Sigmundur Davíð: „Nei, ég er ekki að fara í borgina“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son seg­ist ekki vera á leið í borg­ar­málin, þótt hann hafi verið hvattur til þess af áhrifa­fólki innan Fram­sóknar. Margt sé ógert í lands­mál­unum sem hann vilji taka þátt í.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­maður hans, seg­ist ekki vera á leið í borg­ar­málin þótt áhrifa­menn innan flokks­ins hafi hvatt hann til þess að leiða lista flokks­ins í næstu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

„Nei ég er ekki að fara í borg­ina. Ég er auð­vitað í Norð­aust­ur­kjör­dæmi og það er margt ógert þar, en líka á lands­vísu, og miklar breyt­ingar framundan. Mjög miklar breyt­ingar framundan í íslenskri póli­tík almennt og mjög stór tæki­færi sem er gríð­ar­lega mik­il­vægt að menn nýti og geri það rétt,“ sagði Sig­mundur Davíð í við­tali í Bítinu á Bylgj­unni í morgun.

Hann sagði að það væri ekki skrítið að menn væru farnir að velta fyrir sér borg­ar­mál­unum, því þar sé sann­ar­lega af ýmsu að taka og ekki veiti af því að gera heil­miklar breyt­ingar. „Það blasir auð­vitað við fólki að skipu­lag allra hluta, hvort sem það eru skipu­lags­málin eða hvernig borgin er rekin í sam­göngu­málum, í við­haldi gatna og ann­arra mann­virkja, sorp­hirða, það er svona allt sem að almenn­ingur líti á sem helstu hlut­verk borg­ar­yf­ir­valda, hefur verið í hálf­gerðum ólestri,“ sagði Sig­mundur Davíð.

Stjórn­ar­and­staðan í borg­inni hafi verið mild við meiri­hlut­ann, nema Framsókn og flug­vall­ar­vinir. Sig­mundur seg­ist ekki heyra annað en að mjög mik­ill vilji sé til að sjá veru­legar breyt­ingar í borg­inni á næsta kjör­tíma­bili.

Það sé rétt að ýmsir sem láti sig borg­ar­málin miklu varða, ekki síst innan Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafi viðrað hug­myndir um að hann fari í borg­ar­málin. „Auðvitað þykir manni vænt um það að þeir sem vilja fá mann í borg­ar­málin tali um það við mann.En svo eru kannski hinir líka sem vilja losna við mann úr lands­mál­unum og manni þykir ekki alveg jafn vænt um það. Aðal­at­riðið er nú þetta að það eru líka gríð­ar­lega stór mál fram undan í lands­mál­unum sem ég hef mik­inn áhuga á að taka þátt í og miklar skoð­anir á hvernig þurfi að gera svo­leiðis að ég ætla að halda mig við þann vett­vang.“

Hann var einnig spurður að því hvort ekki væri gróið um heilt innan Fram­sókn­ar­flokks­ins eftir mikil átök þar síð­ustu miss­eri. „Nei, nei. Ég væri ekki heið­ar­legur ef ég reyndi að halda því fram,“ sagði Sig­mundur Davíð. Hann ætl­aði sér hins vegar að ræða stöð­una innan flokks­ins á þeim vett­vangi fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár