Forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Arion banka sagði upp störfum

Miklar hrær­ingar hafa verið í efstu stöðum hjá Arion banka síð­ustu daga eftir að aðstoð­ar­banka­stjór­inn hætti og réð sig til SKEL fjár­fest­inga­fé­lags. Nú hefur Lýður Þ. Þor­geirs­son sagt upp störfum.

Lýður Þ. Þorgeirsson.
Lýður Þ. Þor­geirs­son. Mynd: Arion banki

Lýður Þ. Þor­geirs­son, for­stöðu­maður fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Arion banka, sagði upp störfum í bank­anum í lok síð­ustu viku. Þetta stað­festir Haraldur Guðni Eiðsson, upp­lýs­inga­full­trúi Arion banka í svari til Kjarnans.

[links]Upp­sögnin kom í kjöl­far þess að til­kynnt var um miklar breyt­ingar á fram­kvæmda­stjórn Arion banka eftir að Ásgeir H. Reyk­fjörð Gylfason, sem verið hafði aðstoð­ar­banka­stjóri og fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja- og fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs Arion banka frá árinu 2019, hætti og réð sig sem for­stjóra SKEL fjár­fest­inga­fé­lags.

Við starfi aðstoð­ar­banka­stjóra tók Iða Brá Bene­dikts­dóttir sem starfað hefur hjá Arion banka og for­verum frá árinu 1999. Hún er einnig fram­kvæmda­stjóri við­skipta­banka­sviðs og mun gegna þeirra stöðu áfram sam­hliða starfi aðstoð­ar­banka­stjóra.

Hákon Hrafn Gröndal, lána­stjóri á fyr­ir­tækja- og fjár­fest­ing­ar­banka­sviði, var ráð­inn fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja- og fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs í stað Ásgeirs.

Lýður var upp­haf­lega ráð­inn til Arion banka sem fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­inga­banka­sviðs árið 2017. Hann hafði áður starfa hjá GAMMA frá 2010. Samhliða tók Lýður sæti í fram­kvæmda­stjóri bank­ans.

[adspot]Sumarið 2019 var Ásgeir ráð­inn aðstoð­ar­banka­stjóri og skömmu eftir að hann hóf störf var gerð sú breyt­ing á skipu­riti Arion banka að hann tók einnig við sem fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja- og fjár­fest­inga­banka­sviðs. Samhliða fór Lýður úr fram­kvæmda­stjórn og var gerður að for­stöðu­manni fyr­ir­tækja­ráð­gjafar.

Jón Finnbogason tekur við Stefni

Á sama tíma og opin­bert varð frá því að Ásgeir hefði farið til SKEL greindi Arion banki frá því að Mar­grét Sveins­dótt­ir, sem verið hefur fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar og síðar mark­aða frá árinu 2009, muni láta af störfum á næstu vik­um.

Jóhann Möller, sem gegnt hefur starfi fram­kvæmda­stjóra Stefnis und­an­farin ár, hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri mark­aða og mun taka sæti í fram­kvæmda­stjórn Arion banka á næstu vik­um.

Jóhann hefur verið fram­kvæmda­stjóri Stefnis frá árinu 2020 og starfað á fjár­mála­mark­aði í rúm 20 ár.

Í dag var greint frá því að Jón Finn­boga­son taki við sem fram­kvæmda­stjóri Stefnis. fram­kvæmda­stjóra. Síðan 2017 hefur Jón starfað sem útlána­stjóri Arion banka og frá árinu 2019 hefur hann verið for­stöðu­maður fyr­ir­tækja innan fyr­ir­tækja- og fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár