Segir bann við umskurði aðför að rétti gyðinga og birtingarmynd óvildar

Kári Stef­áns­son gagn­rýnir frum­varp sem bannar umskurð drengja.

Kári Stefánsson
Kári Stef­áns­son Mynd: Skjáskot

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, segir að frum­varp sem banni umskurð drengja ekki aðeins fela í sér aðför að rétti gyð­inga heldur myndi fel­ast í lög­fest­ingu þess birt­ing­ar­mynd óvildar í garð þeirra.

Þetta kemur fram í grein sem Kári skrifar í Frétta­blaðið í dag.

Í grein sinni segir hann gyð­inga, sem hann hafi mikla reynslu af sam­starfi við á sviði lækna­vís­inda, hafa sett sig í sam­band við hann að und­an­förnu, og lýst yfir áhyggjum af því að Íslandi ætli sér að banna umskurð drengja. „Lög sem þessi myndu í prinsipp­inu gera það ólög­legt að vera Gyðingur á Íslandi vegna þess að umskurð­ur­inn (brit milah) er órjúf­an­legur hluti af sjálfs­mynd Gyðinga. Hann er lík­am­legt tákn sam­bands­ins milli guðs og Gyðinga,“ segir Kári.

Hann segir auk þess að lögin, ef þau yrðu að veru­leika, myndu vega að rétti for­eldra til að taka ákvarð­anir fyrir hönd barna sinna. „Lög sem þessi vegi að rétti for­eldra til þess að taka ákvarð­anir fyrir hönd barna sinna sem hefur verið höndl­aður sem allt að heil­agur á Íslandi fram til þessa. Íslenskt rétt­ar­kerfi hefur verndað rétt for­eldra til þess að taka ákvarð­anir sem vega ótrú­lega miklu meira að heilsu barna þeirra heldur en umskurður pilt­barna. Til dæmis má nefna að for­eldrum sem til­heyra Vottum Jehóva hefur hald­ist uppi að meina læknum að gefa börnum þeirra blóð þótt líf þeirra hangi á spýt­unni vegna þess að þau hafa trúað því að sá hrein­leiki sem glat­ist við blóð­gjöf­ina sé meira virði en aukin geta til þess að flytja lífs­nauð­syn­legt súr­efni til líf­færa barns­ins. Og það er litið svo á að for­eldrar hafi lög­bund­inn rétt til þess að reykja í kringum korna­börn sín og neyta áfengis og haga sér á ýmsan þann máta sem býr til hættu fyrir heilsu barns­ins,“ segir Kári.

Þá segir hann flytj­endur frum­varps­ins ýkja stórum hætt­una af umskurði pilt­barna. „Í því sam­bandi má benda á að 80% pilt­barna í Banda­ríkj­unum eru umskorin og eru því í kringum 130 millj­ónir karl­manna í Banda­ríkj­unum sem hafa lifað aðgerð­ina af og 4,5 millj­ónir sem eru umskornar á ári hverju. Ég vann sem læknir í Banda­ríkj­unum í tvo ára­tugi og hitti aldrei fyrir mann sem hafði lent í vand­ræðum út af umskurði,“ segir Kári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár