Hvíta húsið lét hræsnara heyra það á Twitter

Viðbrögð Hvíta húss­ins við gagn­rýni þing­manna Repúblikana­flokks­ins á afskrifun náms­lána hafa vakið verð­skuld­aða athygli.

Fjölmargir hafa fagnað aðgerðum Biden í þessum efnum.
Fjöl­margir hafa fagnað aðgerðum Biden í þessum efnum. Mynd: EPA

Rík­is­stjórn Joes Biden Banda­ríkja­for­seta til­kynnti á dög­unum áform sín um að afskrifa hluta náms­lána meiri­hluta Banda­ríkja­manna, en um er að ræða efn­ingu á einu helsta kosn­inga­lof­orði for­set­ans. Um er að ræða end­ur­skipu­lagn­ingu á lána­greiðsl­unum almennt sem á að gagn­ast þeim sem eiga erf­ið­ast með að greiða náms­lán sín og felst stærsta aðgerðin í því að afskrifa 10 þús­und Banda­ríkja­dali af náms­lánum allra sem þéna minna en 125 þús­und dali á ári. Til að setja upp­hæð­ina í sam­hengi hljóðar með­al­náms­lán fólks sem lokið hefur námi í Banda­ríkj­unum upp á 25 þús­und dali.

Fjöl­margir hafa fagnað aðgerðum Biden í þessum efnum þó mörgu sam­flokks­fólki hans þyki betur mega ef duga skal. Tilkynnt var um aðgerð­irnar nú um þremur mán­uðum áður en þing­kosn­ingar fara fram í Banda­ríkj­unum og þykja þær lík­legar til þess að auka við stuðn­ing Demókra­ta­flokks­ins. Þingmenn Repúblikana­flokks­ins hafa reynt að klóra í bakk­ann með því að gagn­rýna aðgerð­irnar, og nota þá meðal ann­ars þá rök­semda­færslu að ósann­gjarnt sé að skatt­pen­ingar verka­fólks séu not­aðir til þess að greiða upp skuldir mennt­aðra.

Hið minnsta sex þing­menn úr röðum Repúblikana­flokks­ins hafa verið háværir í gagn­rýni sinni á sam­fé­lags­miðlum og í sjón­varpi, en Hvíta húsið hefur vakið mikla athygli fyrir að benda á ákveðna hræsni í gagn­rýni þing­mann­anna á Twitter-aðgangi sínum. Um er að ræða þing­menn­ina Marjorie Taylor Greene, Vern Buchanan, Mike Kelly, Kevin Hern, Matt Gaetz og Markwayne Mullin, en það sem þau eiga sam­eig­in­legt er að hafa fengið afskrifað hund­ruð þús­unda doll­ara, nú eða millj­ónir, af lánum sem þau fengu frá banda­ríska rík­inu í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

Um var að ræða svokölluð PPP (Paycheck Protection Program) lán sem komið var á fót í valda­tíð Donalds Trump og áttu að hjálpa ákveðnum fyr­ir­tækjum og sjálf­stætt starf­andi ein­stak­lingum að halda í við launa­kostnað og var ætlað að koma í veg fyrir atvinnu­leysi. Þeim sem sögðu ekki upp starfs­fólki og lækk­uðu ekki laun þess bauðst svo að fá lánin afskrifuð að hluta til eða öllu leyti. Úrræðið hefur hlotið mikla gagn­rýni og er ekki talað hafa skilað til­ætl­uðum árangri, auk þess sem spurn­ing­ar­merki hefur verið sett við það hvers vegna stjórn­mála­menn gátu tekið út slíkt lán.

PPP verk­efnið kost­aði 953 millj­arða Banda­ríkja­dala, en til sam­an­burðar hefur Hvíta húsið til­kynnt að áætl­anir um að afskrifa náms­lán muni kosta 24 millj­arða á ári. Fjöl­margir hafa fagnað því hvernig Hvíta húsið brást við gagn­rýni þing­mann­anna og telja ljóst að Biden hafi ráðið til sín ungt og rétt­sýnt fólk til að sinna sam­fé­lags­miðlum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár