er eitt­hvað sem getur tekið við eftir yngri flokk­ana. Með meist­ara­flokknum getum við reynt að koma í veg fyrir þetta brott­fall sem á sér svo oft stað í kringum annan og þriðja flokk, eða í kringum mennta­skóla­ald­ur­inn.“ Hún bætir við að liðið sé einnig komið með grjót­hart sjálf­boða­starfs­fólk sem hjálpar til við sjúkra­bör­urnar, sjopp­una eða miða­söl­una. Þetta skiptir allt máli vegna þess að „ef þú hættir í fót­bolta þá hætt­irðu samt ekki að vera Gróttu­maður eða Gróttu­kona“. 

Hvað varðar fram­tíð liðs­ins segir Jórunn María stefn­una setta á Bestu deild­ina. „Ég held að eng­inn hafi þorað að segja það opin­ber­lega fyrir þetta tíma­bil en miðað við þessa frammi­stöðu í sumar þá held ég að stefnan verði klár­lega sett á Bestu deild­ina sum­arið 2025.“

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár