Ævintýralegur vöxtur - Ísland í „miðju“ samfélagsbreytinga

Jafnvel þó að það sé farið að hægja á vext­inum í ferða­þjón­ustu, þá er greinin orðin að burð­ar­stólpa undir hag­kerf­inu. Framundan eru miklar fjár­fest­ingar í innviðum, meðal ann­ars til að styrkja sam­keppn­is­hæfni grein­ar­innar.

Í nýrri skýrslu GAMMA um ferða­þjón­ust­una, sem Haf­steinn Gunnar Hauksson hag­fræð­ingur rit­stýrði, er fjallað ítar­lega um stöðu grein­ar­innar og áhrif hennar í íslenska hag­kerf­inu.

Margir áhuga­verðir fróð­leiksmolar um stöðu grein­ar­innar koma fram í skýrsl­unni, og eru hér að neðan fimm atriði sem fjallað erum í skýrsl­unni.

8 = 60 ár Óhætt er að segja að vöxt­ur­inn á und­an­förnum sjö árum hafi verið ævin­týri lík­astur. Á árunum 2008 - 2016 komu fleiri ferða­menn til lands­ins en á 60 árum þar á undan, en heild­ar­fjöldi ferða­manna í fyrra var 2,2 millj­ónir. Árið 2010 komu færri en 500 þús­und ferða­menn, og því hefur fjöld­inn marg­fald­ast á skömmum tíma.

Áfram­hald­andi vöxtur Þrátt fyrir þann mikla vöxt sem hefur verið á und­an­förnum árum, þá er gert ráð fyrir að hann haldi áfram á þessu ári, sam­kvæmt spá ISAVIA. Hann verður um 11 pró­sent á þessu ár, og verður fjöld­inn þá kom­inn á milli 2,5 til 3 millj­ónir ferða­manna.

Ísland er dýrt Gengi krón­unnar gagn­vart öðrum myntum hefur styrkst mikið á skömmum tíma, og þar hefur vöxtur ferða­þjón­ust­unnar spilað sína rullu. Mikið inn­flæði vegna vax­andi umsvifa í ferða­þjón­ustu hefur gjör­breytt verði þjón­ust­unnar í erlendri mynt. Á þetta er minnst í skýrsl­unni, og þar talað um margir kann­ist við ummæli ferða­manna sem kvarta yfir háu verð­lagi, jafn­vel brjál­æð­is­legu. En á sama tíma dásama þeir landið og nátt­úru þess.

Ungt fólk að breyta venjum Í for­mála skýrsl­unnar fjallar Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands, um þær miklu breyt­ingar sem eru að verða á lifn­að­ar­háttum ungs fólks, meðal ann­ars með auknum ferða­lögum. Nefnir hann að Ísland sé, vegna land­fræði­legrar stöðu sinni, inn í miðju þess­ara breyt­inga. Inn í fram­tíð­ina sé ferða­þjón­usta orðin að stoða­tvinnu­vegi, og mikil tæki­færi felist í því að fram­þróa hana fyrir kom­andi kyn­slóðir. Teng­ingar við Asíu séu á næsta leyti, sem geri það að verkum að Íslandi verði sterkur og stór tengi­punktur fólks frá Ameríku, Evrópu og Asíu.

Miklar fjár­fest­ingar í píp­unum Fjallað er sér­stak­lega um þá miklu fjár­fest­ing­ar­þörf sem sé fyrir hendi vegni ferða­þjónstunnar. Hún liggur meðal ann­ars í stækkun Kefla­vík­ur­flug­vallar, en sú fram­kvæmd er þegar í gangi og heild­ar­um­fang er allt að 1,5 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 150 millj­örðum króna. Líklegt er að einka­fjár­festar muni koma að þeirri fjár­mögnun, en nú þegar hefur verið skrifað undir lána­samn­ing við Norræna fjár­fest­inga­bank­ann. Aðrar fjár­fest­ingar eru síðan í vega­kerf­inu, en álag á því hefur auk­ist mikið. Sem dæmi má nefna er upp­gangur bíla­leiga, en umfang þeirra hefur vaxið hratt. Floti bíla­leigu­bíla hefur stækkað um þús­undir á hverju ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár