Umhverfisvænar vörur sem stuðla að slökun

Blóm­kollur býður upp á hágæða vörur með umhverf­is­væna gæða­vottun sem stuðla að auk­inni slökun. Í vör­unum fara hönnun og nota­gildi saman. Og nú getur fólk tryggt sér rúm­föt frá fyr­ir­tæk­inu á Karolina fund.

Blóm­kollur er nýstofnað fyr­ir­tæki af mynd­list­ar­mann­inum Sigríði Soffíu Haf­liða­dóttur en hún starfar kór­stjóri og Ragnari Pálmari Krist­jáns­syni, hönn­uði og athafna­manni. Markmið Blóm­kolls er að bjóða upp á vand­aðar hágæða vörur með umhverf­is­væna gæða­vottun sem stuðla að auk­inni slökun þar sem hönnun og nota­gildi fara saman.

Fyrsta vara Blóm­kolls eru 400 þráða satín rúm­föt sem vænt­an­leg eru síðla sum­ars. Sigríður Soffía, eða Sigga Soffía eins og hún er oft­ast kölluð hefur lengi leitað í mynd­list­ina sem leið til auk­innar slök­unar en mandalan sem prýðir rúm­fötin saman stendur af vatns­lit­aðri flóru Íslands og er ætlað að leiða til auk­innar slök­unar. Ragnar Pálmar hefur séð um vöru­þróun og hönnun. Við spurðum Siggu Soffíu nokk­urra spurn­inga.

[adspot]

Hvernig vakn­aði hug­myndin að þessu verk­efni?

„Ég hafði lengi séð mynd­irnar mínar fyrir mér á fal­legum vörum sem myndu stuðla að auk­inni slökun. Sjálf hef ég fundið fyrir kvíða og mín leið í átt að bata hefur til dæmis verið fólgin í því að teikna og mála. Hug­myndin að rúm­fata­lín­unni kom til mín í hreið­ur­gerð­inni fyrir komu frum­burð­ar­ins og ákvað að láta þennan gamla draum verða að veru­leika. Við Ragnar fórum að skoða mögu­leik­ann á ung­barna­rúm­fata­línu en vegna gríð­ar­legrar eft­ir­spurnar ákváðum við að bjóða einnig uppá full­orð­ins­sett. Ferlið er búið að vera langt og strangt, við höfum pru­fað ótal efni og nið­ur­staðan varð sú að við munum bjóða upp á 100% 400 þráða satín bóm­ull með oeko-tex gæða­vottun.“

Hvað er heil­un­ar­kraftur mandöl­unnar og hvernig teng­ist hann sköp­un­inni?

„Ég hef heill­ast af mandölu­form­inu í langan tíma. Eftir að hafa kynnt mér þetta dáleið­andi, sam­hverfa form sá ég hversu merk­inga­mik­ill tákn­heimur hennar var og heill­að­ist. Mandölur hafa verið til í mörg þús­und ár. Orðið mandala er sanskrít og þýðir hringur, marg­hyrn­ingur, sam­fé­lag og tengsl. Mandala getur bæði táknað sýni­lega heim­inn í kringum okkur og þann ósýni­lega heim sem býr innra með okkur. Upphaf mandöl­unnar er í miðju hennar, heildin sam­ein­ast í kring um miðju/kjarna mandöl­unnar sem síðar verður að einni heild. Þetta hring­laga lista­verk kemur úr tíbetskum búdd­isma og hefur til dæmis verið notað við helgi­at­hafnir og hug­leiðslu.

Allar þessar mandölu­teikn­ingar sem ég hef verið að tekna und­an­farin ár hafa verið mín per­sónu­lega hug­leiðslu­að­ferð, ég róast við þá gjörð að teikna og svo finnst mér þetta hring­laga, mynstraða og lit­ríka mandölu­form róandi. Ásamt því að teikna mandölur lang­aði mig til að prufa vatns­lit­ina og fór að mála þær íslensku plöntur sem mér þóttu fal­legar, fljót­lega fann ég þessu sam­eig­in­legan far­veg svo úr varð flór­um­andölu­mynd­irnar.“

Hvað bjóðið þið í stað­inn fyrir að heita á verk­efnið ykkar?

„Hóp­fjár­öfl­unin gengur ótrú­lega vel inná Karolina fund síð­unni getur fólk tryggt sér rúm­föt á hag­stæðu verði. Fólk getur valið um allskyns pakka. Frá einu ung­barna­setti yfir í BOMBUNA en þá tryggir ein­stak­ling­ur­inn sér tvö ung­barna­sett, tvö full­orð­ins­sett, inn­ram­maða mandölu­mynd að eigin vali í stærð 50cm x 50cm teikn­aða af mér. Að auki fær hann/hún fjóra einka­tíma í söng og auð­vitað boð í útgáfu­teiti þegar sæng­ur­ver­a­settin koma.“

Hægt er að skoða verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár