Níu smitaðir af veirunni sem veldur COVID-19 á Íslandi

Alls hafa sex ný smit greinst í dag. Sá sem fyrstur Íslend­inga var greindur með smit hefur verið útskrif­aður af Land­spít­ala.

Þrjú ný til­felli af veirunni sem veldur COVID-19 sjúk­dómi voru stað­fest á veiru­fræði­deild Land­spít­ala í kvöld. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Almanna­vörnum rík­is­lög­reglu­stjóra.

[links]Þar segir að um sé að ræða tvær konur og einn karl. Þau eru á sex­tugs- og fimm­tugs­aldri. „Af þessum til­fellum hafa tvö teng­ingu við Norður-Ítalíu en þessir ein­stak­lingar komu til lands­ins frá Veróna á Ítalíu á laug­ar­dag­inn (29.2.2020). Unnið er að smitrakn­ingu á þriðja til­fell­inu. Öll þrjú sýna ein­kenni COVID-19 sjúk­dóms, en eru þó ekki mikið veik.“

Fyrr í dag var greint frá því að þrjú önnur smit höfðu greinst og því hefur fjölgað í hópi smit­aðra um sex á sól­ar­hring. Þeir eru nú níu tals­ins. Mað­ur­inn sem greind­ist fyrstur Íslend­inga með veiruna hefur verið útskrif­aður af Land­spít­ala og er nú í heima­ein­angr­un.

Hátt í 300 manns í sótt­kví á land­inu öllu

Hátt í 300 manns eru í sótt­kví á land­inu öllu.

Nán­ari upp­lýs­ingar um heima­sótt­kví má nálg­ast á vef land­læknis. Svo gæti farið að fleiri muni þurfa að fara í sótt­kví á næstu dög­um. Atvinnu­rek­endur og stjórn­endur á vinnu­mark­aði eru hvattir til að sýna stöðu þessa fólks skiln­ing.

[adspot]„Það er vitað að fjöldi heil­brigð­is­starfs­manna, ekki síst af Land­spít­ala er á far­alds­fæti en af hálfu Land­spít­ala er verið að kort­leggja um hve marga er að ræða. Því er lík­legt að ein­hver fjöldi heil­brigð­is­starfs­manna þurfi að fara í sótt­kví sem varir í 14 daga. Þá er ljóst að íslenskt heil­brigð­is­kerfi er við­kvæmt og það gæti orðið afdrifa­ríkt ef upp kæmi smit hjá starfs­manni. Því vilja land­lækn­ir, sótt­varna­læknir og almanna­varnir biðla til heil­brigð­is­starfs­manna að fresta öllum utan­lands­ferðum eftir því sem kostur er meðan það skýrist hvert umfang far­ald­urs­ins verð­ur,“ sagði í til­kynn­ing­unn­i sem send var út fyrr í dag.

Vinna að því að koma upp­lýs­ingum til fólks

Upp­lýs­ingateymi almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra vinnur að því að koma upp­lýs­ingum um COVID-19 til þeirra sem telj­ast til við­kvæmra hópa. Þetta eru til að mynda aldr­aðir ein­stak­lingar og þeir sem eru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Þetta verður gert í sam­ráði við sjúk­linga­sam­tök, fag­fé­lög og hags­muna­hópa þess­ara ein­stak­linga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár