Vigdís Ósk aðstoðar Jón Gunnarsson

Vigdís Ósk Häsler Sveins­dóttir hefur verið ráðin aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Vigdís Ósk er lög­fræð­ingur og hefur starfað sem lög­fræð­ingur Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga und­an­farið.

Vigdís Ósk lauk BA prófi í lög­fræði frá Háskól­anum á Akureyri árið 2006 og meist­ara­prófi 2008. Hún varð hér­aðs­dóms­lög­maður árið 2009 og lauk LLM gráðu í alþjóð­legum refsirétti frá háskól­anum í Sussex í Bret­landi.

Hún hefur starfað hjá Hér­aðs­dómi Norð­ur­lands eystra og hjá lög­regl­unni á Norð­ur­landi eystra. Hún hefur einnig starfað sem lög­maður hjá Lög­mönnum Höfða­bakka, og hefur svo verið lög­fræð­ingur hjá Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga frá árinu 2015.

Vigdís Ósk hefur setið í stjórn Íslenskrar ætt­leið­ingar, og í stjórnum evr­ópsku og nor­rænu ætt­leið­ing­ar­sam­tak­anna. Hún hefur setið í rit­stjórn tíma­rits­ins Lög­fræð­ings og í stjórn Félags kvenna í lög­mennsku. Hún hefur setið í kjör­stjórn í Garðabæ bæði fyrir alþingis- og for­seta­kosn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár