Elon Musk að hætta sem forstjóri Twitter eftir að notendur kusu hann afgerandi burt

Í gær bauð Elon Musk, eig­andi Twitter og einn rík­asti maður í heimi, not­endum að kjósa um hvort hann ætti að halda áfram sem for­stjóri. Nið­ur­staðan var afger­andi. Þær tæp­lega 18 millj­ónir sem kusu vildi Musk burt úr stólnum.

Elon Musk keypti Twitter í lok október.
Elon Musk keypti Twitter í lok októ­ber. Mynd: EPA

Elon Musk mun segja af sér sem for­stjóri Twitter. Musk, einn rík­asti maður í heimi, setti óvænt könnun í gang á sam­fé­lags­miðl­inum í gær þar sem hann spurði hvort hann ætti að halda áfram að stýra Twitter. Þar sagð­ist hann enn­fremur ætla að una nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar.

Nið­ur­stöð­urnar voru afger­andi. Af þeim 17,5 millj­ónum sem greiddu atkvæði sögðu 57,5 pró­sent að Musk ætti að hætta sem for­stjóri en 42,5 pró­sent að hann ætti að halda áfram.

Standi Musk við fyrri yfir­lýs­ingar má því búast við að hann hætti sem for­stjóri í nán­ustu fram­tíð. Musk hafði reyndar sagt í síð­asta mán­uði að hann ætl­aði sér, með tíð og tíma, að fá ein­hvern annan til að reka fyr­ir­tækið. Fyrst vildi hann þó koma Twitter í „sterka stöðu“.

„Fuglinn er frjáls“

Musk greiddi 44 millj­­arða Banda­­ríkja­dala fyrir Twitter, sem hann eign­að­ist og afskráði af mark­aði í lok októ­ber síð­ast­lið­ins. Kaupin gengu ekki snurð­u­­laust fyrri sig. Musk keypti fyrst hluta­bréf í Twitter í upp­­­hafi árs og í byrjun apríl var hlutur hans í fyr­ir­tæk­inu kom­inn yfir níu pró­­­sent og var hann þar með orð­inn meðal stærstu hlut­hafa í Twitter og bauðst að taka sæti í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Hann afþakk­aði boðið og sagði ljóst að sam­­­fé­lags­mið­ill­inn gæti hvorki dafnað né þjónað til­­­­­gangi sínum í núver­andi formi.

[adspot]Í kjöl­farið gerði hann yfir­­­­­tökutil­­­boð upp á 44 millj­­­arða Banda­­­ríkja­dala sem stjórn Twitter hafn­aði í fyrstu en ákvað svo að ganga að. Yfir­­­takan komst þó í nokkuð upp­­­­­nám í maí, áður en hlut­hafar höfðu tekið afstöðu til til­­­­­boðs­ins, þegar Musk sak­aði Twitter um að standa í vegi fyrir því að hann fengi upp­­­lýs­ingar um hversu hátt hlut­­­fall not­enda mið­ils­ins eru gervi­menni (e. bots).

Í tísti sem hann sendi frá sér greindi hann frá því að kaup hans á sam­­­­fé­lags­mið­l­inum hefðu verið sett á ís þar sem hann væri að bíða eftir gögnum sem gætu rök­­­­stutt full­yrð­ingar Twitter um að hlut­­­­fall gervi­menna á sam­­­­fé­lags­mið­l­inum væri innan við fimm pró­­­­sent.

Allt stefndi í að mög­u­­leg yfir­­­taka rík­­asta manns heim yrði gerð upp fyrir dóm­stólum en í lok októ­ber gekk Musk loks frá kaup­un­um, degi áður en loka­frestur til þess rann út. „Fugl­inn er frjáls!“ tísti Musk.

Nánast allt sem Musk hefur gert á Twitter er umdeilt

Yfir­lýstur til­gangur Musk með kaup­unum er að end­ur­reisa máls­frelsið, sem honum finnst hafa átt undir högg að sækja á und­an­förnum árum, meðal ann­ars vegna rit­skoð­un­ar­til­burða sam­fé­lags­miðl­arisa. Musk hefur líka verið opin­skár með það að rekstr­ar­módel Twitter gangi ekki upp og að ráð­ast þurfi í nýjar rót­tækar tekju­öfl­un­ar­að­gerðir til að tryggja til­vist fyr­ir­tæk­is­ins til fram­tíðar.

Á meðal fyrstu verka hans sem eig­andi Twitter var að segja upp mörgum helstu stjórn­endum, tæp­­lega helm­ingi starfs­­fólks og leggja mann­rétt­inda­­deild fyr­ir­tæk­is­ins nið­­ur.

[adspot]Musk hefur líka hleypt ýmsum sem höfðu verið bann­aðir á Twitter aftur á mið­il­inn. Þar er um að ræða fólk sem hafði verið sett í bann vegna hat­urs­orð­ræðu, upp­lýs­inga­óreiðu eða fyrir að fleyta sam­sær­is­kenn­ingum sem eng­inn fótur var fyrir. Á meðal þeirra sem hann bauð vel­kom­inn til baka var Donald J. Trump, fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, en hann hefur ekki viljað þiggja það boð og haldið sig við eigin sam­fé­lags­miðil, Truth Social.

Musk hefur líka sagt að hann ætli sér að end­ur­skoða svo­kallað verification-kerfi, en það var sett á fót svo til dæmis blaða­menn gætu fengið blátt stað­fest­ing­ar­tákn á eftir nafni sínu á Twitter sem sýndi að þeir væru þeir sem þeir sögð­ust vera. Musk ætlar að afnema það kerfi og rukka átta Banda­ríkja­dali á mán­uði fyrir þá sem vilja slíkt stað­fest­ing­ar­tákn.

Nýlega voru ýmsir blaða­menn sem höfðu verið að fjalla um Musk bann­aðir frá Twitter eftir að hafa fjallað um Twitter-reikn­ing sem fylgd­ist með flug­ferðum Musk. Þeim var síðan flestum hleypt aftur inn eftir að Musk fram­kvæmdi skoð­ana­könnun þar um.

Síðasta útspil Twitter undir stjórn Musk sem hefur valdið úlfúð er bann við því að hlekkja á aðra sam­fé­lags­miðla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár