1063. spurningaþraut: Þorskastríð og Knatte, Fnatte og Tjatte?

Fyrri auka­spurn­ing:

Í hvaða borg er húsið á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Þorska­stríð nokkur voru háð á sjónum við Ísland með hléum frá 1958 til 1976. Hver var aða­l­and­stæð­ingur Íslands í þessum stríðum?

2.  En íslensku varð­skipin þurftu líka að glíma við aðra þjóð, part af þessum tíma, og t.d. klippa veið­ar­færi aftan úr tog­urum frá þessu landi líka. Hvaða land var þetta?

3.  Hvað var íslenska fisk­veiði­lög­sagan færð mikið út í fyrsta áfanga 1958?

4.  Bræður þrír ganga undir ýmsum nöfnum. Á einum stað kall­ast þeir til dæmis Knatte, Fnatte og Tjatte. Hvað köllum við þessa bræður?

5.  En á hvaða tungu kall­ast þeir Knatte, Fnatte og Tjatte?

6.  Frá hvaða landi er hinn vin­sæl­asti Budweiser-bjór?

7.  Í hvaða frægu höll er hinn svo­nefndi Spegla­salur — sá eini sanni?

8.  Á þriðju öld fyrir Krist var Ashoka nokkur afar áhrifa­mik­ill keis­ari í svo­nefndu Máría-ríki sem teygði sig um mikið svæði ... hvar?

9.  Gana­ískur lands­liðs­maður í fót­bolta karla, Christian Atsu, lést í síð­asta mán­uði, aðeins 31 að aldri. Hann hafði leikið með liðum í Hollandi, Portúgal, Spáni, Englandi, Tyrk­landi, Sádi Arabíu auk þess að leika með Bletta­tígrunum í heima­landi sínu. Hvað varð Atsu að bana svo ungum?

10.  Í hvaða Evr­ópu­landi er Gitanas Nauseda for­seti?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða tölvu­leik er þetta skjá­skot?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Bretland.

2.  Vestur-Þýska­land.

3.  Út í 12 mílur.

4. Ripp, Rapp og Rupp.

5.  Sænsku.

6.  Banda­rískur. Fyr­ir­tækið var stofnað i St.Louis, Missouri.

7. Versölum.

8.  Indlandi.

9.  Hann fórst í jarð­skjálft­anum mikla í Tyrk­landi í byrjun febr­úar.

10.  Litháen.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Húsið á efri mynd­inni er Gug­gen­heim lista­safnið í Bilbao.

Skjá­skotið á neðri mynd­inni er úr tölvu­leiknum Minecraft.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Emil Kristjánsson skrifaði
    Það hefði nú varla verið hægt að finna óheppilegri bjórtegund til að spyrja um. Hefði verið spurt um Tuborg, Amstel eða Peroni, hefði aðeins eitt rétt svar komið til greina.
    Hins vegar deila 2 framleiðendur um vörumerkið "Budweiser" og hafa gert í um 100 ár.
    Sumstaðar á tékkneski framleiðaninn einkarétt á nafninu og þar er sá ameríski seldur sem Bud, en þar sem sá ameríski á nafnið er sá tékkneski seldur sem Czechvar.
    Hér á landi er ekkert slíkt til staðar og báðir bjórarnir seldir sem Budweiser.
    Hins vegar er framleiðslan í Tékklandi, án nokkurs vafa, all nokkru eldri.
    1
  • LCV
    Lowana Compton Veal skrifaði
    Budweiser bjór er upphaflega frá þorpinu Budvar í Tékkóslóvagíu, Bandaríkjamenn keyptu framreiðslurétt og reyndu að stela honum af Tékkum. Það tókst ekki , en í krafti auðmagns hafa þeir gert sig breiða. Kv. Siggi Þóriss.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár