Segir viðræðuslit vonbrigði

Formaður Starfs­greina­sam­bands­ins segir við­ræðu­slitin við SA von­brigði og ef boðað verði til verk­falla verða þau ekki fyrr en seint í apríl eða byrjun maí.

Björn Snæbjörnsson
Björn Snæ­björns­son Mynd: Skjáskot/RÚV

Björn Snæ­björns­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins, segir það óneit­an­lega vera von­brigði að samn­inga­nefnd sam­bands­ins hafi slitið við­ræðum við Samtök atvinnu­lífs­ins á fundi hjá rík­is­sátta­semj­ara nú rétt fyrir hádegi.

„Við lýstum yfir því að við teldum þetta árang­urs­lausan fund þannig við slitum við­ræðum. Aðal­vanda­málið snýst um þessi vinnu­tíma­mál sem við höfum verið að þróa á und­an­förnum vikum. Það er svo­lítið í því sem við getum ekki sætt okkur við og menn þurfa auð­vitað að skoða betur. Þannig að það hefur ekki náðst sátt í þau mál,“ segir Björn Snæ­björns­son í sam­tali við RÚV.

Björn segir jafn­framt að nú verði kall­aður saman aðgerð­ar­hópur innan Starfs­greina­sam­bands­ins þar sem þau skoða hvaða aðgerðum þau geta beitt. Hann reiknar með því að samn­inga­nefnd Starfs­greina­sam­bands­ins verði kölluð saman á mánu­dag­inn til að fara yfir það plan.

Í frétt RÚV um málið kemur fram að þetta hafi verið þrett­ándi fundur Starfs­greina­sam­bands­ins og rík­is­sátta­semj­ara en deil­unni var vísað þangað fyrir um þremur vikum.

Björn segir enn fremur að ef boðað verði til verk­falla verða þau ekki fyrr en seint í apríl eða byrjun maí, miðað við dag­setn­ing­una í dag. „Þetta er fer­ill sem þarf að fara í gegnum og tekur dálít­inn tíma.“

Myrkrið dimmast skömmu fyrir dagrenningu

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, segir að þó að lýst hafi verið yfir árang­urs­lausum samn­inga­fundi hjá Starfs­greina­sam­band­inu haldi sam­talið áfram.

Hann segir jafn­framt að margt hafi áunn­ist í við­ræðum við SGS en því miður hafi þau ekki náð saman að sinni. „En sú mikla vinna sem við höfum náð fram, hún mun von­andi nýt­ast síðar og er að sjálf­sögðu ekki unnin fyrir gíg,“ segir Halldór Benjamín.

„Við höfum sagt að við leggjum strax fram það sem við teljum að sé grund­völlur lausnar. Það hefur gengið mjög vel með SGS á und­an­förnum vikum. Lang­flest hefur náðst að þró­ast í sam­ein­ingu. Þannig ég geri ráð fyrir að við getum tekið upp við­ræður aftur með skömmum fyr­ir­vara,“ segir hann.

Enn fremur telur hann að staðan sé tví­sýn, myrkrið sé dimm­ast skömmu fyrir dag­renn­ingu og nú sé mik­il­vægt að nýta næstu daga til að forða því að hér verði mikið efna­hags­legt tjón í gegnum þær verk­falls­að­gerðir sem búið er að boða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár