Ummæli skrifstofustjóra Alþingis vekja hörð viðbrögð: „Þetta er niðurlægjandi og ógeðslegt“

Hildur Lilli­endahl gagn­rýnir orð skrif­stofu­stjóra Alþingis, Helga Bern­ód­us­son, sem sagði að mál­þóf ætti ekk­ert skylt við mál­frelsi, frekar en nauðgun við kyn­frelsi. Helgi var á meðal ræðu­manna á hátíð Jóns Sig­urðs­sonar í Jónshúsi í Kaup­manna­höfn í gær, þar sem fjórir karlar tóku til máls, karla­kór steig á svið en engar konur komu fram.

„Halló Helgi. 1970 var að hringja.“
„Halló Helgi. 1970 var að hringja.“ Hildur Lilli­endahl og Sóley Tóm­as­dóttir telja Helga Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóra Alþingis, hafa talað um nauðg­anir af léttuð í ræðu sinni.

„Málþóf á ekk­ert skylt við mál­frelsi, ekki frekar en nauðgun við kyn­frelsi,“ sagði Helgi Bern­ód­u­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, í ræðu sem hann hélt á hátíð Jóns Sig­urðs­sonar sem haldin var í Jónshúsi í Kaup­manna­höfn í gær. 

Ummælin hafa vakið hörð við­brögð, en Hildur Lilli­endahl sagði þau til marks um skiln­ings­leysi á reynslu­heimi kvenna.

Þá hefur einnig verið gagn­rýnt að engin kona var á meðal ræðu­manna. Þór­hildur Sunna, þing­maður Pírata, vakti athygli á því hver karllæg dag­skrá hátíð­ar­innar væri og sagði: „Þetta er frekar leið­in­legt trend hjá for­seta og skrif­stofu for­seta, sem ítrekað verða upp­vís af því að hafa konur ekki með í sinni dag­skrá.“ Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, svar­aði því til að það væri hrein til­viljun. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu.

Í ræðu Helga tal­aði hann um mál­þóf í þingsölum Alþingis sem draug bæri að kveða niður með því að „rota hann í einu höggi“. Helgi seg­ist hafa þurft ára­tugum saman að sitja yfir þeim drauga­gangi sem mál­þófið er. Hann telur mál­þóf vera yfir­gang sem er „nið­ur­lægj­andi fyrir þing­menn og hina virðu­legu stofnun, til­raun til að lama þingið, óbæri­legur“. 

Ummælin hafa vakið athygli á sam­fé­lags­miðlum en Hildur Lilli­endahl ritar um þau færslu á facebook:

„Þetta er nið­ur­lægj­andi og ógeðs­legt“

„Helgi Bern­ód­us­son var einn af körlunum sem þarna komu fram. Og honum þótti við hæfi, í miðju þessu pulsupartíi, að láta þessi orð falla í ræðu sinni: „Málþóf á ekk­ert skylt við mál­frelsi, ekki frekar en nauðgun við kyn­frelsi.“

Mig langar ekki að sam­fé­lag­inu mínu sé stýrt af körlum sem hafa nægi­lega tak­mark­aðan skiln­ing á reynslu­heimi kvenna til þess að þeir finni sig í því að líkja nauðg­unum við mál­þóf. Þetta er nið­ur­lægj­andi og ógeðs­legt.“

Sóley Tóm­as­dóttir deildi einnig fréttum af ræð­unni á Twitter þar sem hún telur Helga tala um nauðg­anir af léttúð:

„Halló Helgi. 1970 var að hringja og vill fá orð­ræð­una sína til baka. Þá þótti nefni­lega í lagi að tala um nauðg­anir af léttúð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár