Kallar eftir svörum frá ráðherra um nýjar höfuðstöðvar Landsbankans

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, spyr fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um áform og kostnað við nýjar höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans við Aust­ur­höfn í Reykja­vík.

Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins.
Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, hefur kallar eftir svörum frá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um nýjar höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans við Aust­ur­höfn í Reykja­vík. Í fyr­ir­spurn Birgis á Alþingi er meðal ann­ars spurt um hver sé áætl­aður bygg­ing­ar­kostn­aður nýju höf­uð­stöðv­anna og hvort að fjár­mála­ráð­herra, sem hand­hafi hluta­bréfs rík­is­sjóðs í bank­anum, telji bygg­ing­una skyn­sam­lega fjár­fest­ingu.

Spyr hvað má gera ráð fyrir mikilli fækkun starfsmanna á næstu tíu árum

[links]Nýjar 16.500 fer­metra höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans, „Klett­ur­inn“, rísa nú við Aust­ur­höfn, á einni af dýr­ustu lóðum lands­ins. Áætlaður kostn­aður við höf­uð­stöðv­arnar nemur níu millj­örðum króna og stefnt er að því bank­inn muni flytja inn í þær annað hvort 2021 og 2022. Lands­bank­inn er í 98,2 pró­sent eign skatt­greið­enda.

Birgir hefur beðið um svör við ell­efu spurn­ingum um höf­uð­stöðv­arnar. Þar á meðal hve stór hluti bygg­ing­ar­innar verður leigður út undir annað en starf­semi Lands­bank­ans og hvað vænt­an­leg útleiga hús­næð­is­ins mun greiða niður stóran hluta stofn­kostnað þess.[adspot]

Auk þess spyr hann hver þróun starfs­manna­fjölda bank­ans hafi verið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá árinu 2011 og hvað má gera ráð fyrir að starfs­mönnum fækki mikið á næstu 10 árum vegna breyt­inga í banka­starf­semi.

Bankasýslan hafði enga aðkoma að ákvörðuninni um að reisa bygginguna

Birgir spyr jafn­framt hvort að fyr­ir­huguð fram­kvæmd sé gerð með sam­þykki Banka­sýslu rík­is­ins og hvort að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem hand­hafi hluta­bréfs rík­is­sjóðs í bank­anum, telji bygg­ing­una skyn­sam­lega fjár­fest­ingu.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið heldur á eign­ar­hlutum skatt­greið­enda í Lands­banka og Íslands­banka en felur Banka­sýslu rík­is­ins að fara með þá. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans í sept­em­ber til for­stjóra Banka­sýslu rík­is­ins um hvort stofn­unin hafi haft ein­hverja aðkomu að þeirri ákvörðun að reisa nýju höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans var svar for­stjór­ans, Jóns Gunnars Jóns­sonar, ein­falt: „nei“.

Enn fremur spyr Birgir hvort að nú­ver­andi höf­uð­stöðvar bank­ans í Aust­ur­stræti séu seldar eða hvort að rík­is­sjóður yfir­tekur þær og hver sé áformin um með­höndlun list­skreyt­inga innan þess banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bankamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár