Las Vegas í Nice

Þegar ég bjó í París fannst dap­ur­legt að sjá varla eina ein­ustu jóla­seríu og jóla­skraut í gluggum í heima­húsum. Nánast und­an­tekn­ing að svalir væru skreyttar og ekki vant­aði hand­riðin úr málmi á fjöl­býl­is­hús í París. Svo sann­ar­lega breyt­ing frá ofskreyttu Íslandi. Auðvitað er eins og að heim­sækja ævin­týra­heim að ganga eftir Champs-Elysée breið­göt­unni um jólin sem Frakkar af mik­illi hóg­værð kalla fal­leg­ustu breið­götu í heimi. Trén eru skreytt þús­und ljósa og jóla­mark­aður á torgi um mið­bik göt­unnar. Versl­anir eru einnig skreyttar eins og torg víða um borga.

Þetta var á þeim árum þegar ekki var beint flug heim yfir vetr­ar­mán­uð­ina frá París og ég fór frá Gare de l´Est lest­ar­stöð­inni til Lúx­em­borgar til að ná í flug Flug­leiða heim. Í aust­ur­hluta Frakk­lands var heldur meira um skreytt tré í görðum að nor­rænum hætti og ekki að ástæðu­lausu að fræg­asti jóla­mark­aður Norð-Austur-Frakk­landi sé í Strass­borg. Eftir því sem norðar er komið er kald­ara og þar snjóar og því meiri jólastemn­ing eins og þekk­ist heima á Íslandi. Seinna eftir flutn­ing­inn til Nice var svo sem ekki við neinu sér­stöku að búast hér enda aper­tíf stundum drukk­inn úti á svölum á jóla­dag fyrir jólamat­inn. Stað­reyndar var öll önnur þegar jólin 2011 nálg­uð­ust og jóla­ljósin á hinum fjöl­mörgu svölum hér í Suðrinu fóru að skjóta upp koll­inum.

Suðrið sem ég kalla stundum Villta Suðrið í sam­an­burði við Villta Vestrið í Ameríku er nokkuð sér­stakt. Hér er nefni­lega ekki aðeins hærra hita­stig heldur sömu­leiðis blóð­hiti þegar eitt­hvað bjátar á. Ekki óal­gengt að sjá hnefa bíl­stjóra á lofti þegar veg­far­andi hefur farið yfir á grænu göngu­ljósi og bíl­stjór­inn nærri því keyrt yfir veg­far­and­ann. Allt þeim gang­andi að kenna! Það er eins og það séu ein­hver ósýni­leg landa­mæri hér fyrir ofan Frönsku Ríver­í­una og Mið­jarð­ar­hafs­strönd­ina sem á sér ýmsar birt­ing­ar­myndir. Í hugum margra er kvik­mynda­há­tíðin í Cannes og síð­kjólar, Mónakó og casínó sem kemur fyrst upp í hug­ann en veru­leik­inn er nokkuð ólíkur þegar litið er á líf almenn­ings í Nice svo ekki sé minnst á úthverfin.

Hér í landi er tölu­verður sjá­an­legur stétta­munur milli þeirra sem hafa ein­hverja menntun. Einnig milli þeirra sem búa í stærri borgum og á minni stöðum. Merki­legt að bera saman við Ísland þar sem eng­inn munur er á þeim sem búa í þétt­býli eða dreif­býli. Þessi munur er mjög áþreif­an­legur hér Syðra. Í Nice sést það til dæmis á klæðn­aði fólks, sér­stak­lega kvenna. Hér er gjarnan hver silki­húfan upp af annarri. Ekkert er betra en að blanda saman tveimur, þremur hlé­barða­mynstrum í sama „lúkkið“ eða þá bæði sem­el­íu­steinum og pall­í­ettum, allt full­komnað með glimmer í kringum augum og glitr­andi blóma­spennu í hárið. Á tíu fingur þarf tíu hringi og svo má gjarnan sjá pils með kögri og notað með jakka með kögri í stíl og jafn­vel hand­taskan sömu­leiðis. Vel klætt fólk sést minna í mið­borg­inni en í flestum frönskum borgum sem ég hef komið til. Efnaðir fara annað.

En hvers vegna að ræða klæðnað kvenna í tengslum við jóla­skreyt­ingar? Jú, einmitt vegna þess að þær eru önnur birt­ing­ar­mynd af þessum stíl eða eigum við að leyfa okkur sem Íslend­ingar sem skreyta af smekk­leg­heitum að tala um smekk­leysu. Í Nice er reglan að blanda saman sem flestu líkt og í klæðn­aði. Þar má finna upp­lýst dýr og snjó­karla, langar slöngur vafðar um hand­rið með ljósum, ljósa­skilti með „Joyeux noël“. ser­íur í öllum regn­bog­ans litum og auð­vita blikkar allt með stressandi takti. Ekki er óal­gengt að finna fimm til sex mis­mun­andi ser­íur á sömu svölum og í sitt­hverjum litnum. Teldist lík­lega glæpur eða tísku­slys á Íslandi. Fyr­ir­bærið að íbúar í fjöl­býl­is­húsi taki sig saman og hafi eins svala­skreyt­ingar er algjör­lega óþekkt hér. Punkt­ur­inn yfir I-ið er svo oft jóla­sveinn sem er hengdur upp í stiga utan á sval­irnar líkt og hann sé að mæta með gjafir í poka.

Í fimm ár hef ég reynt að kenna Nice-verjum hvernig Íslend­ingar gera þetta og set upp ein­litar óblikk­andi jóla­ser­íur en hingað til hefur það ekki erindi sem erf­iði og því bar­áttan fyrir fal­legri jóla­skreyt­ingum í heima­húsum í Nice lík­ust Don Kíkóte í stríði hans við vind­myllur. Eða eins og Frakkar myndu segja „að pissa í fiðlu“. Veit ekki hvort að merk­ingin er í lík­ingu við íslenska mál­tækið ,„að pissa upp í vind­inn“. En þá er bara að ylja sér við minn­ingar af hvítum jólum á Íslandi þar sem fann­hvít mjöll skreytir upp­lýst tré og ekk­ert blikkar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár