Starfsgreinasambandið mun slíta viðræðum komi ekki fram nýjar hugmyndir

Samn­inga­við­ræðum Starfs­greina­sam­bands Íslands við Samtök atvinnu­lífs­ins verður slitið ef það koma ekki fram nýjar hug­myndir eða við­brögð á næstu dögum.

Fundir hjá Ríkissáttasemjara undanfarnar vikur hafa ekki borið árangur.
Fundir hjá Rík­is­sátta­semj­ara und­an­farnar vikur hafa ekki borið árangur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Starfs­greina­sam­band Íslands (SGS)mun slíta við­ræðum sínum við Samtök atvinnu­lífs­ins ef sam­tökin leggja ekki fram nýjar hug­myndir eða við­brögð á næstu dögum. Við­ræðu­nefnd sam­bands­ins hefur fengið fulla heim­ild til að lýsa yfir árang­urs­lausum við­ræðum þrátt fyrir milli­göngu Rík­is­sátta­semj­ara og að slíta við­ræðum komi slíkar ekki fram.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Starfs­greina­sam­band­inu. Þar segir að und­an­farnar þrjár vikur hafi samn­inga­við­ræður um nýjan kjara­samn­ing Starfs­greina­sam­bands­ins og Samtaka atvinnu­lífs­ins farið fram undir verk­stjórn Rík­is­sátta­semj­ara. „For­sendur við­ræðna hafa verið umræða um nýja launa­töflu, stytt­ingu vinnu­vik­unnar, sam­ræm­ingu á vinnu­mark­aði og fleiri atriði.

Í við­ræðum und­an­far­inna vikna hefur ýmis­legt áunn­ist, annað þok­ast í rétta átt og sumt er óleyst og því virð­ist ekki vera lengra kom­ist að sinni. Sú vinna sem hefur verið unnin er þó gagn­leg og nýt­ist von­andi fram­hald­inu.

Samn­inga­nefnd SGS sam­þykkir að komi ekki nýjar hug­myndir eða við­brögð frá Samtökum atvinnu­lífs­ins á næstu dögum hafi við­ræðu­nefndin fulla heim­ild til lýsa yfir árang­urs­lausum við­ræðum þrátt fyrir milli­göngu Rík­is­sátta­semj­ara og slíta við­ræðum.“

Starfs­greina­sam­band Íslands vís­aði kjara­deilu sinni við Sam­tök atvinnu­lífs­ins til rík­is­sátta­semj­ara 21. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Starfs­greina­sam­bandið fer með umboð fyrir eft­ir­talin 16 aðild­ar­fé­lög; AFL Starfs­greina­fé­lag, Aldan stétt­ar­fé­lag, Báran stétt­ar­fé­lag, Dríf­andi stétt­ar­fé­lag, Ein­ing-Iðja, Fram­sýn stétt­ar­fé­lag, Stétt­ar­fé­lag Vest­ur­lands, Stétt­ar­fé­lagið Sam­staða, Verka­lýðs­fé­lag Snæ­fell­inga, Verka­lýðs­fé­lag Suð­ur­lands, Verka­lýðs­fé­lag Vest­firð­inga, Verka­lýðs­fé­lag Þórs­hafn­ar, Verka­lýðs­fé­lagið Hlíf, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lag Bol­ung­ar­vík­ur, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lag Kefla­víkur og nágrennis og Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lag Sand­gerð­is.

Settu fram kröfugerðir í október

Starfs­greina­sam­bandið sendi frá sér kröfu­gerðir gagn­vart Samtökum atvinnu­lífs­ins og stjórn­völdum fyrir kjara­við­ræð­urnar 10. októ­ber í fyrra og í henni var gerð krafa um 425 þús­und króna lág­marks­laun og víð­tækar kerf­is­breyt­ing­ar, bæði á vinnu­um­hverfi launa­fólks og skatta­stefnu stjórn­valda. 

Í kröfu­gerð­inni gagn­vart Samtökum atvinnu­lífs­ins kom meðal ann­ars fram:

„Lág­marks­laun verði 425.000 krónur í lok samn­ings­tím­ans að því gefnu að ekki komi til umtals­verðra skatt­kerf­is­breyt­inga, þannig að sköttum verði létt af lægstu launum og lægri milli­laun­um.

Launa­taflan verði end­ur­skoðuð og ein­földuð veru­lega og skil­greint sé hund­raðs­hlut­fall á milli flokka og ­þrepa. Fjöldi þrepa verði auk­inn þannig að starfs­ald­urs­þrep mið­ist við eins árs, 3ja ára, 7 ára og 10 ára ­þrep.

Ung­menna­laun yfir 18 ára aldri verði afnumin en þess í stað mið­ist grunn­laun við 18 ára ald­ur. Á­byrgð og álag verði metið til launa með skil­greindu hund­raðs­hluta­á­lagi. Með ábyrgð og álagi er með­al­ ann­ars átt við þjálfun nýrra starfs­manna, álag sem fylgir mann­eklu á vinnu­stað, álag vegna ­til­finn­inga­vinnu, ábyrgð á öryggi við­skipta­vina, far­þega og vinnu­fé­laga.

Álag fyrir vakta­vinnu á tíma­bil­inu frá mið­nætti til kl. 8 skal vera hærra. Or­lofs- og des­em­ber­upp­bætur taki sér­stökum hækk­un­um. 1.maí verði skil­greindur sem stór­há­tíð­ar­dag­ur,“ segir í kröfu­gerð­inn­i.

Í kröfu­gerð­inni gagn­vart stjórn­völdum var gerð krafa um hækkun á fjár­magnstekju­skatti og tvö­földun á per­sónu­af­slætti. „Lægstu laun verði skatt­frjáls með tvö­földun per­sónu­af­slátt­ar, sem verði síðan stig­lækk­andi með hærri ­tekj­um, þannig að lækkun skatta á lág- og milli­tekju­hópa verði m.a. fjár­mögnuð með hærra skatta­fram­lagi þeirra tekju­hæstu. Álagn­ing tekju­skatt­kerf­is­ins á lægri og hærri tekju­hópa verði þar ­með lík­ari því sem tíðkast á hinum Norð­ur­lönd­un­um. Sá per­sónu­af­sláttur sem um semst þarf að ­fylgja launa­þróun þannig að ekki dragi jafnt og þétt úr tekju­jöfn­un­ar­á­hrifum skatta- og bóta­kerf­is­ins eins og varð á síð­ustu ára­tug­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár