Freista þess að fella ítalska baróninn í Landsrétti

Landa­merkja­mál í Árnes­hreppi, sem áhrif gæti haft á áform­aða Hval­ár­virkjun, eru ekki enn útkljáð. Fram­kvæmda­að­ili sótti ekki um fram­leng­ingu rann­sókn­ar­leyfis til Orku­stofn­unar vegna virkj­un­ar­innar í tæka tíð en seg­ist hafa „einka­leyfi“ á slíkum rann­sóknum.

Barón á hestbaki
Barón á hest­baki Ítalski bar­ón­inn Fel­ix von Lango-Lieb­en­stein a eyði­jörð­ina Engjanes í Eyvind­ar­firði á Ströndum. Þangað hefur hann örsjaldan komið. Mynd: Suedtirolfoto/Seehauser

Enginn aðili er með gilt leyfi Orku­stofn­unar til rann­sókna á þeim slóðum sem Hval­ár­virkjun í Árnes­hreppi er áformuð. Vest­ur­verk, sem hefur verið með virkj­un­ina á prjón­unum árum saman, fékk útgefið rann­sókn­ar­leyfi vegna áfor­manna í lok mars árið 2015 og var það tví­vegis fram­lengt. Hins vegar láð­ist fyr­ir­tæk­inu að sækja um þriðju fram­leng­ingu þess í tæka tíð áður en það rann út 31. mars 2021. Því er staðan sú að þrátt fyrir að virkj­un­ar­kost­ur­inn sé ofar­lega á blaði hjá HS Orku, sem á 80 pró­sent í Vest­ur­verki, er ekk­ert rann­sókn­ar­leyfi frá Orku­stofnun í gildi og hefur ekki verið í tvö og hálft ár.

Hins vegar hefur fyr­ir­tækið samið við land­eig­endur um rann­sóknir og sam­kvæmt lögum þarf ekki leyfi Orku­stofn­unar til rann­sókna ef þær fara fram á vegum land­eig­anda.

Heim­ildin óskaði eftir upp­lýs­ingum frá HS Orku nýverið um hver staða nýrra virkj­un­ar­kosta fyr­ir­tæk­is­ins væru. Þau svör feng­ust að auk stækk­un­ar­verk­efna virkj­ana sem þegar eru starf­ræktar er fyr­ir­tækið að ein­beita sér að þremur nýjum kostum: Hval­ár­virkjun, Eld­vörpum og Krýsuvík. Þeir tveir síð­ar­nefndu eru jarð­varma­kostir.

Hval­ár­virkjun er hins vegar, sagði í svörum Birnu Lár­us­dóttur upp­lýs­inga­full­trúa HS Orku, sá kostur sem er hvað lengst kom­inn í und­ir­bún­ingi. Benti hún á að umhverf­is­mati væri lokið sem og helstu skipu­lags­breyt­ingum þrátt fyrir að þær þörfn­uð­ust lít­ils háttar end­ur­skoð­unar. Spurð um stöðu rann­sókn­ar­leyfa svar­aði Birna: „Vest­ur­verk er með einka­leyfi á rann­sóknum og nýt­ingu sam­kvæmt land­eig­enda­samn­ingum.“

Samn­ingar þessir við land­eig­endur eru til árs­ins 2025 og fjalla um rann­sóknir og nýt­ingu á vatna­sviði áform­aðrar Hval­ár­virkj­unar.

Hægt að veita öðrum leyfi

Orku­stofnun bendir í svörum við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um stöðu rann­sókn­ar­leyfa á að sam­kvæmt lögum um rann­sóknir og nýt­ingu á auð­lindum í jörðu þurfi ekki leyfi Orku­stofn­unar ef rann­sóknir fari fram á vegum land­eig­anda. Stofn­unin telur hins vegar rétt að benda á að þrátt fyrir slíka samn­inga geti stofn­unin veitt öðrum rann­sókn­ar­leyfi ef eftir er sóst og þá yrðu rann­sóknir á vegum land­eig­anda óheim­ilar.

„Vest­ur­Verk er með einka­leyfi á rann­sóknum og nýt­ingu sam­kvæmt land­eig­enda­samn­ingum.“
Birna Lár­us­dóttir,
upp­lýs­inga­full­trúi HS Orku.

Vest­ur­verk sendi ósk um fram­leng­ingu á gild­is­tíma rann­sókn­ar­leyfis til Orku­stofn­unar í apríl 2021 en þar sem leyfið var þá útrunnið nokkrum dögum áður taldi stofn­unin sér ekki fært að fram­lengja gild­is­tím­ann. Var fram­kvæmda­að­ila bent á að sækja um leyfi að nýju með því að senda inn full­nægj­andi umsókn. Vest­ur­verk sendi umsókn í tölvu­pósti um haustið en Orku­stofnun taldi hana ekki full­nægj­andi. Upp­lýs­ingar um til­gang rann­sókna hefði t.d. skort sem og upp­lýs­ingar um afmörkun rann­sókn­ar­svæðis. „Orku­stofnun hefur að nýju skoðað afmörkun fyrra rann­sókn­ar­leyfis og telur, m.a. í ljósi atvika sem eru til­greind í umsókn, hugs­an­lega rétt að umsækj­andi taki afmörkun umsótts rann­sókn­ar­svæðis til  end­ur­skoð­unar,“ sagði m.a. í bréfi stofn­un­ar­innar til Vest­ur­verks í upp­hafi árs 2022. Atvikin sem vísað er til fjalla ann­ars vegar um tillögu um friðun fossa í Rjúkanda, Hvalá og Eyvind­ar­fjarð­ará fyrir skertu rennsli og hins vegar kröfu óbyggð­ar­nefndar um eign­ar­hald rík­is­ins á land­svæði sem vatna­svið virkj­unar liggur á og land­eig­enda­samn­ingur byggir á.

Orku­stofnun óskaði í ljósi þessa á ný eftir heild­stæðri umsókn um rann­sókn­ar­leyfi vegna áforma um Hval­ár­virkjun.

Vest­ur­verk hefur ekki enn, tæpum tveimur árum síðar, svarað þessu erindi Orku­stofn­unar.

Hugmyndin á sveimi í áratugi

Hug­myndir um virkjun áa ofan af Ófeigs­fjarð­ar­heiði nyrst í Árnes­hreppi má rekja til fyrstu ára­tuga síð­ustu aldar en það var þó ekki fyrr en á átt­unda ára­tug hennar sem vatna­mæl­ingar voru fyrst gerðar. Síðan þá hafa hug­mynd­irnar legið í dvala í lengri og skemmri tíma eða allt þar til Vest­ur­verk, sem síðar komst í meiri­hluta­eigu HS Orku, blés lífi í þær af krafti og samdi við land­eig­endur um vatns­rétt­indi árið 2007.

Áhrifa­svæði hinnar áform­uðu virkj­unar er innan tveggja eyði­jarða, Ófeigs­fjarðar og Engja­ness í Eyvind­ar­firði. Ófeigs­fjörður er að mestu í eigu sömu fjöl­skyld­unnar, fólks sem ólst þar upp og hefur þar djúpar rætur. Engjanes er hins vegar í eigu ítalsks bar­óns, Fel­ix von Lango-Lieb­en­stein, manns sem hefur örsjaldan komið á þessar slóðir frá því að hann festi kaup á jörð­inni.

En áhrifa­svæðið kann að liggja um aðra jörð, Dranga­vík, sem er í eigu fólks sem kærir sig flest ekki um að þar verði reist virkjun. Þannig er nefni­lega mál með vexti að meiri­hluti eig­enda Dranga­víkur telja að ein þeirra áa sem áformað er að nýta til Hval­ár­virkj­unar eigi ekki upp­tök sín í landi ítalska bar­óns­ins í Engja­nesi heldur á sinni jörð. Þetta megi lesa úr landa­merkja­bréfum frá árinu 1890.

Eig­enda­hóp­ur­inn höfð­aði mál á hendur bar­ón­inum sem og eig­endum Ófeigs­fjarðar árið 2020 til að fá það við­ur­kennt fyrir dómi að landa­merki Dranga­víkur gagn­vart hinum jörð­unum væru eins og þeir telja þeim lýst í landa­merkja­bréf­unum. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sýkn­aði eig­endur Engja­ness og Ófeigs­fjarðar af kröfum eig­enda­hóps Dranga­víkur í fyrra­sumar.

Þeirri nið­ur­stöðu var áfrýjað til Lands­réttar og málið því ekki útkljáð.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Eru það ekki eigendur Dranga sem eru á móti Hvalárvirkjun?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár