Grammy-verð­launa­hafi Vík­ing­ur Heið­ar Ólafs­son vann til Grammy-verð­launa fyr­ir plötu sína þar sem hann flyt­ur Gold­berg-til­brigði Bachs. Hann fylgd­ist með verð­launa­há­tíð­inni í heima­húsi í Berlín og var bú­inn að und­ir­búa ljúfsára tapræðu sem hann snar­aði yf­ir í sig­ur­ræðu á ör­skots­stundu. Mynd: Ari Magg

Dveljum lengur við ósigra en sigra

Víkingur Heiðar Ólafsson var tilbúinn með tapræðu þegar hann vann til Grammy-verðlauna fyrir plötu sína þar sem hann flytur Goldberg-tilbrigði Bachs. Hann segir það mannlegt hlut­skipti að dvelja lengur við ósigra en sigra. Hann er fullur þakklætis og ætlar að „gefa í“ eins og hann kemst sjálfur að orði og verja meiri tíma í hljóð­verinu.

Ég er bara hérna í smá göngutúr með konunni minni, Höllu, við erum í Berlín og vorum að fá okkur rótsterkt og gott kaffi af því við sváfum ekkert rosalega mikið í nótt,“ sagði Víkingur Heiðar Ólafsson, píanisti og nýbakaður Grammy-verðlauna­hafi, þegar blaða­maður náði tali af honum á mánudag.

Grammy-verð­launin fóru fram í 67. sinn í Los Angeles á sunnudag í skugga gróður­elda sem hafa geisað í Kaliforníu síðustu vikur. Víkingur er á tónleika­ferðalagi um Evr­ópu og horfði á verðlauna­afhendinguna í Berlín heima hjá forstjóra Deutsche Grammophon. Víkingur hefði vissulega viljað vera viðstaddur en aðstæður leyfðu það hreinlega ekki. „Það er svo mikið sorgar­ástand í Los Angeles vegna eldanna sem hafa farið illa með fólk. Grammy-verð­launin voru allt öðruvísi í ár en hefur verið. Við ákváðum á endanum að fagna þessu í Berlín,“ segir hann.

Víkingur var tilnefndur í flokki klassískra einleiks­hljóðfæra­leikara fyrir plötu sína þar sem hann leikur Goldberg-tilbrigði Johanns Sebastians Bachs, sem gefin er út af þýska útgáfu­fyrirtækinu Deutsche Grammophon. Auk hans voru Andy Akiho, Curtis J Stewart, James Blachly & Experiential Orchestra, Mak Grgić & Ensemble Dissonance og Seth Parker Woods tilnefndir.

Nógu margar sigurræður farið í ruslið

Víkingur og Halla snæddu kvöldverð heima hjá forstjóra Deutsche Grammophon ásamt yf­ir­mönn­um hjá út­gáfu­fyr­ir­tæk­inu Universal, en hann skrifaði nýlega undir nýjan útgáfu­samning við fyrir­tækin tvö. „Svo kveiktum við á sjón­varpinu klukkan eitt eftir miðnætti til að athuga hvernig þetta færi en ég var tilbúinn að tapa. Þannig varð sigurinn enn þá sætari fyrir vikið. Þetta var geggjað kvöld,“ segir Víkingur. Í raun hélt hann sína eigin litlu verðlauna­hátíð í heimahúsi í Berlín. „Grammy-hátíð í yndislegu húsi og í ótrúlega góðra vina hópi og samstarfs­manna. Þetta var stórkostlegt.“

Þakklæti er honum efst í huga. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég er tilnefndur til Grammy-verðlauna og ég var búinn að búa mig undir vonbrigðin að vinna ekki. Ég átti ekki von á að vinna. Þetta er stórt fyrir mig. Ég var á tónleika­ferðalagi í heilt ár að spila Goldberg-tilbrigðin sem fyrir mér er stórkostlegasta tónverk tónlistar­sögunnar, að minnsta kosti sem ég þekki. Að fá að eiga þennan tíma með þessu verki í heilt ár, spila um öll Banda­ríkin og um allan heim, þá kemur þetta núna eins og punkturinn yfir i-ið. Þetta er bara dásamlegt.“

Víkingur undirbjó ekki sigurræðu í þetta sinn, hann segir nógu margar slíkar hafa farið í ruslið í gegnum tíðina. „Ég var búinn að undirbúa ljúfsára tapræðu í huganum en svo þurfti ég að segja nokkur orð í stofunni. Ræðan var einföld: „Það að vinna verðlaun hefur nú aldrei hjálpað neinum að gera betri músík.“ En svo bætti ég við sigur­ræðuna: „En það þarf ekki endilega að skemma fyrir.“ Þannig að þetta var mín stutta ræða til þeirra,“ segir hann og hlær. 

„Það fyndna í líf­inu er að þó að maður vinni verð­laun þá situr maður alltaf uppi með sjálfan sig

Víkingi þykir gríðar­lega vænt um verð­launin, það fer ekki á milli mála. „Einlæglega þykir mér þetta mjög mikill heiður. Þetta eru tónlistar­menn í Banda­ríkjunum sem kjósa, þetta eru í rauninni verðlaun tónlistar­mannanna. Ef þeir eru að hlusta á það sem ég er að gera og njóta þess þykir mér það enn þá skemmtilegra en þegar það er pínulítil dómnefnd.“

Verð­launa­hafiVíkingur Heiðar sigr­aði í fyrstu til­raun, en þetta var hans fyrsta til­nefn­ing til Grammy-verð­laun­anna.

Og nú heldur lífið áfram. „Það fyndna í lífinu er að þó að maður vinni verðlaun þá situr maður alltaf uppi með sjálfan sig,“ segir Víkingur og hlær. „Um leið og þér hlotnast einhver heiður þá er skrýtið hvað manni fer að finnast það eðlilegt furðu fljótt, þó það sé það ekki. Á sama tíma, ef þú tapar eða vinnur ekki, hugsar þú miklu lengur um það.“ Víkingur tekur dæmi frá náms­árunum. „Ég fór í tvær píanó­keppnir í háskóla, ég vann aðra þeirra og var í öðru sæti í hinni. Um leið og ég var búinn að vinna eina var það einhvern veginn eðlilegt en sú sem ég tapaði, ég hugsaði um hana í margar vikur og mánuði og var mjög svekktur. Kannski er það bara mannlegt hlut­skipti, en ég held, því miður, að við dveljum oft lengur við ósigra heldur en sigra.“

„En mér þykir mjög vænt um þetta. Þetta er stór­skemmtilegt og ótrúlegur heiður, kannski sérstak­lega af því að þetta er þetta verk, Grammy-verðlaun fyrir Goldberg-tilbrigðin sem standa hjarta mínu næst. Eftir þetta ferðalag er þetta alveg einstakt fyrir mig, persónu­lega.“

Vildi óska að Bach væri á lífi í dag

Verð­launin hlýtur hann, sem fyrr segir, fyrir flutning á Goldberg-tilbrigðum Bachs. Að flytja Goldberg-tilbrigðin meira og minna í heilt ár hefur kennt honum fjölmargt um sjálfan sig. „Sem og um sköpunina í tónlist og hvernig stórkostlegt verk eins og þetta er aldrei eins tvö kvöld, hvað það breytist mikið og hvað við erum ólík frá degi til dags. Og eigum að vera það og eigum að fagna því að þannig er það.“ Víkingur er einnig þakklátur fyrir að hafa fengið að upplifa Bach, bæði sem píanisti en líka sem manneskja. „Hvaða áhrif Bach hefur á fólk úr ólíkustu menningar­heimum og hvað hann talar sterkt til fólks. Eina sem ég vildi væri að hann vissi í dag hversu yfir­gengilega mikla hlustun tónlist hans hefur hjá ólíkustu hópum af fólki. Það er svo fallegt.“ 

Platan kom út fyrir rúmu ári og hefur Víkingur ferðast vítt og breitt um heiminn og flutt tilbrigðin í heild sinni á tónleikum, alls 96 sinnum. „Þetta var ævintýralegt ár og það hefur verið ótrúlegt að kynnast sjálfum mér í gegnum þessa tónlist. Tónlist Bachs verður alltaf að spegla, bæði fyrir þá sem spila hana og þá sem hlusta á hana.“ Víkingur tengir tilnefninguna, og verð­launin, við mikla viðveru hans í Banda­ríkjunum síðastliðið ár. Sjálfur bjó hann í Banda­ríkjunum í sex ár og lauk grunn- og framhalds­námi við tónlistar­háskólann Juilliard í New York árið 2008. „En svo spilaði ég ekki mikið í Banda­ríkjunum framan af ferli mínum, ég var miklu meira í Evrópu og Asíu og svo undan­farin ár hef ég spilað mjög mikið í Banda­ríkjunum, undan­farin 2–3 ár. Þetta er tengt því, maður myndar samband við áhorf­endur og að fá að upplifa hvernig tónlist Bachs talar til fólks á okkar tímum, það er algjör­lega einstakt. Þessi Grammy-tilnefning og verðlaun núna þó hafa sérstaka merkingu fyrir mig. Banda­ríkin eru mér alltaf mjög kær, þarna varð ég að sjálfum mér, í tónlistinni.“

„Kannski hefur aldrei verið skemmti­legra að vera klass­ískur tón­list­ar­flytj­andi heldur en akkúrat í dag

Hlustenda­hópur Víkings undan­farið ár er mjög fjöl­breyttur, allt frá ungu fólki yfir í eldra fólk og alla þjóð­félagshópa. Hann tekur dæmi. „Í Boston, þegar ég spilaði verkið, var ég stoppaður af öryggis­verði á flug­vellinum, ég hélt að hann ætlaði að taka mig í gegn fyrir að hafa gleymt vatns­brúsa eða eitthvað, en þá hafði hann verið að hlusta á Goldberg-tilbrigðin á tónleikum hjá mér kvöldið áður. Þetta er ein saga af mörgum hvernig Bach talar til breiðs hóps fólks. Það veitir mér gleði. Við búum okkur oft til einhverjar hugmyndir um hvaða hlustenda­hópur sé fyrir hvaða tónlist en við höfum ekki rétt fyrir okkur í því og það er það sem ég er búinn að læra af þessu tónleika­ferðalagi, hópurinn er breiður og í því er fegurðin fólgin. Og kannski hefur aldrei verið skemmtilegra að vera klassískur tónlistar­flytjandi heldur en akkúrat í dag.“

Goldberg-tilbrigðunum hefur verið streymt mörg hundruð milljón sinnum og Víkingur segir það skýrt merki um áhugann. „Það er eitthvað í þessari tónlist sem fólk sækir í nátt­úrlega, það er eitthvað í þessu sem talar til fólks á þann hátt að það vill að þetta verði partur af lífi sínu. Ég á aðdáendur sem segjast hlusta á þau á hverjum einasta morgni, en kannski bara aríuna. En þessi tilbrigði bjóða upp á það að maður skoði lífið og heiminn í gegnum þau. Það er eitthvað hjá Bach sem leiðir að því að við getum yfirfært hann yfir á mannlegt líf og tilfinningar. Á endanum eru þetta nótur og tíðni sem er raðað saman á snilldar­legan hátt og út frá því speglum við okkar tilfinninga­litróf. Enn þá í dag finnst mér ótrúlegt að hugsa um hvað tónlist er og þegar menn gera hana eins og Bach, sem er mesti lista­maður sögunnar í mínum bókum, þá verður það til þess að 300 árum seinna er fólk að uppgötva heiminn og sjálft sig og sín mannlegu tengsl í gegnum það sem hann skapaði. Það er fallegt.“

Ætlar að gefa í 

Með nýjum útgáfu­samningi við Universal og Deutche Grammophon ætlar Víkingur að verja meiri tíma í hljóð­verinu. „Ég ætla að gefa í. Ég er að reyna að finna jafnvægið í mínu lífi, í tónlistinni, á milli þess að ferðast um heiminn og spila alla þessa tónlist og til að hafa tíma til að endurnýja mig og til að gera uppgötvanir og tilraunir í hljóð­verinu. Þessi samningur er nákvæmlega það sem ég vil á þessum tíma­punkti.“

Samningurinn gerir honum kleift að helga sig upptökum í hljóðveri. „Þú getur náð til tvö til þrjú þúsund manns á kvöldi í tónleikasal og það er algjör­lega einstakt. En á sama tíma eru kannski þúsundir að hlusta á einhverja af upptökunum þínum. Þetta er ótrúlega falleg leið til að ná til fjölda fólks sem hefur ekki endilega aðgengi að tónleika­sölunum. Og það skiptir máli.“

Þegar Víkingur var að alast upp hafði hann aðgang að stóru plötu­safni foreldra sinna, sem hann er gríðar­lega þakklátur fyrir. „Þegar ég var að alast upp á Íslandi var takmarkað aðgengi, þannig séð, að alþjóð­legum tónleikum. „Ég þurfti að treysta á upptökur mömmu og pabba sem eiga mjög stórt plötusafn. Á þann hátt hafa upptökur skipt mig persónu­lega miklu máli og í gegnum þær uppgötvaði ég stóran hluta af þeirri tónlist sem ég elska mest.“ Víkingur vill því setja aukinn kraft í upptökur. „Þannig finnst mér ég vera að gefa til baka til þess sem ég naut sem barn.“

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár