Tíu ár í bensínvaktinni: Hlutur ríkisins stækkar

Við­mið­un­ar­verð bens­ín­vakt­ar­innar hækk­aði um fjórar krónur í ágúst, miðað við verðið í júlí.

Skoða má 121 færslu gagnapunkta í bensínvakt Kjarnans.
Skoða má 121 færslu gagna­punkta í bens­ín­vakt Kjarnans.

Við­mið­un­ar­verð bens­ín­vaktar Kjarnans hækk­aði um fjórar krónur í ágúst, miðað við verðið í júlí. Það er öðru­vísi þróun elds­neyt­is­verðs í ágúst en hefur verið und­an­farin fjögur ár, þegar elds­neyt­is­verð hefur lækkað í ágúst frá mán­uð­inum áður.

Bens­ín­litr­inn kost­aði 188,70 krónur um miðjan ágúst þegar bens­ín­vaktin var upp­færð. Verð­hækk­un­ina í ágúst síð­ast­liðnum má skýra með því að benda á að lík­legt inn­kaupa­verð hefur hækkað um rúm­lega fimm krónur á milli mán­aða.

[links]Öll opin­ber gjöld hafa staðið í stað, utan virð­is­auka­skatts­ins sem hækkar í hlut­falli við hærra elds­neyt­is­verð um tæp­lega krónu. Hlutur olíu­fé­lags­ins minnkar þess vegna um nærri því tvær krónur á milli mán­aða.

Þum­al­putta­reglan er að verð­sveiflur á heims­mark­aðs­verði á olíu koma ekki strax fram á Íslandi vegna þess að olíu­fé­lögin versla elds­neyti á heims­mark­aði í stórum ein­ing­um. Verðið við dæl­una hér á landi ætti því að end­ur­spegla heims­mark­aðs­verðið þegar elds­neytið var flutt hingað til lands.

Bens­ín­verð á Íslandi skipt­ist í þrjá meg­in­liði. Það er algengt inn­­­­­kaupa­verð, opin­ber gjöld sem ríkið leggur á elds­­­neyt­is­verð og hlutur olíu­­­­­fé­laga. Opin­beru gjöldin breyt­­­ast lítið á milli mán­aða; það er raunar aðeins virð­is­auka­skatt­­­ur­inn sem getur breyst nema með sér­­­­­stökum laga­breyt­ingum frá Alþingi. Virð­is­auka­skatt­­­ur­inn er hlut­­­falls­­­legur skattur á elds­­­neyt­is­verð en önnur opin­ber gjöld sem leggj­­­ast á lítra­verðið eru föst krón­u­tala sem ákvörðuð er í fjár­­­lög­­­um. Krón­u­­­gjöldin á bens­ín­verð eru almenn vöru­­­gjöld, sér­­­­­stök vöru­­­gjöld og kolefn­is­­­gjald.

Lesa má nánar um sund­­ur­liðun bens­ín­verðs­ins á vef bens­ín­vakt­­ar­innar.

[adspot]

Tíu ár í bensínvaktinni

Gögnin sem hægt er að skoða í bens­ín­vakt­inni ná aftur til ágúst­mán­aðar 2007. Gagna­punktar eru skráðir í hverjum mán­uði síðan þá, eða sam­tals 121. Þannig geta les­endur fengið nokkuð góða sýn á hvernig elds­neyt­is­verð hefur þró­ast á Íslandi á und­an­förnum ára­tug.

Á tíma­bil­inu síðan í ágúst 2007 hefur bens­ín­verð farið hæst í 268,10 krónur í apríl árið 2012 en lægst hefur það verið 123,40 krónur á lítr­ann, við upp­haf tíma­bils­ins sem bens­ín­vaktin tekur til.

Heilt yfir má benda á að hlut­falls­lega hlutur rík­iss­ins í bens­ín­lítra­verði hafi auk­ist jafnt og þétt. Sérstakt kolefn­is­gjald bætt­ist við sam­setn­ingu bens­ín­verðs í jan­úar 2010, og reikn­að­ist þar með sér­stöku bens­ín­gjaldi, almennu bens­ín­gjaldi og virð­is­auka­skatti. Öll opin­beru gjöldin (utan virð­is­auka) eru fastar krónu­tölur sem reikn­ast ofan á lítra­verðið.

Fylgstu með bens­ín­verð­inu á Bens­ín­vakt Kjarnans
Kannaðu verðið

Þrír liðir opin­berra gjalda hækk­­uðu um ára­­mót­in 2016-2017. Það voru almennt bens­ín­­gjald sem hækk­­aði úr 25,6 krónum á lítr­ann í 26,60 krónur eða um 4,69 pró­­sent, sér­­stakt bens­ín­­gjald sem hækk­­aði úr 41,30 krónum á hvern lítra í 43,25 krónur á hvern lítra eða um 4,72 pró­­sent og svo kolefn­is­gjaldið sem hækk­­aði um 25 aura og er nú 5,50 krónur á hvern lítra. Hlut­­falls­­leg hækkun kolefn­is­gjalds­ins er 4,76 pró­­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvaktin

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár