Fimm vopn sem fyrst litu dagsins ljós í fyrri heimsstyrjöld

Fyrri heim­styrj­öldin færði okkur miklar hörm­ungar. Ný vopn litu dags­ins ljós, sem höfðu mikil áhrif á stríðið.

Á síð­asta ári, nánar til­tekið í nóv­em­ber, var þess minnst að 100 ár eru liðin frá því að byss­urnar þögn­uðu á víg­stöðv­unum. Fyrri heims­styrj­öldin hefur mögu­lega, meðal nútíma­fólks, fallið nokkuð í skugg­ann af síð­ari heims­styrj­öld­inni. Þó eru margir sagn­fræð­ingar sem myndu hik­laust telja þá síð­ari vera skil­getið afkvæmi hinnar fyrri.

Fyrri heims­styrj­öldin er stundum talið vera fyrsta „nútíma“ stríðið. Það er vel þekkt að taktík og tækni hald­ast ekki alltaf i hendur í hern­aði. Ýmsir her­for­ingjar í byrjun stríðs­ins töldu að hún yrði háð eins og ein­kenndi orr­ustur nítj­ándu aldar: Herir myndu mæt­ast á einum stað og berj­ast þar til yfir lyki. Það eru einkum tvö vopn sem báru hit­ann og þung­ann af blóðsút­hell­ingum fyrri heims­styrj­aldar: Fall­byssan og vél­byssan. Gegn þessum byssu­kjöftum voru þús­undir manna sendir yfir einskis­manns­landið og voru því skilj­an­lega brytj­aðir niður. Því varð til það þreyti­stríð sem ein­kenndi skot­grafa­hernað styrj­ald­ar­innar. Þessa patt­stöðu reyndu menn að brjóta upp á ýmsan máta og láta sér detta í hug ný víg­tól sem gætu nýst við það verk­efni. Hér verða talin upp fimm vopn sem annað hvort, fyrst litu dags­ins ljós í því stríði, eða voru fyrst notuð í ein­hverjum mæli þar.

1. Skriðdreki

Hug­myndin að bryn­vörðu tæki sem gæti hrist af sér kúlna­regn og brot­ist gegnum víg­línur and­stæð­ing­anna varð reyndar til áður en heims­styrj­öldin braust út. Ýmsir hern­að­ar­sér­fræð­ingar höfðu t.d. látið sig dreyma um ein­hvers­konar „land­skip“ sem líkt­ist stál­klæddum her­skipum en athöfn­uðu sig á landi, frekar en sjó. Vanda­málið var bara hvernig slíkt tæki ætti að hreyfast úr stað. Rit­höf­und­ur­inn H. G. Wells hafði ríkt ímynd­un­ar­afl og í smá­sögu sinni Járn­slegnu land­skipin (e. The Land Ironclads) frá 1903, lýsti hann einmitt tækjum sem voru nokk­urs konar skrið­drekar. Árið 1911 reyndi aust­ur­ríski her­for­ing­inn Günther Burstyn að fá fjár­magn til að hanna vél sem væri bryn­varin og með fall­byssu í turni ofan á öku­tæk­inu. Þessum turni átti svo að vera hægt að snúa í ýmsar áttir til að skjóta úr byss­unni. En Burstyn hafði ekki erindi sem erf­iði. Í austur-ung­verska hernum var ekki talin þörf á slíku tæki enda voru eflaust ekki margir sem sáu fyrir sér að styrj­öldin mikla sem von væri á yrði frá­brugðin orr­ustum 19. aldar, þar sem hið glæsta ridd­ara­lið réði lögum og lofum. Svipað við­horf ríkti hjá öðrum herjum sem urðu í aðal­hlut­verki í stríð­inu mikla. Annað kom á dag­inn og ridd­ara­liðið reynd­ist algjör tíma­skekkja og var, rétt eins og fót­göngu­lið­arnir, brytjað niður af rjúk­andi vél­byssu­kjöftum.

Er í ljós kom hvers kyns staða var upp komin í styrj­öld­inni, fóru ýmsir að leita í þessar hug­myndir og árið 1916 hvíldi mikil leynd yfir send­ingu frá Bret­landi á víg­stöðv­arnar. Til að reyna að koma í veg fyrir að Þjóð­verjar kæmust að því hvað þetta væri, var sagt að verið væri að senda stóra vatns­tanka á víg­stöðv­arnar. Enn þann dag í dag er skrið­drek­inn því kall­aður Tank í ensku. Þessir bresku skrið­drekar voru afar stórir, þungir og hæg­fara. Þeir tóku fyrst þátt í orr­ustu við Somme í Frakk­landi þann 15. sept­em­ber 1916. Margir þeirra bil­uðu og einnig kom í ljós að bryn­klæðn­ingin var ekki nógu þykk. En þeir þóttu þó hafa sýnt nægi­lega getu svo ákveðið var að halda áfram með fram­leiðslu þeirra. Það var ekk­ert grín að vera í áhöfn skrið­dreka í fyrri heims­styrj­öld. Hávaðinn var ærandi og svo fer­legur fnykur að það leið oft yfir menn af súr­efn­is­leysi. Hitinn var oft á tíðum alveg óbæri­legur og gat farið upp í 50°C. Menn lærðu þó að vinna við þetta og lærðu einnig af mis­tök­unum. Í orr­ust­unni við Cambrai í nóv­em­ber 1917 tókst skrið­drek­unum að brjót­ast í gegn um víg­línu Þjóð­verja og mark­aði það í raun end­ann á skot­grafa­stríð­inu. Frakkar byggðu einnig skrið­dreka en þeim hugn­að­ist ekki þessir stóru og þungu bresku drekar. Renault skrið­drek­inn franski var lít­ill og aðeins tveir í áhöfn en hann var einnig fljótur að sanna sig.

2. Orrustuflugvélar

Líklega sáu fáir fyrir þær miklu breyt­ingar sem flug­vélin átti eftir að hafa á hernað og allt fram að seinni heims­styrj­öld máttu her­for­ingjar berj­ast við skrif­finna í ráðu­neytum sem voru ekki sann­færðir um mik­il­vægi flug­vél­ar­innar og höfðu í raun ekki þekk­ingu til að ráðskast með slíkar ákvarð­anir. Ýmsir sagn­fræð­ingar telja t.d. að vel­gengi Breta í orr­ust­unni um um Bretland sé ekki síst að þakka sköru­legri fram­göngu hers­höfð­ingj­ans Hugh Dowding sem var óþreyt­andi í bar­áttu sinni við að efla orr­ustu­véla­flota Breta.

Flug­vélin var ekki eina loft­farið sem nýtt var í fyrri heims­styrj­öld en einnig var not­ast við loft­belgi og loft­skip (eins og t.d. hið þýska Zeppelin). Í fyrstu voru öll þessi loft­för notuð í njósn­a­skyni, m.a. til að kom­ast að því hvar stór­skota­lið óvin­ar­ins væri stað­sett og fylgj­ast með liðs­flutn­ingum sem gætu bent til þess að árás væri yfir­vof­andi. Fljót­lega var farið að nota flug­vélar í árás­ar­skyni, til að ráð­ast á skot­mörk á jörðu niðri. Einhvern veg­inn varð að finna leið til að skjóta niður sprengju – og könn­un­ar­vélar and­stæð­ings­ins en loft­varna­byssur þess tíma voru óná­kvæmar og ollu litlum skaða. Þar með fædd­ist hug­myndin að sér­stakri flug­vél sem hefði það sem aðal­verk­efni að skjóta niður önnur loft­för. Orr­ustu­vélin var fædd.

3. Eiturgas

Eflaust eitt ógeð­felldasta vopn sem leit dags­ins ljós í þessum hræði­lega hild­ar­leik. Í seinni heims­styrj­öld­inni var ekki not­ast við það. Notkun þess var erfið enda hafði vind­ur­inn áhrif og gasið fór ekki í mann­grein­ar­á­lit. Mönnum var einnig í fersku minni hryll­ingar fyrri heims­styrj­aldar og hefur það mögu­lega haft áhrif á það að gasið var ekki notað í seinni heims­styrj­öld. Eiturgas hafði reyndar verið bannað með alþjóða­lögum sem sett voru árið 1907 en því miður fór eng­inn eftir því er heims­styrj­öldin braust út. Það voru Þjóð­verjar sem nýttu það fyrst árið 1914. Þótt allir væru dauð­hræddir við þetta vopn þá hafði það lítil hern­að­ar­leg áhrif. Í raun er aðeins ein orr­usta í allri heims­styrj­öld­inni þar sem segja má með vissu að gasið hafi skipt sköpum: Í orr­ust­unni við Caporetto 1917, þar sem Ítalir og Aust­ur­rík­is­menn börð­ust, hafði gasið mikil áhrif á ítalska her­inn sem beið afhroð.

4. Kafbátur

Hug­myndin að þessu vopni er eldri og nokk­urs­konar kaf­bátur var meira að segja not­aður í banda­ríska frels­is­stríð­inu 1776. Það var þó ekki fyrr en í fyrri heims­styrj­öld sem þetta vopn kom til skjal­anna, eins og við þekkjum það í dag. Í byrjun heims­styrj­ald­ar­innar, í lok júlí 1914, voru ýmsir innan breska flot­ans ekki sann­færðir um að nota mætti kaf­báta til að sökkva stórum skipum. Það breytt­ist þann 5. sept­em­ber sama ár er þýskur kaf­bátur sökkti breska her­skip­inu HMS Pat­hf­inder. Talið er að aðeins um 18 af 270 manna áhöfn hafi kom­ist lífs af. Kaf­bát­ur­inn hafði sannað sig sem stór­hættu­legt og áhrifa­mikið vopn. Þegar yfir lauk höfðu kaf­bátar Þjóð­verja sökkt svo mörgum skipum sem sam­svarar um 13 millj­ónum tonna. Óvinir Þjóð­verja börð­ust hetju­lega gegn kaf­bátaógn­inni og um helm­ingur kaf­báta­flota þeirra hvarf í hafið, ásamt um 5000 kaf­báts­mönnum sem sneru ekki lif­andi úr þessum kalda hild­ar­leik á haf­inu. Það voru fyrst og fremst Þjóð­verjar sem not­uð­ust við kaf­báta í fyrri heims­styrj­öld, m.a. vegna þess að breski flot­inn var mun öfl­ugri en sá þýski.

5. Eldvarpa

Annað mjög ógeð­fellt vopn. Ólíkt gas­inu var það notað einnig í seinni heims­styrj­öld. Sér­stak­lega í kyrra­hafs­stríði Banda­ríkja­manna og Japana en jap­anskir her­menn leynd­ust oft í hellum og gjótum og var eld­varpan notuð til að brenna allt sem fyrir var áður en her­menn fóru inn til að kanna hvort ein­hver leynd­ist þar. Í fyrri heims­styrj­öld voru það Þjóð­verjar sem fyrst nýttu þetta hættu­lega vopn. Þó það væri öfl­ugt og ylli mik­illi hræðslu meðal her­manna þá var það örð­ugt í notkun og hafði ekki telj­andi áhrif. Það var aðal­lega notað af þýska hernum þótt Frakkar og Bretar nýttu það einnig í ein­hverjum mæli. Eld­vörpuna bar einn maður og gat hann sent frá sér eld­straum sem náði allt að 18 metrum. Þetta var sér­lega hættu­legt starf því það var alltaf hætta á því að tank­ur­inn á baki manns­ins gæti sprungið og vegna þess að þetta var sér­lega illa liðið vopn, þá ein­beittu her­menn sér að því að drepa eld­varpar­ann sem fyrst. Líftími þeirra var oft­ast ekki langur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár