Ásgeir hættir hjá Arion banka og verður forstjóri SKEL

Aðstoð­ar­banka­stjóri Arion banka hyggst láta af störfum þar á næstu dögum, en hann hefur verið ráð­inn for­stjóri SKEL fjár­fest­ing­ar­fé­lags.

Ásgeir H. Reyk­fjörð Gylfason, sem verið hefur aðstoð­ar­banka­stjóri og fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja- og fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs Arion banka frá árinu 2019, hefur verið ráð­inn for­stjóri SKEL fjár­fest­inga­fé­lags hf.

Frá þessu segir í til­kynn­ingum frá SKEL og Arion banka í morgun, en í til­kynn­ingu Arion kemur fram að Ásgeir muni láta af störfum hjá bank­anum á næstu dögum.

Í til­kynn­ingu frá SKEL til Kaup­hallar er einnig sagt frá því að Magnús Ingi Ein­ars­son hafi verið ráð­inn fjár­mála­stjóri félags­ins.

Þar er haft eftir Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni stjórn­ar­for­manni SKEL að það sé mik­ill fengur í að fá þá Ásgeir og Magnús til liðs við félagið.

„Þessir tveir öfl­ugu aðilar munu hrinda í fram­kvæmd áfram­hald­andi umbreyt­ingu félags­ins, þar sem lögð verður áhersla á fjár­fest­ingar í fyr­ir­tækjum og þróun fyr­ir­tækja, sem hafa meðal ann­ars að leið­ar­ljósi að ein­falda fólki og fyr­ir­tækjum lífið,“ er haft eftir Jóni Ásgeiri.

Iða Brá verður aðstoðarbankastjóri

Iða Brá Bene­dikts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri við­skipta­banka­sviðs, mun nú jafn­framt gegna starfi aðstoð­ar­banka­stjóra hjá Arion. Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og for­verum frá árinu 1999. Frá þeim tíma hefur hún gegnt ýmsum störfum innan bank­ans, en hún var fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs frá 2016 til 2017 þegar hún tók við starfi fram­kvæmda­stjóra við­skipta­banka­sviðs.

Hún er við­skipta­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og með MSc í fjár­málum frá Erasmus Graduate School of Business í Hollandi. Iða Brá er einnig með próf í verð­bréfa­við­skiptum.

Hákon Hrafn Gröndal, lána­stjóri á fyr­ir­tækja- og fjár­fest­ing­ar­banka­sviði, hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja- og fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs og hefur tekið sæti í fram­kvæmda­stjórn bank­ans, sam­kvæmt til­kynn­ingu Arion. Hákon er við­skipta­fræð­ingur frá Griffith Uni­versity, með MSc í fjár­málum fyr­ir­tækja frá Háskóla Íslands og með próf í verð­bréfa­við­skiptum.

Framkvæmdastjóri markaða lætur einnig af störfum

Arion banki segir einnig frá því í dag að Margrét Sveins­dóttir, sem verið hefur fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar og síðar mark­aða frá árinu 2009, muni láta af störfum á næstu vikum.

Jóhann Möller, sem gegnt hefur starfi fram­kvæmda­stjóra Stefnis und­an­farin ár, hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri mark­aða og mun taka sæti í fram­kvæmda­stjórn Arion banka á næstu vikum.

Jóhann hefur verið fram­kvæmda­stjóri Stefnis frá árinu 2020 og starfað á fjár­mála­mark­aði í rúm 20 ár. Jóhann er við­skipta­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og með próf í verð­bréfa­við­skiptum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár