Sóun og neyð í Venesúela

Hinn óvin­sæli Nicolás Maduro, for­seti Venes­ú­ela, hefur komið í veg fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sem hefði getað vikið honum úr emb­ætti. Fram­tíð­ar­horfur lands­ins eru óskýrar og neyðin eykst með degi hverjum.

Fimmtu­dag­inn 20. októ­ber kom kosn­inga­eft­ir­lits­stofnun lands­ins – sem talin er vera undir beinum áhrifum stjórn­valda – í veg fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um „end­ur­kall“ Nicolas Maduro úr emb­ætti for­seta. Það hefur í för með sér að Maduro verði lík­lega við völdin út þetta kjör­tíma­bil sem endar 2019 nema hann segi af sér því ekki eru til fleiri lög­legar leiðir fyrir stjórn­ar­and­stöð­una sam­kvæmt stjórn­ar­skránni til að víkja honum úr emb­ætti.

Eftir því sem þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu­leiðin er nú úti­lokuð verða stjórn­ar­and­stæð­ingar að fá útrás fyrir óánægju sinni með öðrum hætti sem gerir það að verkum að fram­tíð lands­ins er mjög óljós. Samkvæmt nýlegri skoð­ana­könnun telja 90% Venes­ú­elu­búa landið stefna í ranga átt og 76% vilja sjá Maduro víkja úr emb­ætti. Pólitísk krísa lands­ins í dag á rætur sínar að rekja til síð­ustu ára valda­tíðar Hugo Chávez og mis­heppn­aðra efna­hags­stefna fyrsta ára­tug stjórn­ar­tíð hans.

Chavísmi

Þegar Hugo Chávez lést úr hjarta­á­falli í mars 2013 ein­ungis 58 ára gam­all hafði hann sem for­seti lands­ins leitt það í gegnum bóli­vari­anska bylt­ingu – kennda við hetju sjálf­stæð­is­bar­áttu Venes­ú­ela Simón Bolívar – í þeim skiln­ingi að til­koma Chávez til valda árið 1999 og inn­leið­ing nýrrar stjórn­ar­skrár (sem talin er vera ein af umfangs­mestu, metn­að­ar­fyllstu og flókn­ustu stjórn­ar­skrám í ver­öld­inni) mark­aði stofnun fimmta lýð­veldi Venes­ú­ela og sam­kvæmt því var heiti lands­ins breytt í República Boli­vari­ana de Venezuela.

Bylting Chávez, sem var að eigin sögn marx­isti, ein­kennd­ist af umfangs­miklum vinstrisinn­uðum umbóta­stefnum innan heil­brig­iðis-, mennta-, og félags­mála­kerf­is­ins sem fjár­magn­aðar voru af stór­auknum olíu­auð lands­ins í kjöl­far þjóð­væð­ingar fjöl­margra olíu­svæða sem höfðu verið í eigu alþjóða­fyr­ir­tækja. Um mið­bik fyrsta ára­tugs þess­arar aldar var Venes­ú­ela á mik­illi sigl­ingu enda hafði auð­linda­stefna Chávez hafði gert efna­hag lands­ins háð háu olíu­verði en heims­mark­aðs­verð á olíu náði sögu­legu hámarki sum­arið 2008. Landið skor­aði hærra en áður á vísi­tölum um læsi, jöfnuð og almenn lífs­gæði undir lok valda­tíðar Chávez og til að sýna umheim­inum vel­gengni bylt­ing­ar­innar tók Chávez upp á ýmsum almanna­tengsla­brellum á borð við að selja olíu til húskynd­ingar á nið­ur­greiddu verði til fátækra­hverfa í New York.

Hollenska veikin

Þegar heims­mark­aðs­verð á olíu tók að falla á árunum eftir heimskrepp­una 2008 kom greini­lega í ljós að hag­kerfi Venes­ú­ela þjáð­ist af „Hol­lensku veik­inni“ svoköll­uðu; hag­fræði­leg klemma þar sem skyndi­legri og hraðri aukn­ingu í auði lands vegna útflutn­ings á einni afurð, sem má rekja til vax­andi heims­mark­aðs­verðs eða upp­götvun nýrra auð­linda, er eytt um leið í opin­ber útgjöld sam­hliða því að engin áhersla er lögð á að nýta ávinn­ing­inn í að styrkja aðra geira atvinnu­lífs­ins. Þegar ávinn­ingnum er að mestu leyti eytt vegna póli­tísks þrýst­ings frekar en að vera settur í sjóð, eins og gerð­ist í Venes­ú­ela, verður landið ber­skjaldað þegar óum­flýj­an­legar breyt­ingar á heims­mark­aðs­verð­inu koma til. Árangur byggður á stutt­lífu góð­æri auð­linda­á­vinn­ings­ins á það til að þurrkast út vegna verð­bólgu og vöru­skorts, en „Hol­lenska veikin“ hefur farið sér­stak­lega illa með auð­linda­rík þró­un­ar­ríki þar sem póli­tískur þrýst­ingur til að draga úr fátækt í land­inu er meiri en í rík­ari löndum (eins og t.d. Noregur) þar sem auð­veld­ara er að skipu­leggja til lengri tíma.

Þegar Nicolás Maduro, utan­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Hugo Chávez á árunum 2006-2013 og vara­for­seti frá árinu 2012, rétt hafði umdeildan sigur á Enrique Capriles, sem enn er leið­togi stjórn­ar­and­stöð­unnar, í for­seta­kosn­ingum stuttu eftir dauða Chávez var efna­hags­á­stand lands­ins þegar farið að versna umtals­vert. Gengi Bóli­vars­ins (gjald­mið­ill lands­ins) hafði þá fallið um 32% á skömmum tíma, verð­bólga nam um 30%, og fjár­laga­halli rík­is­sjóðs nam um 8.5% af vergri lands­fram­leiðslu þrátt fyrir að heims­mark­aðs­verð á olíu lægi á um 100 banda­ríkja­dali per tunna.

Fátæki olíurisinn

Þrátt fyrir að búa yfir mestu olíu­auð­lindum í heimi – sam­kvæmt OPEC er Venes­ú­ela talið hafa hátt í þrjú hund­ruð millj­arða tunnur af olíu í jörð­inni, rúmum þrjá­tíu millj­örðum fleiri en Sádí-Arabía sem er í öðru sæti – hefur Venes­ú­ela sokkið í djúpa kreppu. Verð­bólga á þessu ári er um 700% og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn (IMF) spáir 10% sam­drætti í hag­kerfi lands­ins á þessu ári. Olíuverð nemur um 50 Banda­ríkja­dali per tunna og vegna þess hversu hlut­falls­lega dýrt það er að nýta stóran hluta olíu­auð­linda lands­ins er ekki hægt að auka fram­leiðslu til að bæta efna­hags­stöð­una.

Vöru­skortur er mik­ill; Venes­ú­elu­búar eyða að með­al­tali 35 klst. á mán­uði í bið­röðum eftir mati og nauð­synja­vörum, og heil­brigð­is­kerfi lands­ins er í molum. Þá hefur höf­uð­borg lands­ins, Caracas, hlotið þann vafa­sama heiður að yfir­taka fyrsta sætið sem ofbeld­is­fyllsta borg í heimi. Fjöldi og ítök glæpa­gengja í land­inu hefur stór­auk­ist en Maduro hefur kennt sam­særi Banda­ríkj­anna og stjórn­ar­and­stöð­unnar um ófrið­inn.

Stjórn­ar­and­staðan bar stór­sigur í þing­kosn­ingum sem fram fóru í des­em­ber 2015 og hefur „ofur­meiri­hluta“ í þing­inu, þ.e. yfir 2/3 þing­manna, og ljóst virð­ist vera and­staða við stjórn­völd hefur ekki minnkað síðan þá. Þó er óljóst hvernig stjórn­ar­and­staðan og Maduro geti best umborið hvort annað til þess að kom­ast hjá að ástandið versni í land­inu. Ein­ræðistaktar Maduro eru ekki traust­vekj­andi en hins vegar er heldur ekki upp­byggi­legt af stjórn­ar­and­stöðu lands­ins að hamra á afsögn hans og engu öðru – það er langt frá öruggt að eft­ir­maður Maduro ekki verði annar „Chavísti“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár