Heimilum sem þiggja fjárhagsaðstoð sveitarfélaga hefur fjölgað

Alls fengu 5660 heim­ili fjár­hags­að­stoð frá sveit­ar­fé­lögum í fyrra. Fjögur pró­sent barna 17 ára og yngri bjuggu á heim­ilum sem þiggja fjár­hags­að­stoð árið 2019.

Einstaklingum sem þiggja fjárhagsaðstoð hefur fækkað á hverju ári frá árinu 2013, þar til nú.
Ein­stak­lingum sem þiggja fjár­hags­að­stoð hefur fækkað á hverju ári frá árinu 2013, þar til nú. Mynd: Úr safni

Heimilum sem þiggja fjár­hags­að­stoðstoð sveit­ar­fé­laga fjölg­aði um 12,9 pró­sent á milli áranna 2018 og 2019. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hag­stof­unnar. Samtals fengu 5660 heim­ili fjár­hags­að­stoð í fyrra og fjölg­aði þeim um 646 frá árinu áður. Fjöldi heim­ila sem þáðu fjár­hags­að­stoð náði hámarki árið 2013 og hefur verið á nið­ur­leið síðan. Þetta er því í fyrsta sinn í sex ár sem fjöld­inn eykst.

Í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar segir að útgjöld sveit­ar­fé­lag­anna vegna fjár­hags­að­stoðar hafi hækkað um 867 millj­ónir á milli áranna 2018 og 2019 eða 26,4 pró­sent. Á föstu verð­lagi nemur hækk­unin 25,9 pró­sentum. Með­al­mán­að­ar­greiðslur fjár­hags­að­stoðar á árinu 2019 voru 160.800 krónur og hækkuð frá fyrra ári um 24.558 krónur. Fjár­hags­að­stoð var greidd að með­al­tali í 4,6 mán­uði árið 2019 en í 4,5 mán­uði árið 2018.

Fjögur prósent barna búa á heimilum sem fá fjárhagsaðstoð.

Í til­kynn­ing­unni segir: „Af þeim heim­ilum sem fengu fjár­hags­að­stoð árið 2019 voru heim­ili ein­stæðra barn­lausra karla 43,6% og heim­ili ein­stæðra barn­lausra kvenna 22,9% en heim­ili ein­stæðra kvenna með börn 21,1%. Heimili hjóna/sam­búð­ar­fólks voru 10,5%. Árið 2019 voru 34,6% við­tak­enda fjár­hags­að­stoðar atvinnu­lausir og af þeim tæp 88% án bóta­réttar, alls 1.606 við­tak­endur.“

2,6 pró­sent þjóð­ar­innar, alls 9.549 ein­stak­lingar bjuggu á heim­ilum sem þáðu fjár­hags­að­stoð árið 2019. Þar af voru 3.238 börn, 17 ára og yngri, alls fjögur pró­sent barna. Á milli ára fjölgar börnum í hópnum, árið 2018 bjuggu 2.710 börn á heim­ilum sem þáðu fjár­hags­að­stoð eða alls 3,4 pró­sent. Þá bjuggu alls 8.206 ein­stak­lingar á heim­ilum sem þáðu fjár­hags­að­stoð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár