Íslenskar þingkonur í fararbroddi

Hlutfall kvenna á Alþingi er 48%, sem gerir að verkum að Ísland er það ríki innan EES svæð­is­ins sem næst kemst jöfnum kynja­hlut­föllum á þingi. Hlut­fallið er lægst í Ung­verja­landi, þar sem tólf pró­sent þing­manna eru konur.

Lilja Alfreðsdóttir og Svandís Svavarsdóttir eru tvær af þrjátíu konum sem kjörnar voru á Alþingi í haust.
Lilja Alfreðs­dóttir og Svandís Svav­ars­dóttir eru tvær af þrjá­tíu konum sem kjörnar voru á Alþingi í haust. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hlutfall kvenna á þingi er hærra á Íslandi en í öllum öðrum ríkjum sem til­heyra EES-svæð­inu og umsókn­ar­ríkjum ESB. Þetta sýna tölur frá Evr­ópu­sam­band­inu.

Konur eru 48 pró­sent þing­manna hér á landi, en 30 konur voru kjörnar á þing í kosn­ing­unum í októ­ber síð­ast­liðnum, sem eru fleiri konur en nokkru sinni fyrr.

Með­al­hlut­fall kvenna á þingi hjá Evr­ópu­sam­bands­ríkj­unum 28 er 28 pró­sent, og 72 pró­sent karlar. Hæst er hlut­fallið innan ESB í Svíþjóð, 46 pró­sent, en þar á eftir koma Finnland og Belgía með 42 pró­sent.

Þegar litið er til umsókn­ar­ríkja að Evr­ópu­sam­band­inu, er hlut­fallið hæst í Makedóníu, 35 pró­sent, og það er 34 pró­sent í Serbíu. Í Svart­fjalla­landi er hlut­fall kvenna 23 pró­sent en í Tyrk­landi 15 pró­sent.

Hjá hinum EES-ríkj­unum tveimur, Noregi og Liechtenstein, er hlut­fallið ólíkt. 40 pró­sent norskra þing­manna eru konur en 20 pró­sent í Liechtenstein.

Á botn­inum í kynja­jafn­rétti á þingi er Ung­verja­land, þar sem aðeins einn af hverjum tíu þing­mönnum eru konur. Þar á eftir er Rúmenía, þar sem hlut­fall kvenna á þingi er tólf pró­sent. Konur eru svo þrettán pró­sent þing­manna á Möltu, 16 pró­sent í Lett­landi, 18 pró­sent í Grikk­landi og 19 pró­sent í Króatíu og Búlgaríu.

Mikið var rætt um hlut­skipti kvenna í íslenskum stjórn­málum fyrir síð­ustu kosn­ingar, ekki síst í Sjálf­stæð­is­flokknum. Þar þóttu konur bera skarðan hlut frá borði í nokkrum próf­kjörum, sem varð til þess að í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, kjör­dæmi for­manns­ins og for­sæt­is­ráð­herr­ans Bjarna Bene­dikts­sonar, var upp­röðun á lista breytt. Bryndís Har­alds­dóttir var færð upp í annað sætið og var eina konan úr því kjör­dæmi sem náði kjöri fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Ef kynja­hlut­föllin hjá flokknum hefðu verið jöfn hefði Alþingi verið skipað fleiri konum en körlum í fyrsta sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár