Iðnaðarmenn slíta viðræðum við SA

Iðn­að­ar­menn slitu samn­inga­við­ræðum við Samtök atvinnu­lífs­ins fyrir hádegi í dag. Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, tals­maður iðn­að­ar­manna, segir að nú hefj­ist und­ir­bún­ingur verk­falls­að­gerða.

Kristján Þórður Snæbjarnarson
Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son

Iðn­að­ar­menn slitu samn­inga­við­ræðum við Samtök atvinnu­lífs­ins fyrir hádegi og fara nú að skoða næstu skref og aðgerðir. Þetta kemur fram í frétt RÚV.

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, Halldór Benjamín Þor­bergs­son, segir í sam­tali við RÚV að staðan sé grafal­var­leg.

Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, tals­maður iðn­að­ar­manna, segir að nú hefj­ist und­ir­bún­ingur verk­falls­að­gerða. „Við mátum bara hvernig staðan er fram undan hjá okkur og það var nið­ur­staðan að það var bók­aður árang­urs­laus fundur hjá sátta­semj­ara. Það þýðir að við­ræður slitna á þessum tíma­punkti,“ segir hann.

Of langt á milli viðsemjenda

Kristján Þórður segir jafn­framt að of langt sé á milli við­semj­enda. „Við teljum að það þurfi að auka þrýst­ing á við­semj­endur okkar til að kom­ast lengra.“ Hann vill ekki upp­lýsa um ágrein­ings­málin í smá­at­riðum en segir að þau séu mörg, til dæmis vinnu­tím­inn. Næstu skref verða að heyra í félags­mönnum og und­ir­búa aðgerðir. „Við munum þurfa að nýta tím­ann vel til að und­ir­búa okkur fyrir næstu skref,“ segir hann.

[links]

Fram kom í fréttum í gær að Starfs­­greina­­sam­­band Íslands hefði slitið við­ræðum sín­um við Sam­tök at­vinn­u­lífs­ins.

Halldór Benjamín segir að Starfs­greina­sam­bandið og iðn­að­ar­menn hafi verið í sama takti í kjara­við­ræð­unum hjá rík­is­sátta­semj­ara. Samkvæmt RÚV var þetta átt­undi sátta­fundur iðn­að­ar­manna en þeir hafa verið í við­ræðum við atvinnu­rek­endur síðan í nóv­em­ber. „Staðan er auð­vitað orðin grafal­var­leg og það er öllum aug­ljóst sem með þessu fylgj­ast að við þurfum að ná lend­ingu í þetta mál á breiðum grunni gagn­vart öllum almenna vinnu­mark­aðnum á til­tölu­lega skömmum tíma ef ekki á illa að fara,“ segir hann. 

Hann vill ekki upp­lýsa í hverju ágrein­ing­ur­inn er fólg­inn. „Ég vil hins vegar árétta það að kjara­samn­ingar eru flókið fyr­ir­bæri. Við getum ekki tekið einn þátt út fyrir sviga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár