„Ekkert um okkur án okkar“ - Þingið verði að endurspegla þjóðina

Samtök kvenna af erlendum upp­runa harma sér­stak­lega að eng­inn þing­maður sé af erlendum upp­runa og skora á stjórn­mála­flokk­ana að bjóða og hvetja inn­flytj­endur að gefa sig fram því stjórn­málin eigi að end­ur­spegla betur fjöl­breyti­leika sam­fé­lags­ins.

Samtök kvenna af erlendum upp­runa harma að hlut­fall kvenna á þing­inu hafi minnkað. 
„Við hvetjum stjórn­mála­flokka að gefa fleiri konum tæki­færi, og að raða þeim í efsta sæti á listum þeirra t.d. í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum,“ segir í ályktun sam­tak­anna um nið­ur­stöður kosn­ing­anna sem þau sendu frá sér í gær.

Þær harma sér­stak­lega að eng­inn þing­maður sé af erlendum upp­runa og skora á stjórn­mála­flokk­ana að bjóða og hvetja inn­flytj­endur að gefa sig fram því stjórn­málin eigi að end­ur­spegla betur fjöl­breyti­leika sam­fé­lags­ins. 

„Ekkert um okkur án okkar,“ segja þær.

Barbara Krist­vins­son, tals­maður sam­tak­anna, segir að mik­il­vægt sé að raddir kvenna heyr­ist á þingi og ekki síður að raddir fólks af erlendum upp­runa séu heyri­legar. Hún bendir á að bæði Nichole Leigh Mosty, þing­maður Bjartrar fram­tíðar og Pawel Bartoszek, þing­maður Við­reisnar, hafi bæði dottið út af þingi í kosn­ing­unum um síð­ustu helgi.

[adspot]

Fjölbreytni af hinu góða

Barbara telur að Alþingi eigi að end­ur­spegla þjóð­fé­lagið eins og það er. „Við viljum horfa á alþing­is­menn og sjá fólk eins og okkur,“ segir hún og bætir við að best sé að hafa alls konar fólk með ýmiss konar reynslu. Fjöl­breytni sé af hinu góð, sem og mis­mun­andi lífs­sýn, menntun og bak­grunnur.

Með útgöngu þeirra Nichole og Pawel hefur orðið ákveðin aft­ur­för, að mati Barböru. „Íslend­ingar sem hafa ekki búið erlendis vita ekki hvernig er að aðlag­ast nýju sam­fé­lagi,“ segir hún og telur að gott sé fyrir þing­mann að hafa þá reynslu til að geta skilið fólk af erlendum upp­runa betur.

Fleiri af erlendum uppruna munu taka þátt í stjórnmálum

Hún telur jafn­framt að í fram­tíð­inni verði breyt­ing á. Fleiri muni taka þátt í stjórn­mála­starfi, sér­stak­lega þegar litið sé til þess að börn inn­flytj­enda vaxa úr grasi og verða þátt­tak­endur í sam­fé­lag­inu og hugs­an­lega í stjórn­málum seinna meir. Þannig sé þró­unin.

Eins og fram hefur komið á Kjarn­anum er gert ráð fyrir því að aðfluttir íbúar verði 23.385 fleiri en brott­fluttir á tíma­bil­inu 2017-2021. Þetta kemur fram í mann­fjölda­spá Hag­stof­unnar sem birt var 30. októ­ber síð­ast­lið­inn. Aðfluttir eru fyrst og fremst erlendir rík­is­borg­arar. Um síð­ustu ára­mót voru erlendir rík­is­borg­arar 30.380 hér­lendis. Þeim mun því fjölga um 77 pró­sent á örfáum árum ef gengið er út frá því að allir aðfluttir umfram brott­flutta séu erlendir rík­is­borg­arar.

Barbara bendir á að þörf sé á vinnu­afli á Íslandi og á nýju fólki yfir­höfuð. Þingið verði þess vegna að end­ur­spegla þjóð­ina og sam­fé­lagið í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár