Safna á upplýsingum um menntun Íslendinga sem flytja til annarra landa

Á níu af síð­ustu tíu árum hafa fleiri Íslend­ingar flutt frá land­inu en til þess óháð því hvort að það sé kreppa eða góð­æri. Getgátur hafa verið uppi um að þarna fari vel menntað fólk og því sé speki­leki frá land­inu. Nú á að kom­ast að því hvort svo sé.

Þjóðskrá mun í nán­ustu fram­tíð fara fram á það að þeir sem flytja af landi brott verði látnir veita upp­lýs­ingar um hver menntun þeirra er. Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefur fundað með for­svars­mönnum Hagstofu Íslands um að halda utan um og vinna úr þeim upp­lýs­ingum.

[links]Fleiri Íslend­ingar fluttu frá Íslandi á síð­­asta ári en komu aftur heim. Brott­­fluttir íslenskir rík­­is­­borg­­arar voru 65 fleiri en þeir sem fluttu til lands­ins, sam­­kvæmt tölum frá Hag­­stofu Íslands. Það gerð­ist þrátt fyrir gott árferði, nær ekk­ert atvinn­u­­leysi, stór­auk­inn kaup­mátt og for­­dæma­­lausa efna­hags­­lega stöðu þjóð­­ar­­bús­ins. Alls fluttu 2.738 Íslend­ingar til lands­ins á árinu 2018 en 2.803 frá því.

Frá árinu 2008, þegar banka­hrunið varð, hefur það ein­ungis gerst einu sinni að fleiri Íslend­ingar flytji heim en burt innan alm­an­aks­árs. Það gerð­ist 2017 þegar 352 fleiri flutti til lands­ins en frá því. Í fyrra sner­ist sú þróun aftur við.

[adspot]Hvorki Hag­stofa Íslands né Þjóð­skrá Íslands hafa safnað saman upp­lýs­ingum um mennt­un­ar­stig þeirra Íslend­inga sem kjósa að flytja af landi brott. Því liggur ekki fyrir svart á hvítu hvort um sé að ræða lang­skóla­gengið fólk eða ekki. Á þessu verður nú breyt­ing.

Getgátur um hverjir fari

Í nóv­em­ber 2015 birt­ist við­tal við Ásgeir Jónsson, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands, í Morg­un­blað­inu, í kjöl­far þess að blaðið hafði fjallað um nei­kvæðan flutn­ings­jöfnuð á meðal íslenskra rík­is­borg­ara á fyrstu níu mán­uðum þess árs.

Hann sagði að það virt­ist eitt­hvað djúp­stæð­ara á ferð­inni en vana­lega og að vís­bend­ingar væru um að margt háskóla­fólk flytti úr landi. Bat­inn á vinnu­mark­aði, sem átt hefði sér stað á und­an­förnum árum, hefði ekki skilað sér til mennt­aðs fólks nema að tak­mörk­uðu leyti. Karl Sig­urðs­son, sér­fræð­ingur hjá Vinnu­mála­stofn­un, sagði svip­aða sögu við Morg­un­blað­ið. Vís­bend­ingar væru um að margir finni ekki atvinnu sem henti námi þeirra og bak­grunni.

Þess vegna væru vís­bend­ingar uppi um svo­kall­aðan speki­leka. Þ.e. að vel menntað fólk frá Íslandi, sem íslenska ríkið hefði fjár­fest veru­lega í með fjár­fram­lögum til mennt­unar, væri að fara frá land­inu þrátt fyrir að efna­hags­lífið væri á fleygi­ferð upp á við. Ísland væri ein­fald­lega ekki að búa til réttu störfin sem unga fólkið okkar væri að mennta sig fyrir.

Fólks sem sættir sig ekki við góðar fréttir

Þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, og aðstoð­ar­menn hans héldu því fram í opin­berri umræðu að það væri rangt að fjöldi brott­fluttra væri óeðli­lega mik­ill.

For­sæt­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi gerði málið m.a. að umtals­efni í ára­móta­grein sinni í Morg­un­blað­inu og sagði hlut­fall brott­fluttra undir 40 ára á árinu 2015 lágt í sam­an­burði við liðin ár og ára­tugi. Það væri afmark­aður en hávær hópur fólks, sem ætti erfitt að sætta sig við góðar fréttir, sem héldi hinu gagn­stæða fram. Jákvæð þróun veki hjá hópnum gremju, hún sé litin horn­auga og tor­tryggð á allan mögu­legan hátt. Þetta sé sá hópur fólks sem getur ekki sætt sig við að jákvæðir hlutir ger­ist ef þeir ger­ast ekki í krafti hinnar einu „réttu“ hug­mynda­fræði.

Í byrjun jan­úar 2016 birti Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) grein­ingu á brott- og aðflutn­ingi til Íslands síð­ustu 50 árin. Þar kom fram að þrátt fyrir bætt efna­hags­leg skil­yrði hefur brott­flutn­ingur ­ís­lenskra rík­is­borg­ara frá Íslandi auk­ist árin á undan. Fleiri Íslend­ing­ar flyttu frá land­inu en til þess.

Frá árinu 1961 hafa verið átta tíma­bil þar sem brott­flutn­ingur á hverju ári hefur verið yfir með­al­tali áranna 1961 til­ 2015. Sjö þeirra tíma­bila hafa verið í tengslum við öfgar í efna­hags­líf­i ­þjóð­ar­innar á borð við brott­hvarf síld­ar­inn­ar, mikla verð­bólgu eða hátt atvinnu­leysi.

[adspot]Eina tíma­bilið af þessum átta sem sker sig úr er 2014 til 2015 þar sem eng­ar hefð­bundnar efna­hags­legar for­sendur eru fyrir auknum brott­flutn­ingi. Fólk flutti frá Íslandi þrátt fyrir efna­hags­legan upp­gang.

Ráðherra kallar eftir gögnum til að byggja umræð­una á

Þrátt fyrir að tek­ist hafi verið á um það hvort að speki­leki væri að eiga sér stað, og að þau átök byggðu fyrst og síð­ast á get­gátum, þá hefur ekki verið ráð­ist í að safna upp­lýs­ingum um mennt­un­ar­stig þeirra sem flytja burt. Það er fyrr en nú.

Lilja D. Alfreðs­dóttir var gestur í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í mars þar sem hún ræddi meðal ann­ars áform um nýtt stuðn­ings­kerfi fyrir náms­menn.

Þar sagði Lilja að leið­ar­ljósið í því kerfi yrði í fyrsta lagi að fólk geti sótt sér nám óháð efna­hag og búsetu og í öðru lagi að Ísland sé með þannig stuðn­ings­kerfi að það sé sam­an­burð­ar­hæft við hin Norð­ur­lönd­in.

Hún bætti við að verið væri að vinna í því að meta hver staðan væri á aðfluttum og brott­fluttum frá land­inu út frá mennt­un­ar­stigi. „Ég hef kallað eftir þessu meðal ann­ars til þess að byggja grunn­inn að þessu nýja kerfi sem við erum að fara að kynna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár