Starfs­greina­sam­band Íslands slítur viðræðum við Sam­tök at­vinnu­lífs­ins

Starfs­greina­sam­band Íslands hef­ur slitið við­ræðum sín­um við Sam­tök at­vinnu­lífs­ins.

Starfs­greina­sam­band Íslands hef­ur slitið við­ræðum sín­um við Sam­tök at­vinnu­lífs­ins. Fundi samn­ings­að­ila hjá rík­is­sátta­semj­ara var slitið eft­ir rúm­lega hálf­tíma og til­kynnti Björn Snæ­björns­son, for­maður SGS, fjöl­miðlum ákvörðun­ina fyr­ir utan fund­ar­her­bergið. Mbl.is greinir fyrst frá.

„Það barst ekk­ert nýtt til­boð frá Sam­tök­um at­vinnu­lífs­ins,“ sagði Björn í sam­tali við mbl.is. „Þetta þýðir að við för­um í að kalla sam­an okk­ar aðgerða­hóp og þar mun­um við taka ákvörðun um það hvernig við mun­um í fram­hald­inu skipu­leggja okk­ur til þess að setja meiri þrýst­ing á að ná kjara­samn­ing­um,“ sagði Björn. Viðbúið er að allt að 20.000 fé­lags­menn fari í verk­föll í apríl eða maí.

Í fréttum fyrir helgi kom fram að Starfs­greina­sam­bandið myndi slíta við­ræðum sínum við Sam­tök atvinnu­lífs­ins ef sam­tökin leggðu ekki fram nýjar hug­myndir eða við­brögð á næstu dög­um.

Við­ræðu­nefnd sam­bands­ins hafði fengið fulla heim­ild til að lýsa yfir árang­urs­lausum við­ræðum þrátt fyrir milli­göngu Rík­is­sátta­semj­ara og að slíta við­ræðum kæmu slíkar ekki fram.

Í til­kynn­ingu frá Starfs­greina­sam­band­inu sem send var út fyrir helgi kom fram að und­an­farnar þrjár vikur hefði samn­inga­við­ræður um nýjan kjara­samn­ing Starfs­greina­sam­bands­ins og Sam­taka atvinnu­lífs­ins farið fram undir verk­stjórn Rík­is­sátta­semj­ara. „For­sendur við­ræðna hafa verið umræða um nýja launa­töflu, stytt­ingu vinnu­vik­unn­ar, sam­ræm­ingu á vinnu­mark­aði og fleiri atriði.“

Í við­ræðum und­an­far­inna vikna hefði ýmis­legt áunn­ist, annað þok­ast í rétta átt og sumt hefði verið óleyst og því virt­ist ekki vera lengra kom­ist að sinni. Sú vinna sem hefur verið unnin væri þó gagn­leg og nýt­tist von­andi fram­hald­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár