Eggert Benedikt nýr forstöðumaður Samstarfsvettvangs um loftslagsmál og grænar lausnir

Eggert Benedikt Guðmundsson hefur verið ráðinn forstöðu­maður Samstarfs­vettvangs stjórn­valda og atvinnu­lífs um lofts­lagsmál og grænar lausnir.

Eggert Benedikt Guðmundsson
Eggert Benedikt Guð­munds­son Mynd: Aðsend mynd

Eggert Benedikt Guðmundsson hefur verið ráðinn forstöðu­maður Samstarfs­vettvangs stjórn­valda og atvinnu­lífs um lofts­lagsmál og grænar lausnir. Alls bárust 54 umsóknir um stöðuna og var ráðningar­ferli í höndum Hagvangs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslands­stofu.

Í tilkynningunni segir að Eggert búi að víðtækri reynslu úr atvinnu­lífinu sem stjórn­andi auk þess að hafa áralanga reynslu af stjórnar­störfum fyrir fjölda fyrir­tækja og félaga hérlendis og erlendis. Eggert er með meistara­gráðu í rafmagns­verkfræði frá Þýska­landi auk þess sem hann hefur einnig lokið MBA- og AMP-gráðum á Spáni.

„Um 10 ára skeið stýrði Eggert tveimur af stærstu fyrir­tækjum landsins, N1 hf. (2012 – 2015) og HB Granda hf. (2005 – 2012). Nú síðast gegndi hann forstjóra­stöðu fyrir nýsköpunar­fyrirtækið eTactica sem starfar á sviði raforku­eftirlits­kerfa. Önnur fyrri störf eru m.a. fyrir Philips Electronics í Kaliforníu og Belgíu og Marel hf. á Spáni. Hann var yfir­verk­fræðingur Bresi Group hjá Íslenska járnblendi­félaginu hf., starfaði við rann­sóknir við Háskólann í Karlsruhe, auk kennslu við gagn­fræða­skólann á Húsavík. Eggert hefur einnig sinnt ráðgjafa­störfum m.a. fyrir FAO í Róm og Samtök fyrir­tækja í sjávar­útvegi, auk þess sem hann kom að undir­búnings­vinnu í aðdrag­anda stofnunar Samstarfs­vettvangsins sem ráðgjafi,“ segir í tilkynningunni.

Núverandi stjórnar­störf Eggerts telja sæti í stjórn HB Granda hf. Hann situr í External Advisory Committee MBA náms HR auk þess sem hann er stjórnar­formaður Hótels Holts og formaður Leik­félags Reykja­víkur. Af fyrri stjórnar­störfum má nefna setu í stjórn Viðskipta­ráðs Íslands, Háskóla­ráði HR, fagráðum og stjórn Íslands­stofu o.fl.

Sigurður Hannesson, framkvæmda­stjóri Samtaka iðnaðarins, og Unnur Brá Konráðs­dóttir, aðstoðar­maður ríkis­stjórnar, eru formenn Samstarfs­vettvangsins. Unnur Brá segir við tilefnið að öflugt samstarf atvinnu­lífs og stjórn­valda sé nauðsynlegt til að Íslendingar nái þeim árangri sem nauðsyn­legur sé í loftslags­málum. „Það er ánægjulegt að finna þann mikla vilja atvinnu­lífsins til að gera betur og stjórn­völd vænta mikils af samstarfinu. Ég hlakka til að vinna með Eggerti Benedikt að verkefnum vettvangsins en hann hefur mikla reynslu sem mun nýtast vel sem og brennandi áhuga á málefninu.“

Sigurður segir að lofts­lagsmál séu ein af stærstu áskorunum á næstu árum. „Þau verða ekki leyst nema með samvinnu allra aðila og þess vegna er Samstarfs­vettvangur stjórn­valda og atvinnu­lífs um málefni svo mikil­vægur. Atvinnulíf hefur enda mikinn vilja og metnað til að gera enn betur. Það er mikill fengur að því fyrir þetta mikilvæga verkefni að njóta krafta Eggerts Benedikts enda býr hann yfir víðtækri reynslu af stjórnun sem mun nýtast vel til að ýta verk­efninu úr vör.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár